Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sekur um kynferðisbrot gegn unnustu frænda síns: „Væntanlega sé ég eftir því sko“

Sekur um kynferðisbrot gegn unnustu frænda síns: „Væntanlega sé ég eftir því sko“
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands

Ungur maður var dæmdur sekur í hér­aðs­dómi Aust­ur­lands í gær „fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni, með því að hafa aðfara­nótt 14. ágúst 2022, inni í her­bergi, strokið yfir rass A og strokið yfir og káfað á kyn­færum hennar, allt utan­klæða, þar sem hún lá upp í rúmi.“

Brota­þoli og ger­andi voru í sama vina­hópi. Vina­teiti var haldið heima hjá brot­ar­þola en hún bjó hjá þáver­andi unnusta sínum og fjöl­skyldu hans. Ger­and­inn er frændi unnusta brota­þola. Í við­ur­vist tveggja vina sinna káf­aði hann á brota­þola, bæði á rassi og kyn­færum en hann hélt að hún væri sof­andi. Vinirnir tveir voru að spila tölvu­leik og sneru baki í brota­þola og ger­anda. Eitthvað var um neyslu áfengis í gleð­skapnum en ekki er að fullu ljóst hversu mörg þeirra voru undir áhrifum. Nokkuð víst þykir þó að ger­and­inn hafi verið tals­vert ölv­aður.

„Aðspurður  af  rann­sak­ara  um  afstöðu  til  kæru­efn­is­ins  og  hvort  hann  hefði brotið gegn brota­þola svar­aði ákærði sam­kvæmt skýrslu lög­reglu: „Ég  veit  ekki  hvað  ég  á  að segja sko. … Já, ég alveg geri það sko. …Og vænt­an­lega sé ég eftir því sko. …Og ekki bara það heldur þú veist ég bara, þetta, þetta er bara svo heimsku­legt finnst mér að kæra mig fyrir þetta af því að ég eyði­lagði ekki líf þeirra sko, þau, eru að eyði­leggja lífið mitt akkúrat núna sko…. Bara þau eru að dreifa þessu og, og í gegnum allan skól­ann sko. …Milli vina og vin­kvenn­anna bara já. Var að segja að ég sé perri fyrst af öllu,“ segir í dómi.

Ákærði neit­aði sök og sagð­ist ein­ungis hafa snert mjöðm brota­þola í til­raun til að vekja hana.

„Hún var að athuga hvað við vorum að gera, en rot­að­ist bara í rúm­inu. … Og ég var að segja bæ við E og C hjá  tölv­unni  og  svo  sá  ég  hana (brota­þola) kreppta saman í rúm­inu, eins og það væri eitt­hvað að þannig að ég greip utan um mjöð­mina og var eitt­hvað að hrista hana til eitt­hvað, … pínu … bara að tékka á hvort að væri ekki lagi með hana. … ég kall­aði bara nafnið hennar og sagði bara; „Halló“ … Og svo bara var hún ekk­ert að svara og var ekk­ert að opna augun … þegar ég var að kalla 15á hana. … Hún bara lá þarna uppi í rúmi, … með sæng­ina pínu yfir sig … á milli hnjáa og mittis … og var eig­in­lega hálf sof­andi sko … hún var í buxum, hún var íbol, hún var bara í öllum fötum sko.“ Nánar  aðspurður  neit­aði  ákærði  þeirri  frá­sögn  brota­þola  að  hann  hefði  í  greint sinn komið við lík­ama hennar á kyn­ferð­is­legan hátt í um hálfa mín­útu. Ákærði stað­hæfði að fyrr­greind snert­ing hans hefði aðeins varað í um 5 sek­úndur, og árétt­aði að hann hefði ekki strokið yfir rass brota­þola og þá ekki strokið yfir og káfað á kyn­færum hennar, utan klæða.“

Ákærði nefndi fyrir dómi skila­boð sem brota­þoli sendi honum stuttu eftir atburð­inn. Hann sagð­ist vera „leiður og svekktur“ yfir skila­boð­unum sem voru að hans sögn ljót.

Ákærði: „Er  ekki  hægt  að  sætt­ast?/tala.“

Brota­þoli: „Nei.“

Ákærði: „Af  hverju ekki?“

Brota­þoli: „Þú  káf­aðir  a  mer.  Þu  kafaðir  a  mer  af  þvi  þu  helst  að  þu  myndir kom­ast  upp  með  það  af  því  ég  virt­ist  vera  sof­andi.  Það  er  virki­lega  ogeðs­legt.“        

Ákærði: „Það er bara so sorry svo mikið bull. Af hverju ætti ég að gera það með C og E í sama her­bergi??? … Plús ert með frænda mínum … Ég vil ekki að þetta fari svona.“

Brota­þoli: „Æ æj. Grey þú.“

Ákærði: „Er ekki best að tala.“

Brota­þoli: „Nei.“

Ákærði: „með C. (unnusti brota­þola)“

Brota­þoli: „Láttu mig vera.“

Ákærði. „Nei.“

Brota­þoli: „Ég vil líka að þú vitir að  ég  er  búin  að  fara  með  þetta  til  lög­regl­unnar  og D sagði  sína  sögu.  Ég  er  að  fara  í skýrslu­töku  á  morgun.  Hættu  svo  að  fokk­ing  tala  við  mig ogeðs­legi  hel­vitis  aum­ingi. Rotnaðu í hel­víti … Þú att verra skilið en bara kæru. Sættu þig bara fokk­ing við það að þú er creep að þu ert aum­ingi Og að Enginn mun fokk­ing lita sömu augu a þig.“

Ákærði: „Ég vil alveg virki­lega ekki að þetta fari svona.“

Brota­þoli: „Þú gerði eitt­hvað ogeðs­legt faceaðu það …“ Ákærði: „Og hvað mun koma fá þessu.“

Brota­þoli: „?“

Ákærði var dæmdur sekur og gert að greiða brota­þola hálfa milljón í skaða­bætur. Einnig var honum gert að greiða allan máls­kostnað sem hljóm­aði upp á rúmar 2,2 millj­ónir. Hann fékk tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inn fang­els­is­dóm.

Dóminn má sjá í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi