Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrrum dagskrárstjóri um sjónvarpsfréttir Rúv: „Svona klisjur pirra mig eða hlægja eftir atvikum“

Fyrrum dagskrárstjóri um sjónvarpsfréttir Rúv: „Svona klisjur pirra mig eða hlægja eftir atvikum“
Magnús R. Ein­ars­son

Fyrr­ver­andi dag­skrár­stjóri Rík­is­út­varps­ins gagn­rýnir sjón­varps­fréttir Rúv í nýrri færslu á Facebook. Segir hann meðal ann­ars að frétta­þulir séu „klæddir og greiddir eins og Garð­bæ­ingar á leið á árs­há­tíð.“

Magnús R. Ein­ars­son, fyrr­ver­andi dag­skrár­stjóri útvarps á Rúv skrif­aði for­vitni­lega færslu á Facebook. Í færsl­unni gagn­rýnir hann sjón­varps­fréttir Rúv, allt frá útliti og fasi frétta­þul­anna og í end­ur­tekn­ingar frétta í lok frétta­tím­ans. Á einum stað segir Magnús frétta­þul­ina vera form­fasta og íhalds­sama „í fram­komu og klæða­burði“. Þá nefnir hann einnig það sem hann kallar „óheppi­lega kæki og hækjur“ frétta­þula er þeir kynna og afkynna frétta­menn og tekur sem dæmi þegar frétta­mönnum er þakkað fyrir „vondar fréttir.“ Færsluna má lesa í heild hér fyrir neðan.

„Þegar ég er utan­lands þá horfi ég og hlusta stundum á fréttir Rík­is­út­varps­ins í sjón­varp­inu. Annars eig­in­lega ekki ein­hverra hluta vegna. Sjón­varps­fréttir voru eitt sinn fastur liður í kvöld­prógramm­inu hjá manni en ekki lengur. Ég hef til að mynda tölu­vert meiri áhuga á erlendum fréttum en inn­lendum og Rík­is­út­varpið sjón­varp full­nægir þeim áhuga tak­markað. Kvöld­frétta­tími sjón­varps­ins er soldið for­vitni­leg þátta­gerð. Það er búið að rápa með frétta­þátt­inn fram og til baka í kvöld­dag­skránni og hann hefur tekið ýmsum breyt­ingum i áranna rás eins og kennski eðli­legt má telj­ast. Flest er í föstum skorðum. Frétta­þul­irnir eru form­fastir, íhalds­samir jafnt í fram­komu og klæða­burði. Þeir hafa vissu­lega komið sér upp nokkrum óheppi­legum kækjum og hækjum þegar þeir kynna og afkynna frétta­menn, sem getur flækt þeim tungu um háls. Stundum er þetta pín­legt eins og þegar frétta­mönnum er þakkað fyrir að hafa sagt afar vondar fréttir. T.d. Frétta­maður: “ og ljóst að hér hefur greini­lega orðið gríð­ar­legt tjón“ – Þulur: „takk fyrir það Jón Jónsson.“ Svona klisjur pirra mig eða hlægja eftir atvikum. Þulirnir okkar eru þó oft­ast skýrir, vel mæltir og koma vel fyrir. Klæða­burður þul­anna er samt ein­kenni­lega hugs­aður. Þeir eru allir klæddir og greiddir eins og Garð­bæ­ingar á leið á árs­há­tíð. Upp­stríl­aðir. Og í engum tengslum við neyt­endur að því leyti. En eitt furðu­leg­asta dæmið um klæða­burð þula var samt þegar fréttin af dauðs­falli Elísa­betar ann­arrar Breta­drottn­ingar var lesin, þá klædd­ist þul­ur­inn svörtu sorg­ar­dressi. Ómægod, datt þá uppúr mér. Frétta­þátt­ur­inn hefst alltaf á útblásnum synta­þeys­ingi, svo koma helstu atriði frétta, í fyrra sinnið í þætt­inum. Þannig byrjar sjóið. Í gamla daga var lang­flottasta stefið notað, spilað á vibrafón, heiltóna­röð eftir Gunnar Reyni Sveins­son, ef ég man rétt. Það var org­inal, ein­falt og smart með skirskotun í eilífð­ina. Stefið sem not­ast er við núna boðar nán­ast ótíð­indi eða jafn­vel heimsendi á hverju kvöldi. Svo koma frétt­irnar í röð eftir því hversu áríð­andi og mik­il­vægar þær telj­ast fyrir almenn­ing. Oftast gengur þetta snurðu­laust fyrir sig. Frétta­þátt­ur­inn batn­aði mikið eftir að sjón­varps­menn komust loks að því að sjón­varps­frétt er nán­ast óskilj­an­leg ef hljóðið er óskýrt eða vantar, hversu flott sem myndefnið ann­ars er. Það var reyndar fyrir mörgum árum. Í lok frétta­tím­ans eru helstu frétt­irnar frá upp­hafi end­ur­teknar, þeim troðið oní okkur eins og við séum öll með kollek­tí­van athygl­is­brest og búin á gleyma öllu sem við heyrðum og sáum á und­an­förnum tutt­ugu mín­útum. Verst er svo að það er búið að búta niður fréttir af veðri og íþróttum, en það er nú ekki frétta­stof­unni að kenna heldur mark­aðs­öfl­unum á Efsta­leiti. Sem eðli­legt er þá er stundum lítið að frétta hjá fámennri þjóð á hjara ver­aldar en það boðar hins vegar mik­inn vanda hjá frétta­þætt­inum því það þarf að fylla tím­ann. Þá kom­ast oft skemmi­leg­ustu og furðu­leg­ustu frétt­irnar að. Oft líka svo­kall­aðar „næst­um­þvífréttir“, eins og „lá við stór­slysi þegar sprakk á vöru­bíl upp á heiði í þoku“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi