Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýjasti stórmeistarinn: „Langar að það komi upp kynslóð á eftir mér sem verður heimsklassa í skák“

Nýjasti stórmeistarinn: „Langar að það komi upp kynslóð á eftir mér sem verður heimsklassa í skák“
Vignir Vatnar Stef­áns­son, stór­meist­ari í skák. Mynd / Skák.is.

Vignir Vatnar Stef­áns­son er nýjasti stór­meist­ari Íslands í skák; hann er við­mæl­andi hlað­varps­ins Íþrótta­varpið sem er á RÚV.

Þar fer Vignir um víða, ræðir fer­il­inn, kenn­ara­hlut­verkið, skák­á­hrifa­valda sem og hug­mynd­ina um hinn ham­ingju­sama skák­mann­inn.

Hinu frá­bæra afreki sínu nái Vignir þann 22. mars síð­ast­lið­inn; hann náði síð­asta áfanga stór­meist­ara­tit­ils­ins í febr­úar: En Ttil að verða stór­meist­ari þarf að ná 2.500 ELO-stigum og sýna svo í þrí­gang stór­meist­ara­leik á móti, til að sýna fram á að tit­ill­inn sé algjölega verð­skuld­aður.

Vignir segir að þarna hafi draumur ræst hjá honum.

„Þetta er búinn að vera draum­ur­inn síðan ég var 6 ára. Ég er ennþá að jafna mig á þessu.“

Bætir við:

„Í byrjun 2022 náði ég áfanga í byrjun jan­úar, og það var bara létt. Það gekk allt upp. Svo mán­uði síðar náði ég aftur áfanga þannig að ég hélt að þriðji kæmi bara strax. En svo tók hann ár. Ég var orð­inn smá stress­aður með síð­asta áfang­ann.“

Vignir byrj­aði ungur að iðka skák­ina; fór hann á sitt fyrsta mót 6 ára gam­all, Torgmót Fjölnis. Þar vakti hann athygli.

„Þar var þáver­andi for­maður Skák­sam­bands­ins, Björn Þor­finns­son, sem er reyndar rit­stjóri DV í dag. Hann sá mig tefla og sagði:

„Núna fer þessi í skák, hann er ekk­ert að fara að gera neitt annað þessi!“ og hann tók mig í einka­tíma og allt í einu var ég bara… ég var fljótt orð­inn mjög efni­legur.“

Vignir er ein­ungis tví­tugur, en hefur miklum tíma ævi sinnar í skák­flakk um heim­inn til að tefla; við­ur­kennir að það geti orðið ansi ein­mana­legt.

„Ég var mjög hepp­inn með það að ég slys­að­ist inn í mjög gott félags­líf. En ég er oft að ferð­ast um heim­inn og oft einn. Það styrkir mann og byggir karakter en ég ætla ekki að gera það til langs tíma. Ég hef engan áhuga á að búa í ferða­tösku með enga fjöl­skyldu og vera ham­ingju­samur með eitt­hvað skák­borð á ein­hverju kaffi­húsi í Brasilíu eða eitt­hvað. Það meikar engan sens fyrir mér.“

Vignir hefur verið dug­legur að aðstoða; kennir yngri og óreynd­ari skák­mönnum.

„Ég virki­lega reyni mitt allra besta, ég vil virki­lega gefa af mér. Við erum alveg skák­þjóð en við erum efni í frá­bæra þjóð í skák­inni eins og við vorum árið 1990. Þá vorum við heimsklassa. Mig langar rosa­lega mikið að það komi upp kyn­slóð á eftir mér sem verður heimsklassa í skák, eða alla­vega einn eða tveir sem verða heimsklassa.“ „Það er mik­il­vægt fyrir mig líka, sem mann­eskja, að gefa af mér á sviði sem ég get gert það. Ég var alltaf að ferð­ast til að klára áfang­ann; síð­ustu tvö árin er ég búinn að vera út um allt að tefla. Núna verð ég heima í apríl og þá verð ég bara að kenna. Ég þarf að passa mig bara að þeir vinni mig ekki!“ segir hann og hlær.

„Ég ætla að kenna þeim nógu mikið en ég ætla að halda áfram að bæta mig sjálfur. Eftir að ég varð stór­meist­ari verð ég að passa mig á gegn hverjum ég tapa. Maður heyrir þetta alltaf: „Já, ég vann stór­meist­ara hérna,“ og ég ætla ekki að vera sá stór­meist­ari.

Sam­fé­lags­miðlar og vef­streymi spila sífellt stærri rullu í skák­heim­inum, eins og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Upp hafa sprottið skák­á­hrifa­valdar, skák­fólk sem streymir sínum skákum á vefnum og er með millj­ónir fylgj­enda á sam­fé­lags­miðlum. Vignir Vatnar vill horfa nær.

„Það er alltaf verið að reyna að fá mig til að streyma. Mig langar frekar að vera skák­á­hrifa­valdur á Íslandi. Ég hef engan áhuga á að verða frægur, eitt­hvað stjarn­fræði­lega frægur. Það er glatað. Ég vil bara að fólk þekki mig smá á Íslandi fyrir skák, það er frá­bært fyrir mig. Þetta er frá­bært sem þau [skák­á­hrifa­vald­arnir] gera, fyrir skák­ina, að dæla inn Youtube-víd­eóum. Ég held ég stefni ekki í þann pakka.“

„Þú vilt þá frekar vera næsti Jóhann Hjart­ar­son en næsti Magnus Carlsen?“

„Já, þetta er mjög orðað hjá þér. Jóhann fór í lög­fræð­ina, ég geri það senni­lega ekki en ég er til í að vera eins og Jóhann upp á það að eiga fjöl­skyldu og vera ham­ingju­samur. Hann teflir ennþá og hefur ógeðs­lega gaman af því. Hann elskar þetta ennþá.“ „Það er æðis­legt að horfa á hann, bara fyrir mig. Hann áttar sig ekki á því hvað það gerir mikið fyrir mig að sjá hann svona glaðan í þessu. Ham­ingju­samur skák­maður. Þeir eru oft ekk­ert mjög ham­ingju­samir þessi skák­menn sem eru 16 tíma á dag að gera ekk­ert annað, orðum það svo­leiðis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi