Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ella Stína beitir núvitund við innkaup: „Vel gjafir handa fólki sem það getur borðað“

Ella Stína beitir núvitund við innkaup: „Vel gjafir handa fólki sem það getur borðað“
Elín Kristín Guð­munds­dóttir

Mat­ar­frum­kvöð­ull­inn, Elín Kristín Guð­munds­dóttir, er neyt­andi vik­unnar að þessu sinni. Hún er gift Árna Sig­urðs­syni við­skipta­fræð­ingi. Þau búa þau í Kópavogi og eiga þrjú börn, tengda­son og hund. Elín rekur fyr­ir­tækið Ella Stína vegan og fram­leiðir vegan­vörur án allra auka­efna og við­bætts syk­urs. Þau byrj­uðu að selja eina teg­und af buffi en eru í dag með átta vörur á mark­aði og fleiri í far­vatn­inu.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég reyni að vera hag­sýn þegar ég kaupi í mat­inn og passa að við sóum ekki mat. Fjöl­skyldan ákveður í sam­ein­ingu hvað skal hafa á borðum svo allir fái eitt­hvað við sitt hæfi. Það minnkar lík­urnar á því að ég sé að eyða tíma í að versla inn og mat­búa eitt­hvað sem endar svo í rusl­inu. Ég er líka óhrædd við að frysta afganga og nýta aftur seinna sem sparar mikið og minnkar sóun tölu­vert. Ella Stína vegan er einnig í stöðugri vöru­þróun og kem ég því oft heim með afganga úr til­rauna­eld­hús­inu sem við nýtum í fjöl­breyttar mál­tíðir.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég hef alltaf átt auð­velt að búa til mat úr þeim hrá­efnum sem eru við hönd­ina og nýti afganga vel. Það er gott að eiga nóg í frysti sem hægt er að taka fram og bæta við nýju með­læti og sósu. Þá hefur mat­ur­inn öðl­ast alveg nýtt bragð og útlit og ekk­ert fer til spillis. Árið 2019 fór ég að beita núvit­und í tengslum við inn­kaup og hefur þetta breytt mínu kaup­mynstri til batn­aðar. Ég nýti þetta á hverjum degi og mæli hik­laust með að fólk kynni sér þessa aðferð. Einnig mæli ég með að reyna að end­ur­nýta fatnað. Á okkar heim­ili er reynt að fara vel með fötin svo þau dugi lengi og koma þeim áfram þegar fjöl­skyldu­með­limir eru hættir að nota þau.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég vel alltaf íslenskar mat­vörur fram yfir erlendar til að styðja við íslenska fram­leiðslu og minnka umhverf­is­á­hrif mat­ar­fram­leiðslu í leið­inni. Ég reyni einnig að kaupa hæfi­legt magn af mat miðað við þörf til að sporna við sóun. Litrík fæða úr plöntu­rík­inu er það sem við reynum að borða mest af og ber mat­ar­k­arfan þess merki með fjöl­breyttu græn­meti, ávöxtum, baunum og korni. Ég reyni að kaupa sem mest líf­rænt og forð­ast unnar vörum með langan lista af inni­halds­efnum sem ég þekki ekki. Þegar ég versla fatnað á mig þá hef ég það fyrir reglu að kaupa ekki sams­konar flíkur og ég á nema ég geti end­ur­nýtt þær gömlu. Þetta hefur orðið til þess að ég versla minna á mig en áður, sem er bæði gott fyrir umhverfið og veskið mitt.

Þegar ég vel gjafir handa fólki reyni ég að finna eitt­hvað sem það getur borðað eða ég veit að það getur nýtt.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég er svo­lítið veik fyrir því að kaupa ný úti­vistar-og íþrótta­föt og á erf­ið­ast með að draga úr kaupum á þeim þegar kemur að sjálfri mér. Einnig öllu sem við­kemur eld­hús­vörum sem auð­velda mér lífið í frum­kvöðla­starf­inu mínu.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Umhverf­is­vernd er eitt­hvað sem varðar okkur öll og það er ábyrgð okkar allra að passa upp á nátt­úr­una. Fjöl­skyldan er alltaf að reyna að betrumbæta sig í flokkun, veljum vörur sem eru inn­pakk­aðar í minna plast og erum hætt að nota einnota plast heima. Við hjá Ellu Stínu vegan veljum plast­lausar umbúðir utan um okkar vörur ef það er hægt til að leggja okkar lóð á vog­ar­skálar umhverf­is­verndar og gefa neyt­and­anum tæki­færi til að kaupa plast­lausa vöru. Dýra­vernd er okkur auð­vitað einnig hug­leikin og með því að neyta ekki dýra­vara og bjóða upp á íslenskar vegan­vörur þá erum við einnig að sinna umhverf­is­vernd.

Ég myndi ráð­leggja fólki að vera óhrætt við að prufa sig áfram í græn­kera fæðu sem hefur áhrif á lífstíls­sjúk­dóma og líka hefur áhrif á umhverfið okkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi