Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Barðavogsmálið: „Sá annan liggja á jörðinni en hinn var að stappa á bringunni á þeim sem lá“

Barðavogsmálið: „Sá annan liggja á jörðinni en hinn var að stappa á bringunni á þeim sem lá“
Photo: ja.is Mynd: Lubbi

Líkt og fram hefur komið í fréttum í dag var aðal­með­ferð í svo­kall­aða Barða­vogs­mál­inu tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Þar var skýrla tekin af Magnús Aron Magn­ús­son, sem ákærður er fyrir að valda dauða Gylfa Begmanns Heim­is­sonar í júní í fyrra. Einnig var rætt við vitni í mál­inu sem og lög­regl­una sem kom að því. Hér er vitn­is­burður vitna:

„Ég var bara að grilla og heyri skarkala hjá hús­inu við hlið­inni á mínu. Ég sá ekk­ert en fór inn og kom svo aftur og sá þá tvo menn. Sá annan liggja á jörð­inni en hinn var að stappa á bring­unni á þeim sem lá. Mér sýnd­ist hann anda ennþá. Ég hljóp inn og bað kon­una mína að hringja í lög­regl­una og fór aftur út. Svo sá ég að mað­ur­inn virt­ist hættur að anda. Bað þá kon­una að biðja um sjúkra­bíl líka því það leit út eins og verið væri að drepa mann­inn,“ sagði fyrsta vitnið sem steig í vitna­stúku en hann bjó í næsta húsi við þann ákærða.

Sagði vitnið að mað­ur­inn sem spark­aði hafi haldið á síma en hann hafi ekki vitað hvort hann hefði verið að taka myndir, senda skila­boð eða hringja.

Aðspurður af sækj­anda seg­ist hann ekki hafa verið langt frá átök­unum, ekki nema sex til átta metrum frá. Segir hann að afl hafi verið í því er sá ákærði stapp­aði á bring­unni á þeim sem lá á jörð­inni og að hann hafi stappað nokkrum sinnum á honum.

„Þegar ég kom aftur út sá ég að hann var að dangla í höf­uðið á honum. Eða sparka. Í nokkur skipti. Ekki gríð­ar­legt afl en samt eitt­hvað. Hann sýndi aldrei nein við­brögð.
Ég sá hann ekki nota hend­urnar.“

„Áttarðu þig á því hvað þetta stóð lengi yfir?“

„Það voru ekki margar mín­útur. Ég tók ekki tím­ann samt. En ég fór inn að sækja disk eða eitt­hvað og fer svo aftur út.“ Kann­að­ist ekk­ert við hann.

Verjandi: „Það liggur fyrir að þetta er á laug­ar­degi, gott veður, þú að grilla. Varstu ekki búinn að drekka?“ Vitnið svar­aði því neit­andi.
„Mannstu þetta vel?“ „Já, ég man þetta mjög vel,“ svar­aði vitnið.

Þá steig eig­in­kona vitn­is­ins í stúku og sagði frá sinni hlið: „Ég var að horfa á frétt­irnar þegar mað­ur­inn minn kom inn og bað mig að hringja í lög­regl­una. Ég geri það. Síðan kemur hann fljót­lega aftur og biður mig um að biðja um sjúkra­bíl því hann haldi að það sé verið að drepa mann. Ég kem svo út og sé mann sparka í höf­uðið á liggj­andi manni og efri hluta lík­am­ans. Annar er liggj­andi hreyf­ing­ar­laus á jörð­inni og hinn að sparka i hann. Sá mörg spörk. Það var af afli. Ég sá enga hreyf­ingu á þeim liggj­andi.“ Sagðist hún svo ekki hafa getað horft á meira og farið inn aftur.

Dómari spyr: „Þú seg­ist hafa séð þetta en ekki alveg getað horft á þetta? Ég er alveg viss um þetta, ég sá allt í ein­hvern tíma en fór svo inn.“

Þriðja vitnið var kallað í stúku: „Sko það sem ég sá þegar ég kem niður er sem sagt maður að pota í annan mann, sparka í annan mann sem er liggj­andi. Sá sem er að sparka er með sím­ann á lofti. Ég veit ekki hvað hann var að gera með hann samt.“

Sækjandi: „Geturðu lýst potinu?“

Vitnið: „Ég horfi ekki lengi á þetta en það var eins og hann væri að pota í hann með löpp­inni.“

„Hreyfð­ist hann?“

Vitnið: „Ekki svo ég viti,“ svar­aði vitnið og sagð­ist ekki hafa séð hversu oft hann potaði eða spark­aði í hann né hvar.

„Sástu eitt­hvað meira?“

Vitnið: „Aðallega bara end­ur­lífg­un­ar­til­raunir og hand­tök­una.“

Verjandi: „Pota eða sparka seg­irðu? Í skýrsla­tök­unni dag­inn eftir ertu meira á því að þetta hafi verið pot, frekar en spark. Þú talar ítrekað um að pot.“

Vitnið seg­ist ekki viss með það í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi