Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Prins Póló minnst: „Eitt af því síðasta sem hann sagði áður en hann kvaddi“

Prins Póló minnst: „Eitt af því síðasta sem hann sagði áður en hann kvaddi“

Svavar Pétur Eysteins­son, gjarnar þekktur undir lista­manna­nafn­inu Prins Póló, lést í sept­em­ber síð­ast­lið­inn eftir ára­langa bar­áttu við krabba­mein. 

Ekkja hans, Berglind Häsler er ásamt þeim Birni Krist­jáns­syni og Benna Hemm Hemm í list­rænni stjórn Havarí sem heldur Hátíð hirð­ar­innar þann 26.apríl næst­kom­andi, á afmæl­is­degi Svavars heit­ins. Hátíðin er í raun stórir tón­leikar og er haldin til fagn­aðar á afmæl­is­degi hans.

„Svavar Pétur var ein­stakur lista­maður sem hafði mikil áhrif á okkur öll. Hann var alltaf hvetj­andi og dríf­andi. Nennti ekki að velta sér upp úr hlut­unum og hafði mikla þörf til að láta gald­ur­inn ger­ast. Í þessum anda langar okkur að minn­ast hans og blása í lúðra á afmæl­is­degi hans,“ segir í til­kynn­ingu frá Hirðinni.

Svavar var mennt­aður ljós­mynd­ari og graf­ískur hönn­uður en var vin­sæll á meðal þjóð­ar­innar fyrir tón­list sína og texta­smíði. Hann samdi og spil­aði með hljóm­sveit­unum Múl­dýr­inu, Rúnk og Skakkamanage. Svavari var margt til lista lagt. Ásamt eig­in­konu sinni, Berg­lindi, rak hann líf­ræna ræktun á Berufirði til margra ára. Hjónin voru frum­kvöðlar í fram­leiðslu á íslensku græn­met­is­fæði.

Berglind segir í sam­tali við Vísi að margir tón­list­ar­menn hafi flutt lög Svavars í jarða­för hans í ein­stak­lega fal­legum útsetn­ingum. Mikið var spurt um hvort gera ætti meira úr þessum flutn­ingi lag­anna .Það var þá tekin ákvörðun um að halda tón­leika til minn­ingar um lista­mann­inn. „Þannig að úr varð að við ákváðum að gera þetta aftur en í þetta sinn viljum við fagna lífi hans og gera þetta að hátíð,“ segir Berglind í sam­tali við Vísi.

Svavar og Berglind.

Berglind og Svavar stofn­uðu hljóm­sveit­ina Skakka­mannage fljót­lega eftir að sam­band þeirra hófst og mun hún koma fram á tón­leik­unum í fyrsta sinn í áraraðir. „Þegar við fengum þessa hug­mynd þá hentum við bara út net­inu til að sjá hverjir vildu vera með og svo bara sögðu allir já. Þannig að þetta varð rosa­lega stórt en það eru fimmtán bönd og hátt í sex­tíu tón­list­ar­menn sem koma að þessu.“

Allur ágóði af miða­sölu rennur í minn­ing­ar­sjóð Svavars sem mun árlega úthluta skap­andi fólki með góðar hug­myndir fjar­magni. „Að þú sjáir að þarna sé ein­hver kandídat sem er lík­legur til að fram­kvæma það sem honum dettur í hug. Svavari fannst það eiga að vera nóg. “

Margir hæfi­leik­a­ríkir tón­list­ar­menn koma fram á hátíð­inni. Þeir flytja sín eigin lög í bland við þau sem samin eru af Svavari.

Berglind segir frá einum af loka­orðum Svavars til hennar. „Eitt af því síð­asta sem hann sagði áður en hann kvaddi var að hvetja okkur til að halda áfram að hafa gaman. Við verðum að verða við því eins og við getum.“

Tón­leik­arnir verða haldnir í Gamla Bíó á afmæl­is­degi Svavars, þann 26 apríl. Miðasölu og nán­ari upp­lýs­ingar má nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi