Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sparkaði í kvið ófrískrar tengdadóttur sinnar: „Er ekki best að enda þetta eitt fyrir allt?“

Sparkaði í kvið ófrískrar tengdadóttur sinnar: „Er ekki best að enda þetta eitt fyrir allt?“

„Ég hef þagað um þetta síðan apríl 2021. Ég hef einu sinni sagt part úr þess­ari reynslu undir nafn­leynd. En mig langar að skila skömminni og meira segja koma undir nafni og deila því þegar fyrrum tengda­faðir minn réðst á mig og reyndi að eyða ófæddu barni mínu.“ Svona byrjar frá­sögn konu á Facebook í dag. Konan gaf Mannlíf góð­fús­legt leyfi til að fjalla um færsl­una.

Dauðadrukkinn tengdafaðir

Í færsl­unni lýsir konan því er tengda­faðir hennar hringdi í barns­föður hennar fyrir tveimur árum en hún segir hann hafa verið mjög ölv­aðan. Hafi hún beðið barns­föður sinn að tala ekki við hann í þessu ástandi en hann hafi ekki orðið við þeirri beiðni. Sagðist konan hafa heyrt þáver­andi tengda­föður sinn segja miður fal­lega hluti í sím­ann og sagt barns­föður sínum að hún vildi ekki hlusta á þetta lengur og að hún ætl­aði til vin­konu sinnar. Það skal tekið fram að konan var þarna komin 14 vikur á leið í með­göngu. Þremur tímum síðar seg­ist hún hafa hringt í barns­föður sinn til að segja honum að hún vilji ekki koma aftur heim í þessar aðstæður, þar sem hún var ófrísk. „Hans við­brögð var að slökkva á sím­anum og sein­ustu skipti sem ég hef sagt við hann hluti sem tengj­ast þessu þá hefur hann hótað að taka belti og aflífa sig úti í bíl­skúr , þannig horm­ónar og ótti fylltu mig og ég fer heim til mín þar sem màgur minn situr í sóf­anum og ég spyr hvar barns­faðir minn er hann neitar að svara,“ skrifar konan í færsl­unni og bætir við að hún hafi þá ákveðið að fara til tengda­föður síns þáver­andi og athuga hvort barns­fað­ir­inn væri þar. „Ég dingla þar og mætir tengda­faðir minn til dyra í nátt­slopp ang­andi af áfengi , hann spyr hvað ég vilji hér og ég segi ég vildi bara athuga hvort barns­faðir minn væri hér og hann stígur út og lokar hurð­inni, hann byrjar strax að kalla mig druslu og hóru og að hann sé viss um að sonur hans eigi ekki barnið, ég segi honum að auð­vita eigi sonur hans barnið og þar sem ég hafði ekki sofið hjá öðrum karl­manni í 12 ár eftir 10 ára sam­band við kvenn­mann á undan syni hans.“ Segist hún hafa sagt þáver­andi tengda­föður sínum að sonur hans hafi farið með henni í sónar og vissi mæta­vel að hún væri ófrísk.

Árásin

Það er þá sem árásin gerð­ist að sögn kon­unnar: „Þá segir hann við mig er ekki best að enda þetta eitt fyrir allt fyrir alla og labbar hratt að mér og sparkar í mag­ann á mér þannig ég dett aftur fyrir mig í stig­anum. Þarna stend ég hratt upp og er full af ótta og byrja labba upp stigan upp að götu, hann grípur í hend­ina á mér þannig ég fæ mar á hendi eftir hend­ina hans sést greini­legt hand­ar­far, ég er marin á maga, löpp og læri eftir fall, hann segir mig ljóta, feita og að engin geti elskað mann­eskju eins og mig …og að hann geti ekki beðið eftir að losna við mig úr líf­inu hans og það sé sko ekk­ert and­skot­ans barn, ég spyr hann hvað ég hafi gert honum og afhverju hann láti svona við mig hann hlær bara og tekur eftir upp­tök­una á sím­anum hlær og segir já taktu þetta bara upp, reynir að taka í sím­ann en ég kemst í burtu með að labba útá götu þar sem bíll er og þá hætti hann að elta mig.“

Þegar heim var komið fékk hún óblíðar mót­tökur frá tengda­fjöl­skyld­unni að hennar sögn. „Þegar ég kem aftur heim til mín þar situr fyrrum mágur minn í sóf­anum og fyrrum tengda­móðir mín í eld­hús­inu, ég segi þeim hvað ger­ist, tengda­móðir mín hlær og labbar inni her­bergi sitt og lokar og mágur minn segir áttir þú þetta ekki bara skilið …“

Á þessu augna­bliki seg­ist konan hafa farið til móður systur sinnar því henni fór að blæða. Þegar hún mætir svo um morg­un­inn upp á með­göngu­deild sést „blóð­pollur hjá fylgju“ og henni sagt að það muni blæða þangað til poll­ur­inn tæm­ist. Segir hún barns­föður sinn hafa hundsað skila­boð frá henni frá með­göngu­deild­inni og að hann hafi verið inni hjá föður sínum þegar hann réð­ist á hana en gerði ekk­ert til að stöðva það.

Þorir ekki að kæra

„Ég varð að lofa vakt­haf­andi ljós­móður að ég færi ekki aftur heim í þessar aðstæður og lög­regl­unni, þannig sama dag var kall­aður saman hópur af ætt­ingum og vinum og var pakkað og ég flutt á 5 kltímum, allan þennan tíma sem ég var þarna þá yrti fyrrum tengda­móðir eða aðrir fjöl­skyldu­með­limir ekki einu orði á mig.“

Að lokum seg­ist konan vilja kæra en sé hrædd og þá aðal­lega ótt­ast hún að tengda­faðir hennar fyrr­ver­andi muni einn dag­inn hitta barnið sem „reyndi að eyða“. Hún segir þó að búið sé að taka skýrslu um málið og að lög­reglan sé með upp­tökur af árásinni.

„Þetta atvik er 1/100 sem ég þurfti að ganga í gegnum með fyrrum tengda­fjöl­skyldu mína.Ég hef ekki þorað að tjá mig vegna gas­lýs­ingar sem ég hef fengið.Samt léttir að koma þess­ari skömm frá mér takk fyrir að lesa“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi