Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jörundur Ragnarsson féll ofan í hyldjúpa jökulsprungu: „Ég ætla ekki að deyja svona“

Jörundur Ragnarsson féll ofan í hyldjúpa jökulsprungu: „Ég ætla ekki að deyja svona“
Jörundar Ragn­ar­son féll ofan í jök­ul­sprungu árið 2010. Myndin er sam­sett.

Árið 2010 féll Jörundur Ragn­ar­son, leik­ari, ofan í jök­ul­sprungu þegar hann var staddur á rjúpna­veiðum með félaga sínum, Hilmi Snæ, í Mývatns­sveit í miklum snjó: „Þetta var í ljós­skipt­unum, og ég hafði eitt­hvað mis­skilið leið­bein­ing­arnar,“ útskýrir Jörundur og greinir frá því að þeir voru staddir á svæði á Leggja­brjóti sem hann átti ekki að vera að ganga á. 

En Jörundur opnar sig um þessa háska­legu lífs­reynslu í þætti Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur, Segðu mér.  

„Ég var sem sé að labba í miklum snjó og lapp­irnar eru að detta niður í svona smá holur inn á milli og maður er að hífa sig upp á hnénu. Svo ger­ist þetta í eitt skipti og ég er að hífa mig upp, á hinni löpp­inni, og þá hrynur allt undan mér. Þá var ég bara að labba ofan á svona fleka“. 

Fallið var um það bil 8-9 metrar. Jörundur lýsir því að fallið hafi ekki verið frjálst heldur hafi hann verið utan í stein­vegg allan tím­ann, sem tók af honum mesta fallið. 

Aðspurður hvort að hann hafi meitt sig í fall­inu. „Jah, bara ég fékk kúlu og braut á mér nögl og fötin rifn­uðu öll en nei brotn­aði ekki neitt. Heldur lenti ég bara á löpp­unum, skil­urðu“. Jörundur lýsir því að hann hafi lent á grjót­hnull­ungi sem hafi dottið niður í sprung­una og var um það bil meter og hálfur að breidd. Hnull­ung­ur­inn hafði skorð­ast af í sprung­unni sem ann­ars var 30 metrar að dýpt.

Lán í óláni 

Jörundur lýsir því hvernig hann hafi teygt sig í sím­ann til að kveikja ljós og kanna aðstæður eftir að hann lenti. „Þegar ég skoð­aði í kringum mig þá sá ég bara hyl­dýpi fyrir neðan mig – Ég sá ekki til botns, beggja megin við stein­inn sem ég lenti á“.

„Það er rosa mikið adrena­lín-rúss,“ útskýrir hann hugs­un­ar­ferlið í aðstæð­unum en seg­ist við­kenna að hann hefði sjálfur ímyndað sér að hann yrði í meira panikki. En að hann hafi litið upp og séð gatið þar sem hann datt í gegnum. „Já, ok ég er kom­inn í vand­ræði“. 

Án síma­sam­bands og með ekk­ert annað með­ferðis en 2 – 3 rjúpur  í tösk­unni og einn Svala leitar Jörundur allra leiða til að kom­ast upp.

Ekki var ger­legt að klifra upp sprung­una en hann lýsir því í við­tal­inu hvernig hann nær að þvinga sér upp á milli sprungu­veggj­anna. Jörundur kemst þó ekki alla leið upp en þó nógu langt til að ná síma­sam­bandi. Jörundur hringir í Hilmi Snæ félaga sinn og lýsir fyrir honum aðstæðum og biður hann um að hringja í Björg­un­ar­sveit­ina.

Hilmir Snær fer því næst að leita að Jörundi, sem að eftir á að hyggja hafi það ekki mjög gáfu­legt í ljósi aðstæðna.

Leitin

Jörundur lýsir bið­inni niðri í sprung­unni. Hvernig hann hafi svo heyrt í rödd vinar síns, sem var hafði verið í um það bil kíló­met­ers fjar­lægð frá honum þegar hann hafði náð sam­bandi við hann. 

Eftir hálf­tíma bið gat Jörundur heyrt köllin frá vini sínum og farið að kalla á hann til baka. Léttir færð­ist yfir Jörund á meðan rödd vinar hans hækk­aði og hækk­aði. En svo fjar­lægð­ist hljóðið aftur. Jörundur reynir enn að brölta upp og hringja aftur í Hilmi Snæ – sem hafði ekki heyrt í honum köllin. Þá var sím­tæki Hilmis orðið batt­er­í­is­laust. 

Vonleysið

Jörundur reynir að ná sam­bandi við Neyð­ar­lín­una en sam­bandið er lélegt og í miðjum hama­gang­inum berst Jörundi sím­tal frá barns­móður sinni og þáver­andi konu. Með blikk­andi mynd af henni og nýfæddu barni þeirra gat hann ekki hugsað sér að svara henni í þessum aðstæðum. Hann klippir ósjálfrátt  að sér hönd­inni með þeim afleið­ingum að hann glutrar sím­anum og horfir á eftir honum ofan í hyl­dýpið. Á því augna­bliki grípur hann hræðsla og von­leysi.

„Ef að Himmi finnur mig ekki, þá finnur björg­un­ar­sveitin mig ekki. Ég er hérna með tvær rjúpur og Svala. Ég lifi kannski hérna í tvo daga og svo finna þeir bara beina­grind í vor“

Eftir tvo tíma er Jörundur lurkum lam­inn, þreyttur og von­laus og liggur í hnipri á stein­hnullungnum „Ég ætla ekki að deyja svona ég ætla frekar að deyja við að reyna að kom­ast upp,“ segir Jörundur og ákveður að hrista í sig kraft. Hann ákveður að reyna að fara aðra leið sem er áhættu­samir þar sem ef hann skyldi missa fót­ana að þá myndi fallið verða ofan í hyl­dýpið. 

Jörundur nær að bjarga sér upp úr hol­unni. Í gleði­kasti öskrar hann upp yfir sig. Hann sér Hilmi Snæ úrvinda en hlaup­andi í um það bil 200 metrum frá sér. Björg­un­ar­sveitin er þá einnig mætt. Í kjöl­farið eru gerðar mæl­ingar á sprung­unni sem hafðar eru eftir í við­tal­inu.

Margoft hefur verið reynt að fá Jörund í við­tal og ræða lífs­reynsl­una en hann við­ur­kennir að atvikið hafi markað hann mikið og sð svo erfitt hafi verið fyrir hann að opna sig án þess að bresta í grát. „Ég vildi ekk­ert vera að mjólka það í fjöl­miðlum,“ útskýrir Jörundur og fannst það ein­hver óþarfa athygl­is­sýki.

Fékk áfallahjálp

Í langan tíma á eftir fylgdu Jörundi martraðir. „Í þeim var ég að detta og vita ekki hvenær ég myndi lenda,“ og lýsir hann draumunum eins hann vissi aldrei hvenær hann myndi lenda.

Í áfalla­hjálp­inni fékk Jörundur að vita að ef ein­stak­lingur kæm­ist sjálfur úr þeim eða gæti bjargað sér sjálfur að þá telj­ist áfallið minna, í sam­an­burði ef til dæmis Jörundi hefði verið bjargað af Björg­un­ar­sveit­inni og upp­lifað algjört bjarg­ar­leysi – og upp á aðra kom­inn. „Maður sigr­ast á þessu með að bjarga sér sjálfur. Ég var hepp­inn með það“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi