Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lætur vinstri menn hafa það óþvegið: „Menn halda því fram að fátækir séu alltaf að verða fátækari“

Lætur vinstri menn hafa það óþvegið: „Menn halda því fram að fátækir séu alltaf að verða fátækari“
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson fer mik­inn í hlað­varps­þætt­inum Ein pæl­ing á Vísir.is sem er í umsjón Þórarins Hjart­ar­sonar. Segir hann meðal ann­ars að stétt­ar­skipt­ing sé ekki til á Íslandi.

Aðstoða­maður Dóms­mála­ráð­herra, hinn umdeildi Brynjar Níelsson skóf ekki af því í nýju við­tali sem hann var í í hlað­varps­þætt­ingum Ein pæl­ing. Á einum stað í við­tal­inu er hann spurður út í Madame Butterly málið sem kom upp í íslensku Óperunni en Þórarinn spyr hann hvað honum finn­ist um það mál, þar sem Óperan var sökum um menn­ing­ar­nám. „Ég eig­in­lega skil ekki þessa vit­leysu,“ svar­aði Brynjar og brosti. Hann hélt áfram: „Leikrit er leik­rit sko. Og þetta er sviðs­list. Og þú ert að fara í hinu ýmsa heima. Þetta er ekki bara þinn heimur, í kringum þig. Við getum hugsað okkur jap­anskt leik­hús sem taki ein­hverjar bók­menntir um land­nema í Vestrinu. Og klæddu sig upp eins og þeir. Japanskt leik­hús getur þá sett á sig kúreka­hatt og setja það á svið, þó þeir séu jap­anskir leik­ar­arnir. Þetta er bara hluti af því. Þú ert að end­ur­spegla eitt­hvað sem er ekki endi­lega þekkt í þínum menn­ing­ar­heimi.“

Brynjar sagði svo að það sé alltaf eitt­hvað stríð í gangi, sé horft til baka í sög­unni. Það hafi til dæmis verið stétta­stríð sem hafi svo horfið þegar að sós­í­al­ism­inn hrundi. Þá hafi tekið við kynja­stríð. „Og nú er þetta orðið í bland, bar­átta kyn­þátta. Af því að nú eru komnir svo margir kyn­þættir á hverjum stað, sér­stak­lega hér á Vest­ur­löndum. Þá er komið þetta kyn­þátta­stríð. Það er eins og frelsið henti aldrei neinum. Það er alltaf ein­hver hópur móðg­aður. Ein­hverjum mis­boðið. En ef þú vilt lifa í frjálsu sam­fé­lagi, þá þarftu bara að umbera það að það er eitt­hvað leik­rit, sem getur verið um þinn kyn­þátt en hann er leik­inn af ein­hverjum allt öðrum. Og það er auð­vitað bara allt í lagi. Þetta er bara hluti af list­inni, hluti af frelsi lista­manns­ins. Það má gera hvað sem er. Við gerum grín að öldruðum. Við gerum grín að hvítum, mið­aldra Sjálf­stæð­is­mönnum.“

Þegar Þórarinn spurði hann hvað honum finn­ist um þá skýr­ingu sumra að til séu ákveðnir und­ir­ok­aðir minni­hluta­hópar sem ættu að vera und­an­skildir „gríni og glensi“ svar­aði Brynjar um hæl: „Þetta er alltaf sama gamla vinstri­mennskan, það er und­ir­okuð alþýðan, und­ir­ok­aðu kyn­þáttu, und­ir­ok­aðar konur, þetta snýst allt um þetta. Og ef þú ferð í þennan hóp, hverjir eru í þessu kynja­stríði? Þetta eru bara gamlir sós­í­alistar eftir að þetta stétta­stríð hvarf. Þeir eru meira að segja að reyna að rífa upp stétta­stríðið aftur núna. Þú sérð eitt­hvað leik­rit núna eftir Gunnar Helgason þar sem menn halda því fram að fátækir séu alltaf að verða fátæk­ari og allt sé að verða verra. Þetta er allt ein­hver þvæla. Þetta er bara rangt!“ sagði Brynjar og segir að menn séu enn að reyna að halda því fram að mun­ur­inn á milli ríkra og fátækra sé að aukast á Íslandi. „Ef þú ferð til Tenerife og ert á hót­eli. Þá er ég á hót­eli með öryrkj­anum, ég er á hót­el­inu með inn­flytj­and­anum, ég er á hót­el­inu með heildsal­anum og ég er á hót­el­inu með stór­kaup­mann­inum. Allir á sama hót­eli sko.“ Bætti hann því við að það væri ekk­ert stétta­stríð á Íslandi en „það eru nokkrir menn sem eiga verð­mæt fyr­ir­tæki en það er allt og sumt.“

Hér má sjá brot úr við­tal­inu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi