Lenya Rún, þingmaður Pírata, benti nýverið á sára stöðu geðdeildar Landspítalans, á samfélagsmiðlinum Twitter. Í færslunni bendir hún á að í nýrri byggingu Landspítalans sé ekki gert ráð fyrir geðdeild. Þá bendir hún jafnframt á að skortur sé á starfsfólki á deildinni en að þessir tveir þætti leiði til refsimiðaðrar nálgunar á fólki sem glími við geðrænan vanda.
Í myndskeiðinu sem fylgir færslunni segir hún þess dæmi að sjúklingum sé meinaður aðgangur að reykingaraðstöðu fyrr en það klári matinn sinn. Segir Lenya Rún að refsimiðuð nálgun henti alls, alls ekki veikum einstaklingum. Þeir þarfnist samkenndar og hvatningar.































Athugasemdir