Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samskiptastjóri Carbfix: „Umhverfismál eru ofmetinn málaflokkur – Yfirborð sjávar er ekki að hækka“

Samskiptastjóri Carbfix: „Umhverfismál eru ofmetinn málaflokkur – Yfirborð sjávar er ekki að hækka“
Ólafur Teitur Guðnason.

Í árs­byrjun 2022 var greint frá því að Carbfix, dótt­ur­fyr­ir­tæki OR, hefði ráðið sér „sam­skipta­stjóra,“ en í því emb­ætti felst að sinna kynn­ing­ar­málum og tala fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins í fjöl­miðlum. Sam­skipta­stjór­inn hjá Carbfix heitir Ólafur Teitur Guðnason.

Ólafur Teitur hefur lengi verið virkur í sam­fé­lags­um­ræð­unni og á árunum 2004-2007 skrif­aði hann viku­lega pistla í Við­skipta­blaðið þar sem frétta­flutn­ingur í íslenskum fjöl­miðlum var skoð­aður og greindur. Þessir pistlar hafa komið út í fjórum bókum sem heita ein­fald­lega: Fjöl­miðlar 2004–2007. Und­ir­tit­ill­inn á for­síðu er sá sami á öllum bók­unum fjórum: „Getur þú treyst þeim?“

Þegar pistl­arnir eru skoð­aðir liggur í augum uppi að svar Ólafs Teits sjálfs við þess­ari spurn­ingu er nei, við getum engan veg­inn treyst fjöl­miðlum. Rauði þráð­ur­inn í þessum bókum er sá að íslenskir fjöl­miðlar láti stýr­ast af áróðri og ann­ar­legum hags­munum til­tek­inna hópa. Sú mynd sem er dregin upp af fjöl­miðla­fólki er í meg­in­at­riðum sú að það fólk sem starfi við að miðla fréttum á Íslandi séu ýmist auð­trúa, óvand­virkt, latt, heimskt, illa inn­rætt, eða allt ofan­talið.

Það er svo­lítið ögrandi hjá Carbfix að ráða mann með slíkar skoð­anir í starf sem felst aðal­lega í því að tala við fjöl­miðla­fólk, en auð­vitað geta þannig aðgerðir verið jákvæðar ef þær verða til þess að halda blaða­mönnum við efnið. Umhverf­is­mál eru fyr­ir­ferð­ar­mikil í fjöl­miðlapistlum Ólafs Teits frá fyrstu árum ald­ar­innar og í skrifum sínum tekur hann sér ótví­rætt stöðu með því sem í kallað hefur verið „afneit­un­ar­iðn­að­ur­inn“ (e. The Denial Industry).

Skrif af þessu tagi voru áber­andi í heims­press­unni á þessum árum og sner­ust í meg­in­at­riðum um að efast um allar rann­sóknir sem bentu til þess að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum væru skað­legar umhverf­inu. Að sama skapi var geng­ist upp í því að hampa þeim vís­inda­mönnum sem drógu skað­semi hnatt­hlýn­unar í efa, jafn­vel þeim sem byggðu skrif sín á hæpnum for­sendum.

Olíu­fyr­ir­tækin veittu umtals­verðum fjár­munum til lobbý­hópa og hug­veitna sem tóku að sér að skrifa og miðla pistlum og greinum þar sem lofts­lags­vand­anum var afneitað með öllum mögu­legum ráðum. Mál­flutn­ingur þess­ara afla ein­kennd­ist gjarnan af því sem er kallað „slipp­ery slope“ í rök­fræð­inni. Þetta gekk út á að benda á þær full­yrð­ingar umhverf­is­vernd­ar­sinna sem virt­ust óná­kvæmar eða ekki nægi­lega traustar og nota þær til marks um að allur þeirra mál­staður væri byggður á sandi.

Inter­netið var enn ungt á þessum árum og hug­tök á borð við „fals­fréttir“ og „upp­lýs­inga­óreiða“ ekki komin almenni­lega fram. Í þessum anda starf­aði Ólafur Teitur á Við­skipta­blað­inu og beitti íróníu óspart í skrifum sínum til þess að grafa undan öllum þeim fréttum sem honum þóttu ein­kenn­ast af of mik­illi samúð í garð umhverf­is­vernd­ar­sinna.

Umhverf­is­vernd­ar­sjón­ar­mið voru að mati Ólafs Teits „mál­flutn­ingur [sem] bylur alls staðar í sífellu,“ svo vitnað sé beint í orð hans frá því í des­em­ber 2004.

Í fjöl­miðlapistlum Ólafs Teits eru dylgjur og útúr­snún­ingar meg­in­regla. Pistla­skrif­ar­inn hefur meiri til­hneig­ingu til að gefa hluti í skyn en að segja þá beint, en meðal þess sem hægt er að rifja upp þegar gripið er niður í fjöl­miðlapistla Ólafs Teits er eft­ir­far­andi:

Yfirborð sjávar er senni­lega ekki að hækka. Aðal­skýr­ingin á hita­stigs­breyt­ingum í and­rúms­loft­inu eru ekki gróð­ur­húsa­loft­teg­undir heldur mis­mun­andi mikil virkni sól­ar­innar. Þetta eru því nátt­úru­legar sveiflur sem óþarfi er að hafa nokkrar áhyggjur af (Fjöl­miðlar 2004, 263).

Sú hug­mynd að lofts­lags­breyt­ingar ýti undir virkni og skað­semi felli­bylja er „fárán­leg“ (Fjöl­miðlar 2005, 211).

Það hversu mikil áhrif mann­fólkið hefur á hlýnun jarðar er „umdeilt“ (Fjöl­miðlar 2005, 228).

Umfjöllun fjöl­miðla um bráðnun jökla ein­kenn­ist oft­ast nær af „hræðslu­á­róðri öfga­manna.“ Frétta­menn eru gin­keyptir fyrir þessum áróðri og þess vegna er ýmis­legt í fréttum sem reyn­ist „tóm þvæla þegar betur er að gáð“ (Fjöl­miðlar 2006, 93-94).

North-skýrslan („North Report“) kom út í júní 2006 og var afrakstur tólf vís­inda­manna af ólíkum sviðum. Skýrslan var ræki­lega rit­rýnd og skipti sköpum við að opna á umræður um lofts­lags­breyt­ingar hjá íhalds­sömum hópum í Banda­ríkj­unum en Sherwood Boehlert, for­maður þing­nefnd­ar­innar sem bar ábyrgð á skýrsl­unni, var þing­maður Repúblík­ana.

Nið­ur­stöð­urnar í skýrsl­unni voru á þá leið að hækk­anir á hita­stigi jarðar hefðu verið meiri á tutt­ug­ustu öld en nokkru sinni áður und­an­farin tvö­þús­und ár. Umsögn Ólafs Teits um þessar nið­ur­stöður var að þær væru „hrein og klár ósann­indi“ (Fjöl­miðlar 2006, 220).

Árið 2006 gerð­ust þau tíð­indi að Íslend­ingar voru farnir að losa meiri koltví­sýr­ing frá heim­ilum per ein­stak­ling heldur en allar hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar, og höfum við haldið topp­sæt­inu allar götur síðan.

Þetta sama ár, 2006, skrif­aði Ólafur Teitur í Við­skipta­blaðið:

„Þvert á móti hefur stór­lega dregið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á landi frá árinu 1990 – raunar meira en í flestum Evr­ópu­ríkjum“ (Fjöl­miðlar 2006, 326).

Fjöl­miðla­menn gefa sér yfir­leitt gagn­rýn­is­laust að hlýnun jarðar sé af manna­völdum. Stað­reyndin er hins vegar sú að við vitum þetta ekki fyrir víst (Fjöl­miðlar 2007, 65).

Frétta­flutn­ingur um svifryks­mengun í Reykja­vík er stór­lega ýktur og á skjön við öll töl­fræði­leg gögn um málið (Fjöl­miðlar 2007, 66-71).

Umhverf­is­mál eru stór­lega ofmet­inn mála­flokkur. Kannanir sýna að fáir kjós­endur telja þau vera mik­il­væg­asta mál­efni næsta kjör­tíma­bils. Ofurá­hersla fjöl­miðla á umhverf­is­mál er þannig til marks um ann­ar­lega hags­muni fjöl­miðla­manna. Þetta kallar Ólafur Teitur „umhverfis-falsið“ (Fjöl­miðlar 2007, 108-109).

Á meðal þeirra mála sem Ólafur Teitur skrif­aði mest um árið 2007 var íbúa­kosn­ing í Hafn­ar­firði um stækkun álvers­ins í Straums­vík. Meg­in­stefið í þeim skrifum var að umfjöllun fjöl­miðla, sér­stak­lega RÚV, hafi verið óvil­höll og ósann­gjörn. Þetta hafi leitt til þess að Hafn­firð­ingar hafi að lokum kosið gegn stækk­un­inni.

Þessi skrif Ólafs Teits voru for­svars­mönnum Alcan svo þókn­an­leg að hann var ráð­inn upp­lýs­inga­full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins árið 2008 og gegndi því starfi í tæpan ára­tug. Þetta var sama ár og alþjóð­lega námu­vinnslu­fyr­ir­tækið RioTinto keypti Alcan, en það fyr­ir­tæki á sér ára­tuga langa sögu af umhverf­is­spjöllum og mann­rétt­inda­brotum víða um heim­inn.

Það þarf sterk bein til að koma fram sem málsvari þess háttar fyr­ir­tækis á opin­berum vett­vangi og for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins hér­lendis sáu í hendi sér að orð­hákur eins og Ólafur Teitur væri kjör­inn í hlut­verkið.

Árið 2017 söðl­aði Ólafur Teitur um og varð aðstoð­ar­maður Þórdísar Kol­brúnar Gylfa­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra. Örfáum dögum eftir ráðn­ing­una fund­aði ráð­herra með Rann­veigu Rist, for­stjóra Rio Tinto á Íslandi þar sem línur voru lagðar fyrir kom­andi verk­efni. Þegar Þórdís Kolbrún varð utan­rík­is­ráð­herra árið 2021 voru mál­efni stór­iðj­unnar ekki lengur á hennar borði. Af því til­efni ákvað Ólafur Teitur að láta af störfum sem aðstoð­ar­maður hennar.

Um svipað leyti var til­kynnt að Rio Tinto og Carbfix hefðu tekið höndum saman um að fanga kolefni frá álver­inu í Straums­vík. Fyr­ir­hugað er að koma upp mót­töku- og förg­una­stöð fyrir kolefni á lóð álvers­ins þar sem mögu­legt yrði að farga 3 millj­ónum tonna af kolefnum árlega. Ef þær áætl­anir koma ekki til með að stand­ast og afköstin verða minni mun stöðin engu að síður vera rós í hnappa­gatið hjá Rio Tinto og gæti orðið til þess að vinna mjög á móti losun álvers­ins í Straums­vík.

Losun álvers­ins er um 1,6 millj­ónir tonna á ári. Álverið mun eftir sem áður losa brenni­stein­s­t­ví­oxíð, blý, svifryk og ýmis flú­or­sam­bönd líkt og hingað til. Carbfix, fyr­ir­tækið sem við héldum að væri fyrsta skrefið í að leysa lofts­lags­vand­ann, hefur ákveðið að láta sér nægja að vera bara stofustáss í Straums­vík.

Ólafur Teitur, sem starfar nú hjá Carbfix, er sem sagt kom­inn aftur heim.

Í mars 2023 hófst umræðan um mögu­leik­ann á nýrri íbúa­kosn­ingu í Hafn­ar­firði vegna fram­kvæmd­anna sem standa fyrir dyrum í Straums­vík. Oddviti VG í Hafn­ar­firði benti á að verk­efni Carbfix væri sam­bæri­legt við stækkun álvers­ins og þau rök sem hefðu gilt fyrir íbúa­kosn­ingu árið 2007 hlytu því að vera enn í gildi. Ólafur Teitur svar­aði þessu í Morg­un­út­varp­inu á Rás tvö og taldi var­huga­vert að fara út í íbúa­kosn­ingu vegna máls­ins:

„Lang­flestir Hafn­firð­ingar myndu taka undir það, sem muna eftir því, hvort sem þeir voru fylgj­andi eða á móti stækkun álvers­ins, að það var gríð­ar­lega erfitt fyrir bæinn og skildi íbúa eftir í sárum, því þetta voru hatrömm átök, við skulum við bara segja það.“

Ólafur Teitur tal­aði fyrir stækkun í Straums­vík í nafni stór­iðj­unnar árið 2007. Sami Ólafur Teitur talar fyrir stækkun í Straums­vík árið 2023, en nú í nafni umhverf­is­verndar.

Rök­semdir Ólafs Teits gegn lýð­ræð­is­legri kosn­ingu er varðar skipu­lag bæj­ar­ins gætu í sjálfu sér gilt gegn kosn­ingum almennt: Til hvers að vera að leggja það á fjöl­skyldur að kjósa alla þessa ólíku flokka? Hvernig haldið þið að fólki líði að þurfa að sitja við kvöld­mat­ar­borðið þar sem pabb­inn kaus kannski Framsókn, mamman VG og dóttirin Sam­fylk­ing­una? Viljið þið virki­lega sundra heilu fjöl­skyld­unum með hatrömmum átökum?

Lyk­il­spurn­ingin sem eftir stendur varðar við­horf Ólafs Teits til lofts­lags­mála. Maðurinn sem hafði atvinnu af því að draga úr lofts­lags­vand­anum, efast um hann og skjóta mál­stað umhverf­is­vernd­ar­sinna í kaf með skrifum sínum, starfar nú sem málsvari fyr­ir­tækis sem er stofnað utan um það verk­efni að draga úr losun koltví­sýr­ings.

Er Ólafur Teitur búinn að skipta svona ræki­lega um skoðun á þessum mála­flokki?

Ef svarið er nei, finnst þeim hjá Carbfix þá ekk­ert und­ar­legt að láta þannig mann tala sínu máli á opin­berum vett­vangi?

Eða hvað?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi