Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk ungmenni saklaus í amerísku fangelsi: „Farið að líða eins og sögupersónu í hryllingsmynd“

Íslensk ungmenni saklaus í amerísku fangelsi: „Farið að líða eins og sögupersónu í hryllingsmynd“
Kristrún Gunn­ars­dóttir fyrir utan fang­els­is­hliðið eftir að henni var sleppt út haldi.

Kristrún Gunn­ars­dóttir og vinur hennar, sem hún kallar Einar, lentu í ótrú­legri atburða­rás á ferða­lagi um sýslur Kali­forníu. Þau kynnt­ust manni að nafni Ziegler og ákváðu að ferð­ast um Kali­forníu með honum þar sem hann sagð­ist þekkja fylkið vel. Þau eru svo síðar stoppuð af vega­lög­reglu vegna hraðakst­urs en þá kemur í ljós að öku­skír­teini Zieglers er útrunnið. Við leit í bílnum og í föggum þeirra fann lög­reglu­mað­ur­inn eit­ur­lyf í far­angri Zieglers og hand­tók þau öll á staðnum. Við tók bar­átta við kerfið.

Þessi ótrú­lega sanna saga gerð­ist árið 1988 en hér fyrir neðan má lesa umfjöllun DV um málið:

Íslensk ung­menni lentu í fang­elsi í Kali­forníu

– voru far­þegar í bíl manns sem reynd­ist vera eit­ur­lyfja­sali

Ævintýri stór og smá hafa heiUað margan mann­inn en stundum getur ævin­týrið skyndi­lega breyst í martröð, líka þeim sem þekkj­ast í hryll­ings­mynd­unum og engan óraði fyrir.
Íslend­ingar fara ekki var­hluta af því­líkum óvæntum upp­á­komum þótt slíkt ger­ist von­andi ekki oft. Ung íslensk stúlka, Kristrún Gunn­ars­dóttir, upp­lifði í byrjun sum­ars­ins skelfi­lega martröð er hún var á ferða­lagi í Los Angeles.

Kristrún kom til stór­borg­ar­innar í vor ásamt vini sínum, sem hún kýs að kalla dul­nefn­inu Einar. Hún hugð­ist sækja um skóla­vist í nokkrum mynd­list­ar­skólum í Los Angeles. Tímann fram að hausti ætl­uðu þau svo að nota til að ferð­ast um Kali­forníu og næstu fylki.
„Við þótt­umst heldur betur heppin þegar við kynnt­umst Ziegler sem að eigin sögn hafði í mörg ár ekið vöru­flutn­inga­bíl. Sagðist hann þekkja landið mjög vel og vita hvar væru fal­legir og áhuga­verðir staðir. Við þrjú ákváðum þá að leggja saman af stað í ferða­lag. Þetta var um mán­aða­mótin maí-júní. Til að byrja með var ferð­inni heitið í norður, gegnum
Kali­fomíu til Oregon­fylkis, þar sem Ziegler sagð­ist eiga ætt­ingja og vini.

Svo var það aö morgni fostu­dags­ins 3. júní að bif­reiðin, sem þau voru í, var stöðvuð vegna hraðakst­urs. Vorum við þá stödd á þjóð­vegi 97, í rétt um 50 km fjar­lægð frá mörkum Kali­forniu og Oregon. Ég og Einar vorum bæði sof­andi í bif­reið­inni en vökn­uðum við sam­tal Zieglers og vega­lög­reglu­þjóns­ins Himb­urger. Hann tók öku­skír­teini Zieglers til athug­unar á
tölv­unni sinni í lög­reglu­bílnum. Kom hann svo til baka og spurði hvort þau hefðu áfengi í bílnum. Þegar hann hafði gert laus­lega leit á gólfi og undir sætum leyfði hann okkur að halda ferð­inni áfram.

Um 15 mín­útum síðar stöðv­aði Himb­urger bif­reið­ina aftur. Lög­reglu­þjónn­inn var þá að til­kynna Ziegler að skír­teini hans væri útrunnið. Himb­urger bað okkur öll að stíga út úr bílnum og spurði mig og Einar um öku­skír­teini sem bæði reynd­ust í lagi. En Himb­urger lét
ekki þar við sitja heldur hóf hann að tína út úr bílnum per­sónu­legar eigur okkar. Opnaði hann töskur og annað án þess að biðja um leyfi, hvað þá að hann hefði nokk­urt opin­bert
leyfi.

Vinurinn orð­inn eit­ur­lyfja­sali

Og þá skall reið­arslagiö yfir. Upp úr snyrti­tösku Zieglers dró hann lít­inn poka sem inni­hélt mari­ju­ana, um það bil 5 grömm, og lítið með­ala­glas sem Ziegler tjáði honum að inni­héldi
kókaín. Það næsta sem gerð­ist var að við Einar vorum látin sitja aðskilin utan vegar á meðan Himb­urger kall­aði á aðstoð fíkni­efna­lög­reglu.

Hún mætti á stað­inn og grand­skoð­aði bíl­inn, með þeim árangri að í fórum Zieglers fund­ust 3 únsur af kóka­íni og 1 únsa af mari­ju­ana. Ziegler tjáði lög­regl­unni strax að hann ætti efnið og við Einar værum ekki einu
sinni í vit­orði. Lög­reglan sýndi orðum hans lít­inn áhuga og vorum við öll þrjú færð til næsta fang­elsis sem er í Yreka, 5000 manna bæ rétt við mörk fylkj­anna.

Við vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið. Ziegler kom okkur svo sann­ar­lega á óvart. Hann reynd­ist allt í einu vera kóka­ín­n­eyt­andi og sölu­maður sem stóð í smygli á milli
fylkja. Samt hafði hann mann­dóm til að skamm­ast sín fyrir óþæg­indin sem hann var að baka okkur því hann margend­urtók játn­ingu sína sem eig­andi efn­is­ins, bæði við hand­töku og eftir að við komum til fang­els­is­ins. En allt kom fyrir ekki. Öll vorum við bókuð inn í fang­elsið með sömu ákæru. Þegar bókun var lokið var okkur vísað sínu á hvem almenn­ings­klef­ann.

Ziegler

Það leið á fimmta sól­ar­hring áður en við komum fyrir dóm­ara í fyrsta
sinn. Í milli­tíð­inni hafði eng­inn spurt okkur eins eða neins, ekki einu sinni hvort við hefðum lög­fræð­inga eða hvort sveit­ar­fé­lagið þyrfti að útvega almenn­ings­verj­endur. Þar sem við Einar höfðum ekk­ert á okkar sam­visku biðum við með þol­in­mæði eftir þvi að þessi mis­skiln­ingur yrði leið­réttur. En þrátt fyrir fávísi okkar um banda­rískt rétt­ar­kerfi var okkur
strax farið að gruna að ekki væri allt með fefldu. Það var því lán í óláni að föngum í þessu fang­elsi er frjálst að nota síma, svo fram­ar­lega sem hringt er „collect“. Gátum við því haft síma­sam­band við íslenska konu, Gerði, sem við bjuggum hjá í Los Angeles, til að hafa með í ráðum.“

Lög­reglu­of­ríki í Kali­forníu?

Kristrún talar um í upp­hafi að gíf­ur­legum fjár­munum sé eytt í auk­inn her­afla yfir­valda til að stemma stigu við sölu og dreif­ingu á eit­ur­lyfjum, sér­stak­lega á kóka­íni. En þessi aukni her­afli í leit að glæpa­mönnum hafi hins vegar valdið almennum borg­urum alls kyns óþæg­indum. Yfirvöld virð­ast ekki alltaf vita hvar tak­mörkin liggja og hafa sak­lausir
mátt heyja harða bar­áttu við að sanna sak­leysi sitt, að sögn Kristrúnar. Fólk þarf að þola lík­ams­leit og jafn­vel hús­leit að ósekju. Af þessum sökum hefur sprottið upp umræða á
opin­berum vett­vangi um hætt­una á að lög­reglu­of­ríki sé að skap­ast í Kali­fomíu. Segir Kristrún að sú umræða hafi jafnan verið þögguð niður þar sem um ákaf­lega við­kvæmt mál sé að ræða og að yfir­völd vilji sem minnst ræða um þessar auka­verk­anir af aðgerðum sínum. 

Aðeins einn almenn­ings­verj­andi í sýsl­unni

„Svo klukkan fjögur á þriðju­degi vorum við færð í rétt­ar­sal. Rétt­ur­inn fór þannig fram að ákveð­inn var nýr dóms­dagur að viku lið­inni og að öll þrjú þyrftu alméf­in­ings­verj­anda.
Síðan var okkur vísað aftur til klefa. Í þetta skiptiö mátti líða vika til við­bótar áður en hreyf­ing kæm­ist á málið og enn hafði eng­inn spurt okkur stakrar spurn­ingar. Þetta var óhugn­an­leg til­finn­ing. Mér var farið að líða eins og sögu­per­sónu í hryll­ings­mynd. Tekin til fanga og mátti svo bara sitja á bak við rimla án þess einu sinni að fá að tjá mig um málið. Við hringdum í Gerði og sögðum henni hvernig fór í rétt­inum. Henni var líka hætt að standa á sama. Miðað við þær lög­fræði­upp­lýs­ingar, sem hún hafði aflað sér, var marg­búið að bijóta á rétti okkar. Gerður ótt­að­ist að yfir­völdum yrði ekki treystandi til að ganga eðli­lega
fram í þessu máli og tók sér því sjálf ferð á hendur norður til Siskiyousýslu, í þeim erindum að útvega lög­fræð­inga til varnar. Hún kom til Yreka-bæjar síð­degis á föstu­dag og fór strax að hitta Mr. Brown, lög­fræð­ing sem henni hafði verð bent á. Helgina sem í hönd fór not­aði
Gerður til að kynna sér bæj­ar­lífið í Yreka. Komst hún fljótt að því að eitt­hvað væri bogið við yfir­völd á þessum stað.

Til dæmis var nýlega kosið um dóm­ara. Annar af almenn­ings­verj­endum stað­ar­ins bauð sig fram en tap­aði. Hann rauk þá í fússi úr bænum og þess vegna var bara einn almenn­ings­verj­andi í sýsl­unni. Hann átti svo einn að taka mál okkar þriggja fyrir rétti sem er nátt­úr­lega ólög­legt.

Gerði fannst, eins og okkur, sem í þess­ari sýslu væri andi eins og maður sér stundum í bíó­myndum. Sagan um smá­bæ­inn ein­angr­aða þar sem löggan og dóm­ar­inn halda öllum í
helj­ar­g­reipum. Í fang­els­is­garð­inum hitti ég til dæmis bónda sem dæmdur var fyrir naut­gripa­þjófnað vegna þess að yfir­völd þurftu á land­svæð­inu hans að halda. Annað dæmi er maður sem sat í klefa með Einari. Hann var sak­aður um að hafa stolið eigin bíl, hvemig sem það er nú hægt. Það tók for­eldra manns­ins um það bil viku að sanna eign­ar­rétt hans
á bílnum, en á meðan mátti hann sitja á bak við rimla.

Þetta er óneit­ani­ega hálf­und­ar­legt allt saman og ég held að fólk þurfi að lenda í svona stöðu til að skilja hversu hættu­legt lög­reglu­ríki getur orðið. Ekki það að glæpa­menn eigi
að vaða uppi hindr­un­ar­laust heldur verða að vera skýr og greini­leg mörk á því hvenær yfir­völd mega grípa til aðgerða og hvenær ekki.

Á mánu­deg­inum fékk Mr. Brown skýrsl­una frá Himb­urger og fíkni­efna­deild­inni. Þá var búið að athuga hvort við værum eft­ir­lýst hjá alþjóða­lög­reglu eða ann­ars staðar í Banda­ríkj­unum. Svo reynd­ist ekki vera. Þegar Mr. Brown fór í gegnum skjölin kom í ljós að mér var hald­inni fang­inni án gildrar ástæðu. Himb­urger hafði með loönu orða­lagi tengt Einar við kassettu­tösku sem í fannst glas með kóka­íni, en orða­lagið eitt var ekki næg ástæða til að halda honum föngnum. Heimilt hefði verið að halda honum til yfir­heyrslu í 3 sól­ar­hringa en eins og komið hefur fram hafði eng­inn spurt okkur nokk­urrar spurn­ingar í hátt á aðra viku.

Vega­lög­reglan fræg fyrir ótukt­ar­skap

Mr. Brown fannst þetta mál allt mjög áhuga­vert. Hann vissi að Himb­urger var frægur fyrir ótukt­ar­skap og upp­lognar sakir. Honum var líka upp­sigað við yfir­völd á staðnum og sá sér þarna færi á að ná sér niðri á þeim. Mr. Brown tók að sér mál Einars og útveg­aði mér traustan mann. Ziegler varð að not­ast við almenn­ings­verj­anda stað­ar­ins sem fer að
jafn­aði með um 20 mál á dag.

Á þriðju­dags­morgni kl. 9 vorum við færð í rétt­ar­sal í annað sinn. Það
sem ger­öist í rétt­ar­salnum þennan morgun var að dóm­ar­inn spurði um
Himb­urger sem sitja átti fyrir svörum vegna skýrslu sinnar. Himb­urger
mætti ekki á stað­inn vegna „anna“ eins og sak­sókn­ari orð­aði það. Dómarinn varð þá ævar­eiður og frestaði rétti fram yfir hádegi. Lög­fræð­inga­mir fengu ekki að segja eitt ein­asta orð.

Eftir hádegi var svo aftur mætt í rétt­ar­sal. Himb­urger var enn ekki mættur. Mr. Brown tókst að koma því að að Einar væri sak­laus og auð­velt væri að sýna fram á það. Mínum lög­fræð­ingi tókst að segja eitt­hvað svipað. Dómarinn, sem var hálf­heyrn­ar­laus, virt­ist ekki vita hver væri að verja hvern. Hann þagg­aði niður í lög­fræð­ing­unum á þeim for­sendum að allir væru að tala í einu og ákvað síðan nýjan dóms­dag, föstu­dag­inn 17. júní. Enn einu sinni var okkur þre­menn­ing­unum vísað í klefa án þess að nokkur árangur
næð­ist.

Lög­fræð­ing­arnir voru bæði reiðir og móðg­aðir. Mr. Brown hóaði í minn lög­fræð­ing og almenn­ings­verj­and­ann og boð­aði þá til fundar á skrif­stofu sína. Þeir bára saman bækur
sínar og komust að því að sækj­andi hafði í raun ekk­ert mál að sækja þar sem yfir­völd hegð­uðu sér ólög­lega frá upp­hafi máls­ins. Leitin í bif­reið­inni og hand­takan fór ólög­lega fram
og var búið að brjóta ítrekað á rétti okkar. Það var illa komið við kaun­inn á yfir­völdum sýsl­unnar þegar lög­fræð­inga­mir höfðu sam­band við skrif­stofu sak­sókn­ara og tjáðu honum að allt þetta mál ætti með réttu að falla niður. Yfirvöld vildu samt ekki missa málið alveg úr hönd­unum þar sem Ziegler var aug­ljós­lega sekur um eit­ur­lyfja­sölu og dreif­ingu. Brugðu þau því á það ráð að leggja samn­inga fyrir lög­fræð­ing­ana og leysa málið þannig af sann­girni.

Loks vorum við sýknuð

Á fimmtu­deg­inum fékk Ziegler svo í hend­urnar plagg þar sem hann sjálf­vilj­ugur sækir um með­ferð sem eit­ur­lyfja­sjúk­lingur í 3 mán­uði og verður síðan undir eft­ir­liti yfir­valda í þrjú ár þar á eftir. Und­ir­rit­aði hann með þeim skil­málum að við yrðum sýknuð af öllum ákærum. Þá voru okkur fengin í hendur plögg til und­ir­rit­unar þar sem ákærur á hendur okkur falla niður ef við lofum að ákæra ekki: Siskiyou-sýslu­dóm, vega­lög­reglu sýsl­unnar, fíkni­efna­lög­regl­una, yfir­völd Kali­forníu-fylkis eða banda­ríska ríkið.

Við und­ir­rit­uðum bæði án þess að hugsa út í hvað lög­sókn gegn þessum aðilum gæti þýtt. Seinna kom í ljós að við hefðum átt rétt á að minnsta kosti fjórum millj­ónum íslenskra
króna í skaða­bætur.

En þetta var virki­lega fal­legur 17. júní og loks­ins vorum við orðin ein­hvers virði,“ segir Kristrún. „Það er sárt til þess að hugsa hve sak­lausir þurfa oft að leggja mikið á sig til að
sanna sak­leysi sitt. En stríð er stríð og aldrei að vita hvenær veðjað er á rangan hest.“
-RóG.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður þann 20. apríl 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi