Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Glittir í langþráð lyfjaleyfi hjá Helgu Rakel: „Ég hef nú fengið símtal“

„Það er rétt að það komi fram að ég hef nú fengið sím­tal frá LSH sem bendir til jákvæðrar nið­ur­stöðu að lokum varð­andi það að ég fái að prófa Tofersen. Ég vona auð­vitað það besta en miðað við fyrri reynslu þá ætla ég að trúa því þegar ég sé það,“ svohljóð­andi hefst ný færsla frá Helgu Rakel Rafns­dóttur kvik­mynda­gerð­ar­konu.

Eftir tals­verða bar­áttu og opin­berun á tor­veldum sam­skiptum og skil­virkni virð­ist sem svo að rödd Helgu Rakelar hafi fengið hljóm­grunn innan Land­spít­ala. Eftir að hafa tjáð sig um málið á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook og fjöl­miðlar lands­ins hófu að fjalla um málið barst Helgu Rakel sím­tal um henni gef­ist mögu­leiki á að prófa lyfið Tofersen í bar­áttu sinni við sjúk­dóm­inn MND.

Í gær var við­tal við Helgu Rakel, í Kast­ljósi, þar sem hún rak raunir sínar. Þar var birt yfir­lýs­ing frá Land­spít­al­anum í kjöl­far erindis sem aðstand­endur sendu út í gær. Frétta­stofa RÚV kall­aði jafn­framt eftir svörum. „Svar LSH í gær átti að sumu leyti ekki við í mínu til­felli en ég á bara ekki meiri orku í orða­skak um þetta mál í bili. Það eru alt­ént góðar fréttir ef skoða á verk­ferla og sam­skipti við sjúk­linga í svona málum eins og kemur fram í lok yfir­lýs­ing­ar­innar,“ útskýrir Helga Rakel.

Lyfið

Lyfið sem um ræðir heitir Tofersen og gagn­ast þeim sem eru með SOD1 gena­gall­ann sem Helga Rakel er með. Lyfið getur dregið úr áhrifum sjúk­dóms­ins og þar með haft jákvæð áhrif á lífs­gæði hennar og hreyfi­getu. Tofersen hefur verið leyft í 36 löndum í gegnum svo­kallað „Early Access Program“. Land­spít­ali Háskóla­sjúkra­hús hefur hingað til hindrað það hér­lendis.

Brautin skal rudd

„Ég vil líka taka fram að með því að stíga fram vil ég að brautin verði rudd fyrir alla sem þurfa á því að halda,“ segir Helga Rakel í lok færsl­unnar og þakkar aðstand­endum sínum, vin­konum, Kast­ljósi og ekki síst MND félagi Íslands fyrir veittan stuðn­ing og hjálp í þess­ari erf­iðu bar­áttu við Land­spít­al­ann.

Hér að neðan má lesa erindi vegna máls Helgu Rakelar sem barst Lands­lækni í gær:

Reykja­vík, 7. Mars 2023
Erindi til land­læknis Íslands
Vegna erindis sem sent var á yfir­lækni tauga­lækn­inga­deildar Land­spít­ala Háskóla­sjúkra­húss 1. mars síð­ast­lið­inn viljum við beina þeim þáttum til Land­lækn­is­emb­ættis Íslands sem hafa að gera með brotala­mir í starf­semi tauga­lækn­inga­deildar LHS. Þessar brotala­mir hafa haft alvar­legar afleið­ingar fyrir sjúk­ling sem okkur stendur nærri, Helgu Rakel Rafns­dóttur, kt:xxxxxx-xxx9.
Vísað er til bréfs um málið, einnig í við­hengi.

Alvar­legar athuga­semdir við starf Tauga­lækn­inga­deildar LHS eru eft­ir­far­andi:

1. Óskýrar boð­leiðir og upp­lýs­inga­gjöf

Frá því að sjúk­lingur ber upp erindi í októ­ber árið 2021 varð­andi nýtt lyf, Tofersen með ósk um að skoð­aðar séu leiðir til að prófa það hafa ekki feng­ist skýr svör frá sér­fræð­ingum. Þegar ákvarð­anir eru teknar fyrir til­tek­inn sjúk­ling er ekki boðað til upp­lýs­inga­fundar um málið með sjúk­lingi, sér­fræð­ingi og aðstand­endum.

2. Tafir og engin áhersla á skil­virkni þótt erindi sé aðkallandi

Um er að ræða lífs­hættu­legan sjúk­dóm sem skerðir lífs­gæði og heil­brigði hratt. Ferli, sam­skipti og með­höndlun innan tauga­lækn­inga­deildar taka ekki til greina hversu aðkallandi málið er og kom­ast því yfir­menn upp með tafir á svörum og ákvarð­ana­tökum sem hafa grafal­var­leg áhrif á mögu­leika til að hægja á fram­vindu sjúk­dóms­ins.

3. MND teymi án sér­fræði­læknis Í MND teymi deild­ar­innar er ekki sér­fræði­læknir. Þetta hefur áhrif á hversu skil­virk upp­lýs­inga­miðlun er á fundum um sjúk­dóm­inn og fram­vindu í lyfja­notkun innan deild­ar­innar.

4. Ekki gagn­sæi og sam­ræm­ingar í upp­lýs­inga­gjöf til sjúk­linga með MND SOD1

Sjúk­lingar með SOD1 gena­gall­ann eru hjá mis­mun­andi læknum og þar af leið­andi er hver og einn að nýta krafta sína í að vinna í sínum málum í stað þess að gagn­sæi og skýrt utan­um­hald létti sjúk­ling­unum lífið. Þetta hefur m.a. leitt til þess að Helgu Rakel var ekki bent á klíníska rann­sókn á lyf­inu AP-101, sem einnig er í þróun, fyrr en eftir að sjúk­dóm­ur­inn var of langt geng­inn fyrir þátt­töku í rann­sókn­inni.

5. Ekki ski­mað fyrir stökk­breyt­ingu í SOD1

Um 20% sjúk­linga með arf­gengt MND eru með stökk­breyt­ingu í SOD1 gen­inu. Sýnd sjúk­dóms­ins getur verið ófull­komin (incomplete penetrance) þannig að fjöl­skyldu­saga er ekki í öllum til­fellum vel grein­an­leg. Einnig hefur verið sýnt fram á nýjar (de novo) sjúk­dóms­vald­andi kím­frumu­stökk­breyt­ingar í gen­inu. Mik­il­vægt getur verið að vita hvort sjúk­lingur er með stökk­breyt­ing­una, bæði með til­liti til hugs­an­legrar lyfja­gjafar, erfða­ráð­gjafar og vís­inda­rann­sókna. Þrátt fyrir þetta virð­ist ekki vera ski­mað fyrir stökk­breyt­ingu í SOD1 gen­inu hjá sjúk­lingum greindum með MND á Land­spít­al­anum.

6. Háskóla­sjúkra­hús en ekki áhugi á þátt­töku í klínískum rann­sóknum

Meg­in­verk­efni Land­spít­ala Háskóla­sjúkra­húss eru þrí­þætt, að sinna veiku fólki, upp­götva nýja þekk­ingu með rann­sóknum og kenna og þjálfa fólk til starfa. Stefna tauga­lækn­inga­deildar virð­ist þó ekki vera sú að aðstoða þann hóp MND sjúk­linga sem er með SOD1 stökk­breyt­ing­una við að taka þátt í klínískum rann­sóknum eða gefa þeim tæki­færi til að nýta sér lyf sem er í “Early Access Program”, lyf sem mögu­lega geta hægt á fram­vindu sjúk­dóms­ins og þannig bæði bætt lífs­gæði og lífslíkur.

7. Ekki sýndur vilji fyrir notkun lyfja af mann­úð­ar­á­stæðum

Í Heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu eru í vinnslu reglu­gerð um leyfi til notk­unar lyfja af mann­úð­ar­á­stæðum.
Reglu­gerðin byggir að stórum hluta á reglu­gerð Evr­ópu­ráðs­ins frá árinu 2004 og mark­miðið er m.a. að auð­velda aðgengi að lyfjum sem eru í yfir­stand­andi klínískum próf­unum en hafa ekki hlotið mið­lægt mark­aðs­leyfi, mann­úð­ar­á­stæður þurfa að liggja fyrir og lyfin eiga að vera sjúk­lingum að kostn­að­ar­lausu. Þrátt fyrir að reglu­gerð um notkun slíkra lyfja hafi ekki verið sam­þykkt hér enn, þá eru þess dæmi að und­an­þágu­lyf hafi verið notuð hér­lendis, t.d. Í krabba­meins­lækn­ingum. Hins vegar virð­ist ekki hafa verið almennur vilji hjá læknum á tauga­lækn­inga­deild að auð­velda sjúk­lingum aðgengi að Tofersen, sem hefur verið á lista lyfja í „Early Access Program” síðan um mitt ár 2021 og hefur verið notað í mörgum ríkjum Banda­ríkj­anna og í mörgum Evr­ópu­löndum, sem við berum okkur saman við, t.d. Í Svíðþjóð og Bret­landi.

Ofan­greindir þættir leiða til þess að MND sjúk­lingar með SOD1 gena­gall­ann hafa ekki fengið þá heil­brigð­is­þjón­ustu sem þau myndu eiga kost á byggju þau í nágranna­löndum okkar.

Ferlið, eft­ir­litið og fram­vindan sem er hér lýst, þetta er óásætt­an­legt.
Við aðstand­endur Helgu Rakelar Rafns­dóttur hvetjum Land­lækn­is­emb­ætti um að skoða þessi mál ítar­lega

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi