Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aftenposten Innsikt biður Samherja afsökunar: „Ætlar Blaðamannafélagið ekki að gera það sama?“

Aftenposten Innsikt biður Samherja afsökunar: „Ætlar Blaðamannafélagið ekki að gera það sama?“
Páll Vil­hjálms­son er afar umdeildur blogg­ari

Norskt frétta­tíma­rit birti afsök­un­ar­beiðni til Samherja vegna umfjöll­unar sem birt­ist í blað­inu í febr­úar. Áfell­is­dómur yfir blaða­mann­inum Lasse Skytt. Páll Vil­hjálms­son spyr hvort Blaða­manna­fé­lag Íslands ætli að biðj­ast afsök­unar en á press.is birt­ist umfjöllun um grein eftir Skytt þar sem Sam­herj­a­málið var meðal ann­ars rætt.

Í mars­út­gáfu norska frétta­tíma­rits­ins Af­ten­posten Innsikt, birt­ist afsök­un­ar­beiðni blaðs­ins vegna greinar sem birt­ist þar í febr­úar. Greinin fjall­aði um spill­ingu á Íslandi og var skrifað af sjálf­stætt starf­andi blaða­mann­inum Lasse Skytt. Mbl segir frá mál­inu en þar beðist afsök­unar á ýmsum vanköntum í grein­inni og vegna þess að Samherja var ekki gef­inn kostur á að svara þeim ásök­unum sem fram komu í grein­inni.

Páll Vil­hjálms­son, fram­halds­skóla­kenn­ari og Mogga­blogg­ari spyr í nýrri blogg­færslu hvort Blaða­manna­fé­lag Íslands ætli að biðj­ast afsök­unar. Á hverju gætu ein­hverjir velt fyrir sér en ástæðan er sú að á vef­síðu félags­ins, press.is birt­ist umfjöllun í febr­úar um grein eftir Lasse Skytt úr danska blað­inu Journalisten en þar er farið yfir ástæð­urnar fyrir því að Ísland datt af toppi fjöl­miðla­frels­is­lista Blaða­manna án landamæra. Í grein­inni er meðal ann­ars rætt við Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, for­mann Blaða­manna­fé­lags Íslands og Þórð Snæ Júl­í­us­sonar, ann­ars tveggja rit­stjóra Heim­ild­ar­innar en Þórður og Arnar Þór Ing­ólfs­son blaða­maður standa nú í mála­ferlum við Pál Vil­hjálms­son vegna meintra meið­yrða.

Páll segir í færslu sinni að Þórður Snær hafi sagt eft­ir­far­andi orð (og þannig „skáldað“) í grein Journalisten sem svo BÍ fjall­aði um á vef sínum: Hann [Þórður Snær} og þrír aðrir blaða­menn fengu skyndi­heim­sókn í Reykja­vík frá hópi lög­reglu­manna. Þeim var ekið til Akur­eyrar, sjáv­ar­byggðar á Norð­ur­landi þar sem Samherji er með höf­uð­stöðvar.

Þetta er hins vegar ekki rétt. Í laus­legri þýð­ingu segir í Journalisten: Hann og þrír aðrir blaða­menn fengu skyndi­heim­sókn í Reykja­vík frá hópi lög­reglu­manna. Þeir höfðu keyrt til höf­uð­borg­ar­innar frá Akureyri í norðri – fiski­bæjar þar sem Samherji er með höf­uð­stöðvar.

Þá bendir Páll á að í grein Blaða­manna­fé­lags­ins standi: Sam­herj­a­málið er rifjað upp, og sú ákvörðun lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra að hefja saka­mála­rann­sókn gegn fjórum blaða­mönnum í tengslum við frétta­flutn­ing af einum anga Sam­herj­a­máls­ins.

Segir fram­halds­skóla­kenn­ar­inn að þetta sé akkurat eitt af því sem Aften­posten Innsikt hafi beðist afsök­unar á: Yf­ir­heyrsla ís­lenskra blaða­manna hjá lög­regl­unni á Norður­landi eystra hafi „ekki tengst um­fjöll­un þess­ara blaða­manna um um­rætt mál [þ.e. Namib­íu­málið] og kem­ur þannig mál­inu ekki við“.

Bætir hann svo við: „Nú þegar fag­menn sem kunna blaða­mennsku, rit­stjórn Innsikt/Aften­posten, hafa beðist afsök­unar ætlar Blaða­manna­fé­lag Íslands ekki að gera það sama?“

Mannlíf heyrði í Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur og spurði hana hvort henni fynd­ist Blaða­manna­fé­lagið þurfa að biðj­ast afsök­unar á að fjalla um grein Skytt í Journalisten eftir að Aften­posten Innsikt baðst afsök­unar á skrifum Lasse Skytt í þeirra blað um sama mál. Sigríður hafði ekki heyrt af þessu en eftir að hafa kynnt sér málið benti hún á að um tvær mis­mun­andi greinar væru að ræða. Því hafi BÍ ekk­ert til að biðj­ast afsök­unar á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi