Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erna Hrönn fór í magaminnkun og missti fimmtíu kíló: „Ég sá ekki fram á lengra líf“

Erna Hrönn fór í magaminnkun og missti fimmtíu kíló: „Ég sá ekki fram á lengra líf“
Erna Hrönn Ólafs­dóttir söng­kona

Söng­konan Erna Hrönn Ólafs­dóttir fór í maga­minnkun fyrir einu og hálfu ári síðan og missti í kjöl­farið fimm­tíu kíló. Erna Hrönn sem er fjör­tíu og eins ár í dag útskýrir hvernig hrað­inn í sam­fé­lag­inu og lífs­gæða­kapp­hlaupið hafi ollið því að fyrir tveimur árum síðan hafi verið tekið í taumana hjá henni og hún stoppuð af.

Erna segir frá reynslu sinni í ein­lægu við­tali hjá Felixi Bergsyni í þætt­inum Fram og til baka.

„Ég hef gert mikið og margt og upp­lifað ansi marga hluti,“ segir Erna Hrönn og útskýrir hvernig í lok árs 2019, skömmu eftir brúð­kaupið hennar, hafi hún kynnst því sem hún kallar lífs­bruna. „Kulnun sem tók mig gjör­sam­lega niður á jörð­ina,“ segir Erna og útskýrir hvernig í kjöl­farið hún hafi kom­ist að í starfsend­ur­hæf­ingu hjá VIRK.

„Ég sá ekki fram á lengra líf,“, tjáir Erna og segir frá þegar hún sat hjá sál­fræð­ingi og útskýrir hvernig henni, á þessum myrka stað, fannst hún hafa upp­lifað allt sem hún þyrfti. „Það skringi­leg­asta að segja frá er hversu sátt ég var að kveðja lífið.“ Um Ernu Hrönn fer hrollur þegar hún hugsar til baka þar sem að í dag henni þykir fásinna þar sem hún eigi svo margt eftir ólifað. Enda á góðum stað í dag og sátt við lífið og sjálfa sig.

VIRK

Erna fékk inn hjá VIRK rétt fyrir Covid og fékk fyr­ir­mæli ráð­gjafa síns um að aðhaf­ast ekk­ert. Best væri fyrir hana að hvíl­ast og sofa. Á tveimur árum fékk hún tíma til að vinna í sínum málum og styrkja sig and­lega, kjarkinn til að klára óupp­gerð mál. „Þarna voru mál sem var erfitt að „feisa““,og útskýrir hvernig hún hafi fengið rými til að klára bakkalár­gráðuna sem hún lauk með prýði. Hún lýsir því hvernig ánægjan við að ljúka óupp­gerðum hlutum sem setið höfðu á hak­anum hafi verið hvati til frek­ari bóta og ýtt henni til að sjá ljósið.

Efnaskiptaaðgerð og magaermi

„Ég fór í efna­skipta­að­gerð og maga­minnkun, maga­ermi. Það var svo stór og góð ákvörðun […] í kjöl­far á þessum tveimur árum þar sem ég tók mig í gegn var ég komin á ein­hverja enda­stöð lík­am­lega. Það var svo leið­in­legt, þetta dans­aði ekki saman. Ég var rosa­lega orku­mikil í hug­anum á meðan lík­aman­inn sagði stopp,“ segir Erna Hrönn og útskýrir hvernig hún hafi glímt við yfir­þyngd, vefja­gigt og lifað á verkja­lyfjum. Orkulaus. Við útskrift­ina hjá VIRK voru næstu skref örorka, ein­fald­lega vegna lík­am­legra kvilla Ernu.

„Ég ákvað það að það væri ekki mín enda­stöð,“ segir Erna sem tók upp veskið og ákvað að sækja um að kom­ast í maga­minnk­un­ar­að­gerð og komst að tveimur mán­uðum síðar. Aðgerðin var dýr útskýrir hún en segir hana sann­ar­lega hafa verið hverrar krónu virði.

„Því í dag, einu og hálfu ári síðar, er ég búin að missa fimm­tíu kíló,“ segir Erna Hrönn og lýsir létt­inum ekki ein­ungis lík­am­lega heldur einnig and­lega. Að geta staðið sátt fyrir framan speg­il­inn eða uppi á sviði og verið sátt með kon­una sem þar er.

Óend­an­lega sátt með lífið segir Erna Hrönn að end­ingu: „Í dag er ég óstöðv­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi