Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Varaþingmaður yfirgefur VG vegna útlendingafrumvarpsins: „Þessi skref eru afskaplega þung“

Varaþingmaður yfirgefur VG vegna útlendingafrumvarpsins: „Þessi skref eru afskaplega þung“
Daníel E. Arnarson hefur yfir­gefið VG.

Daníel E. Arn­ars­son ritar færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann til­kynnir úrsögn sína úr VG.

„Í gær­kvöldi var útlend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra sam­þykkt. Frumvarp sem fjöldi mann­rétt­inda- og hjálp­ar­sam­taka hafa barist gegn enda skerðir það rétt­indi eins við­kvæm­asta og jað­ar­settasta hóp okkar sam­fé­lags; fólk sem leitar að alþjóð­legri vernd.“

Daníel segir að „það er ekki að ástæðu­lausu að frum­varpið mætti jafn­sterkri and­stöðu líkt og raun ber vitni. Þegar ég bauð mig fram í próf­kjöri VG 2021 þá var eitt af mínum áherslu­málum meiri mannúð þegar kemur að þessum hópi. Ég fékk fjölda fólks til að ganga til liðs við hreyf­ing­una, fólk sem var mér sam­mála í þessum efnum og ég fékk mik­inn stuðn­ing frá þessum ein­stak­lingum. Fyrir það verð ég ávallt þakk­látur.“

Hann bætir þessu við:

„Það eru engin stjórn­mál án ábyrgðar, og ég finn til ábyrgðar á þess­ari stundu. Ég var alla tíð á móti þessu frum­varpi og gerði mitt allra besta til þess að stöðva það. Það tókst ekki. Því verð ég að bera ákveðna ábyrgð og nokkrum mín­útum eftir að þing­fólk Vinstri grænna kaus með þessu frum­varpi þá skráði ég mig úr hreyf­ing­unni. Ekki ein­ungis von­brigð­anna vegna.“

Daníel segir að end­ingu að „ég hef unnið með VG í 17 ár, lengur en hálfa ævi. Ég horfi ekki bara á VG sem stjórn­mála­hreyf­ingu heldur er fólkið í VG fjöl­skyldan mín, fólk sem ól mig upp. Þess vegna eru þessi skref afskap­lega þung. Mér þykir enn afar vænt um fólkið í VG en því miður þá get ég ekki staðið á bak­við hreyf­ingu sem sam­þykkir skerð­ingu á rétt­indum til eins við­kvæm­asta hóp sam­fé­lags­ins.

Að lokum. Ég átta mig á að ég er lýð­ræð­is­lega kjör­inn vara­þing­maður hreyf­ing­ar­innar. Ef ég verð kall­aður inn á þing þá mun ég ekki taka sæti heldur vísa áfram á næstu mann­eskju á lista VG í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi