Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Haraldur Freyr: „Þú lagar ekki mistök með því að gera fleiri mistök“

Haraldur Freyr: „Þú lagar ekki mistök með því að gera fleiri mistök“
Haraldur Freyr Gíslason, forð­maður Félags leik­skóla­kenn­ara. Samsett mynd.

Jæja, er þetta ekki bara orðið gott? er yfir­skrift greinar sem Haraldur Freyr Gíslason, for­maður Félags leik­skóla­kenn­ara, skrifar og byrjar svona.

„Síðasta haust þegar fyrsta bylgja mót­mæla for­eldra í Ráð­hús­inu var í gangi rit­aði ég grein. Hún á jafn vel við í dag og fyrir nokkrum mán­uðum síðan. Stundum þarf bara að segja hlut­ina eins og þeir eru þó að sumir myndu segja að ég sé bara með sigg á hjart­anu. Stað­reyndin er þessi, öll heims­ins mót­mæli for­eldra í Ráð­hús­inu munu ekki ráð­ast að rót vand­ans, sem er að það þarf að fjölga kenn­urum með leyf­is­bréf í leik­skólum lands­ins ef hann á að geta staðið undir lög­bundnu hlut­verki sínu.“

Bætir þessu við:

„Eins og kemur skýrt fram í lög­unum er hlut­verk leik­skól­ans að tryggja börnum gæða menntun, upp­eldi og umönnun sem tekur mið af aldri þeirra og þroska. Það er alveg skýrt og hafið yfir allan vafa að „þjón­ustu­hlut­verk“ leik­skóla er ekki annað en nákvæm­lega þetta. Það er alveg hægt að skilja reiði yfir lof­orðum sem ekki hafa verið upp­fyllt. Ég vona að þeir flokkar í sveit­ar­fé­lögum lands­ins sem bera ábyrgð á þessum óupp­fylltu lof­orðum um leik­skóla­pláss, læri af þeim mis­tökum. Þú lagar hins vegar ekki þau mis­tök með að gera fleiri mis­tök. Sveit­ar­fé­lögin í land­inu verða að sam­mæl­ast um að hægja á vexti leik­skóla­stigs­ins og stíga skref til baka. Það þarf að kæla kerfið þannig að nýliðun nái að auka hlut­fall kenn­ara með leyf­is­bréf í leik­skólum lands­ins. Þær til­lögur að lausnum frá full­trúa í minni­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur, sem komu fram í Kast­ljós­inu síð­ast­lið­inn mánu­dag, eru sumar varla svara­verðar.“

Haraldur segir að „for­eldra­reknir og sjálf­stætt starf­andi leik­skólar þurfa að fylgja nákvæm­lega sömu lögum og reglu­gerðum og sveit­ar­fé­lögin. Þeir fram­leiða ekki leik­skóla­kenn­ara úr engu og hlut­fall kenn­ara með leyf­is­bréf í sjálf­stætt starf­andi leik­skólum er 11% lægra en hjá skólum reknum af sveit­ar­fé­lög­unum. Ég kalla eftir ábyrgri umræðu um leik­skóla­mál frá póli­tískt kjörnum full­trúum en ekki upp­hróp­unum og inn­pakk­aðri froðu um „skyndi­bita“ stækkun kerf­is­ins sem leysir engan vanda og mun bara gera starfs­að­stæður kenn­ara og barna í leik­skólum verri.“

Hann nefnir að „það er stað­reynd að það eru jákvæð teikn á lofti varð­andi fjölgun leik­skóla­kenn­ara. Samkvæmt tölum frá HÍ hefur verið umtals­verð fjölgun í leik­skóla­kenn­ara­nám­inu und­an­farin ár og mjög stór hópur útskrif­að­ist vorið 2022. Það eru í raun tvær breytur sem munu ráð­ast að rót vand­ans og fjölga kenn­urum með leyf­is­bréf enn frekar.

Borg­ar­full­trúi í meiri­hluta í Reykja­vík reyndi að færa rök fyrir því að ákvæði um að 2/3 þeirra sem starfa við upp­eldi og menntun í leik­skóla eigi að hafa leyf­is­bréf kenn­ara sé ein­hvern veg­inn að þvæl­ast fyrir að hægt sé að fjölga kenn­urum. Hvernig hann kemst að þeirri nið­ur­stöðu er mér hulin ráð­gáta. Það er hins vegar ekk­ert leynd­ar­mál að síð­ast þegar sam­tal var um lögin með hag­að­ilum, börð­ust sveit­ar­fé­lögin hart fyrir því að reyna að taka út ákvæði um að 2/3 hlutar þeirra sem sinna upp­eldi og menntun þurfi að hafa leyf­is­bréf.

Leik­skóla­kenn­arar munu aldrei sætta sig við að reglan um 2/3 verði numin á brott úr lög­unum. Ef það myndi ger­ast veit ég fyrir víst að stéttin myndi yfir­gefa starfs­vett­vang­inn dag­inn eftir. Það er hins vegar alveg rétt að við leng­ing­una á kenn­ara­nám­inu í leik-, grunn- og fram­halds­skólum féll aðsókn í námið tíma­bundið. Það eru samt 15 ár síðan og við erum fyrir löngu búin að ná aðsókn inn í námið á þann stað sem hún var fyrir laga­breyt­ing­una 2008 eins og borg­ar­full­trú­inn reyndar benti á. Samt heyrum við enn söng­inn um að lækka þurfi mennt­un­ar­kröfu kenn­ara í leik­skólum. Það er rangt hjá umræddum borg­ar­full­trúa að breyt­ingin á lögum 95/2019 hafi leitt til þess að flæði kenn­ara á milli skóla­stiga hafi auk­ist leik­skóla­kenn­urum í óhag. Hið rétta er að á önn minnk­aði flæðið um að með­al­tali 10.5 félags­menn leik­skóla­stig­inu í óhag við breyt­ing­arnar 2019. Þökkum við það helst þeim breyt­ingum sem gerðar voru í kjara­samn­ingum 2020. Flæði kenn­ara milli leik- og grunn­skóla er búið að vera leik­skóla­stig­inu í óhag svo lengi sem elsta fólk man og eitt leyf­is­bréf hefur enn sem komið er ekki aukið á þann vanda. Það er samt alveg þannig að leik­skóla­stigið þolir ekki fleiri ár af ójöfnu flæði kenn­ara á milli skóla­stiga.“

Haraldur segir að það sé „aðeins ein leið til að að jafna flæði kenn­ara á milli skóla­stiga. Ólíkur starfs­tími hefur verið helsta ástæða þess hvers vegna flæðið á milli skóla­stig­anna er kenn­urum á leik­skóla­stig­inu í óhag. Í kjara­samn­ingum 2022 var samið um sér­stakt fylgi­skjal um fram­kvæmd betri vinnu­tíma í leik­skólum. Með því meðal ann­ars gefst sveit­ar­fé­lögum gott tæki­færi til að sam­ræma starfs­tíma í leik- og grunn­skólum. Stað­reyndin er samt sú að Hafn­ar­fjörður er eina sveit­ar­fé­lagið sem, enn sem komið er, hefur sam­ræmt skóla­árið á milli leik- og grunn­skól­ans. Það gæti því hæg­lega gerst að kjósi kenn­arar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu slíkar starfs­að­stæður að þeir velji að starfa þar. Hafn­ar­fjörður myndi örugg­lega taka vel á móti þeim. Kennarar eru nefni­lega ekki tré sem skjóta rótum á einum stað. Það er ekki með neinum hald­bærum rökum hægt að segja að í und­an­förnum kjara­samn­ingum hafi ekki verið stigin stór skref í að gera leik­skóla­kenn­ara­stétt­ina sam­keppn­is­hæf­ari við aðra sér­fræð­inga í launum. Það er bara stað­reynd. Það eru samt nær allir sam­mála því að það verði að meta menntun enn betur til launa. Nema mögu­lega sveit­ar­fé­lögin sjálf þar sem umboðið sem þau veita til þess er stundum mjög tak­markað. Svo kvarta þau yfir því að þau fái ekki kenn­ara með leyf­is­bréf til starfa. Það er eitt­hvað veru­lega öfug­snúið hér.“

Haraldur birtir nokkur dæmi máli sínu til sönn­unar.

„Hér má sjá dæmi um laun kenn­ara með leyf­is­bréf: Leik­skóla­kenn­ari með enga starfs­reynslu 604.918 kr. Byrj­un­ar­laun. Byrjandi í dag er með meist­ara­próf. Leik­skóla­kenn­ari með 20 ára starfs­reynslu 705.256 kr. Deild­ar­stjóri með enga starfs­reynslu 655.503 kr. Deild­ar­stjóri með 20 ára starfs­reynslu 761.948 kr. Starfs­reynsla sem ófag­lærður starfs­maður í leik­skóla er metin á kjara­samn­ing FL/KÍ.

Svo má finna laun alls staðar þarna á milli eftir mis­mun­andi starfs­reynslu, fram­halds­menntun og starfs­heitum. Eins má finna hærri laun ef kenn­ari með leyf­is­bréf er með 150-240 ECTS ein­ingar umfram B.ed próf eða sam­bæri­legt bakkalár­próf. Eins má finna lægri laun ef ein­stak­lingar eru ekki með leyf­is­bréf til kennslu.“

Segir að end­ingu.

„Næsta skref til að gera laun kenn­ara enn sam­an­burð­ar­hæf­ari við sér­fræð­inga er jöfnun launa á milli mark­aða. Tölur frá Hagstofu Íslands sýna að laun sér­fræð­inga í fræðslu­starf­semi eru umtals­vert lægri en laun ann­arra hópa sér­fræð­inga. Sér­stak­lega á það við þegar sam­an­burð­ur­inn er gerður við laun sér­fræð­inga á almennum mark­aði. Það er komið að þeirri stundu að mark­viss skref verði stigin til að efna þetta lof­orð. Það mál verður hins vegar ekki leyst í þess­ari grein eða opin­berri umræðu heldur við samn­inga­borðið. Þar eru það sveit­ar­fé­lögin sjálf sem veita umboð til þess. Þau sömu og kvarta yfir því að þau fái ekki kenn­ara til starfa í leik­skólum lands­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi