Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Öryrkja neitað um greiðslur: Hvernig sefur maður á nóttunni eftir að senda svona bréf?“

Öryrkja neitað um greiðslur: Hvernig sefur maður á nóttunni eftir að senda svona bréf?“

Öryrki segir Trygg­inga­stofnun skað­lega heilsu skjól­stæð­inga sinna.

Karl­maður sem er öryrki, greindur með krónískt þung­lyndi, kvíða­röskun og sjálfs­vígs­hugs­anir skrif­aði stutta en sterka færslu á Facebook í kvöld þar sem hann kvartar undan Trygg­inga­stofnun. Segir hann að stofn­unin sé „bein­línis skað­leg heilsu skjól­stæð­inga sinna“ og segir álagi sem fylgi stöð­ugum kröfum og höfn­unum sem hann segir að sé á grund­velli „computer says no“, vera akkurat stór hluti af þeim kvíða sem kvíða­sjúk­lingar þjást af.

Manninum barst bréf frá Trygg­inga­stofnun, eftir klukkan 18 í kvöld þar sem honum er til­kynnt að hann fái ekki örorku­greiðslu um næstu mán­að­ar­mót. Í sam­tali við Mannlíf bendir mað­ur­inn á að hann efist um að starfs­maður stofn­un­ar­innar hafi unnið þetta seint á föstu­dags­kvöldi og að tölvu­póst­ur­inn hafi senni­leg­ast verið tíma­stilltur.

„Trygg­inga­stofnun er bein­línis skað­leg heilsu skjól­stæð­inga sinna, álagið sem fylgir stöð­ugum kröfum og höfn­unum á grund­velli „computer says no“ er stór hluti af þeim kvíða sem kvíða­sjúk­lingar þjást einmitt af! Mjög óhjálp­legt í bata­ferl­inu að fá að vita um miðjan mánuð að manni hafi verið hafnað um örorku­greiðslu næsta mán­aðar.

Til að bæta gráu ofan á svart var bréfið sent eftir 18 á föstu­degi, bara til að tryggja að maður geti ekk­ert gert alla helg­ina nema vera í kvíða­kasti um hvernig endar eigi að ná saman næstu mán­uði.

Hvernig sefur maður á nótt­unni eftir að senda svona bréf?“

Maðurinn, sem er rétt undir miðjum aldri og á eina dóttur, sagði í sam­tali við Mannlíf að geð­ræn vanda­mál séu „skjal­festa algeng­asta dáar­or­sök fólks undir miðjum aldri.“ Þetta stað­festir Land­læknir sem birtir árlega töl­fræði yfir sjálfs­víg eftir kyni og aldri. Þar kemur fram að á síð­ustu árum hafi sjálfs­víg verið um 20% allra dauðs­falla í ald­urs­hópnum 30-44 ára en algeng­ustu dán­ar­meinin í þeim ald­urs­flokki, auk sjálfs­víga, eru ill­kynja æxli, slys og óhöpp.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Opið allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band viðPíeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Pieta sam­tök­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi