Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorbjörn bjargaði 42 mönnum frá bráðum dauða

Þorbjörn bjargaði 42 mönnum frá bráðum dauða
Áhöfnin á Jóni Bald­vins­syni. Ljós­myndin er tekin í Grinda­vík. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Aðfara­nótt 31. mars árið 1955 vann Grind­víska björg­un­ar­sveitin Þorbjörn fáheyrt afrek er hún bjarg­aði heilli áhöfn tog­ar­ans Jóns Bald­vins­sonar, alls 42 manns. Er um að ræða stærstu björgun áhafnar á vegum björg­un­ar­sveitar Slysa­varn­ar­fé­lags Íslands í sögu félags­ins. Jón Bald­vins­son hafði strandað við Reykja­nes á leið sinni vestur á Eld­eyj­ar­banka, klyfj­aður af salt­fiski. Báturinn gjör­eyði­lagð­ist en ekki einn maður beið bana.

Blaðið Fálkinn sagði svo frá strand­inu:

Togarinn Jón Bald­vins­son strandar við Reykja­nes

Aðfara­nótt fimmtu­dags­ins 31. mars strand­aði tog­ar­inn Jón Bald­vins­son við Reykja­nes og gjör­eyði­lagð­ist. Björg­un­ar­sveit slysa­varn­ar­deild­ar­innar „Þor­björns“ í Grinda­vík bjarg­aði allri áhöfn skips­ins, 42 mönnum. Með þessu er enn á ný höggvið skarð í hinn íslenska tog­ara­flota á þessum vetri, þó að svo giftu­sam­lega tæk­ist til, að mann­tjón yrði ekk­ert við skips­skaða þennan. Togarinn var að koma af Sel­vogs­banka með tals­vert af salt­fiski inn­an­borðs og ætl­aði að fara vestur á Eld­eyj­ar­banka eða vestur undir Jökul. Nokkru fyrir klukkan fjögur um nótt­ina strand­aði tog­ar­inn og sendi út neyð­ar­skeyti. Var björg­un­ar­sveit Slysa­varna­deild­ar­innar „Þor­björns“ í Grinda­vík kvödd á vett­vang, en á strand­stað­inn er 10—15 kíló­metra leið, sem víða er mjög sein­farin. Vita­vörð­ur­inn á Reykja­nesi, Sigurjón Ólafsson, hafði séð neyð­ar­blys frá skip­inu, og varð liann fyrstur á strand­stað­inn. Togarinn hafði siglt upp í brim­garð­inn undir Hrafn­kels­staða­bergi, rétt hjá litla vit­anum á Reykja­nesi, en skammt þar frá strand­aði oliu­skipið Clam, eins og mönnum er ennþá í fersku minni. Nokkru fyrir klukkan 7 um morg­un­inn var björg­un­ar­sveitin komin á strand­stað­inn, og kl. 20 mín. fyrir 9 var búið að bjarga allri áhöfn­inni í land. Skip­stjór­inn, Þórður Hjör­leifs­son, fór síð­astur frá borði. Björg­un­ar­starfið gekk mjög greið­lega og áfalla­laust, enda er sveitin skipuð vönum björg­un­ar­mönnum. Formaður hennar er Tómas Þor­valds­son, en Sigurður Þor­leifs­son er for­maður Slysa­varna­deild­ar­innar „Þor­björns“. Skip­brots­menn nutu hinnar bestu aðhlynn­ingar hjá vita­varð­ar­hjón­unum á Reykja­nesi, og þegar til Grinda­víkur kom, bauð kven­fé­lagið á staðnum öllum til hádeg­is­verðar. Að því búnu héldu skip­brots­menn­irnir til Reykja­víkur. Þegar þetta er ritað, standa sjó­próf enn yfir, svo að ekki er full­víst um orsök slyss­ins.

Jón Bald­vins­son við strand­stað
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi