Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Barn á Suðurlandi veiktist eftir að hafa innbyrt kannabis-bangsa: „Við höfum fengið áfallahjálp“

Barn á Suðurlandi veiktist eftir að hafa innbyrt kannabis-bangsa: „Við höfum fengið áfallahjálp“
Hlaupa­bangsar. Mynd: Pato Garza

Fimm ára stúlka var hætt kom­inn fyrir stuttu á Selfossi er hún inn­byrti hlaupa­bangsa fullan af kanna­bis­efnum. Málið er enn óupp­lýst.

Vísir segir frá mál­inu en á föstu­dag­inn barst til­kynn­ing frá lög­regl­unni á Suð­ur­landi um málið.

„Svona mál koma því miður upp annað slagið hér á landi og eru þau litin mjög alvar­legum augum. Ein­hverra hluta vegna er efnum komið fyrir í hlaup „fígúrum“ dul­búið sem sæl­gæti sem oft­ast er mark­að­sett fyrir börn. Rannsókn máls­ins bein­ist m.a. að því að kanna hvort um ein­angrað til­vik á svæð­inu sé að ræða en það skal tekið fram að frek­ari upp­lýs­ingar um hana verða ekki gefnar á þessu stigi máls­ins,“ sagði í til­kynn­ingu lög­reglu.

Fjórir sjúkraflutningamenn á vettvangi er hún kom heim

Móðir stúlkunnar heitir Anna María Hoffmann Guð­geirs­dóttir en hún sagði frá því á Facebook-síðu sinni að fimm ára dóddir hennar hefði vaknað með hita þann 31. mars síð­ast­lið­inn. Amma stúlkunnar hafði verið að passa hana á meðan Anna María stund­aði vinnu sína á leik­skóla. Í fínu lagi var með stúlk­una í hádeg­inu.

Anna María Hoffmann Guð­geirs­dóttir er móðir þeirrar litlu. Hún vekur á Facebook-síðu sinni athygli á því að fimm ára dóttir þeirra hafi vaknað með hita þann 31. mars. Amma stúlkunnar hafi passað hana á meðan Anna María fór til vinnu á leik­skóla. Í hádeg­inu var í góðu lagi með þá fimm ára. „Ég er svo í hvíld með börnin á deild­inni minni þegar að yfir­maður minn kemur og segir mér að ég þurfi að drífa mig heim því það sé eitt­hvað að hjá yngstu stelp­unni minni. Ég rýk af stað og hringi í mann­inn minn sem segir að barnið sé með­vit­und­ar­lítið og sjúkra­bílar séu á leið­inni heim. Þegar ég kem heim eru fjórir sjúkra­flutn­ings­menn inni hjá mér,“ segir Anna María í færsl­unni.

Sagði hún að einn við­bragðs­að­il­inn hafi haldið á dóttur þeirra hálf með­vit­unda­lausri og gubbandi.

„Fórum beint á Barna­spít­al­ann með hana í sjúkra­bíl og eldri systk­inin eftir að bíða frétta. Þegar á Barna­spít­al­ann er komið eru teknar blóðprufur, mænu­á­stunga og þvag­sýni til að rann­saka og þá kemur í ljós að það mælist kanna­bis í þvagi. Við for­eldr­arnir eitt spurn­inga­merki því eng­inn í kringum okkur og hvað þá við að nota svo­leiðis. Eldri börnin tvö spurð hvort þau kann­ist við eitt­hvað um þetta og bæði svör­uðu „Hvað er kanna­bis?“ þar með voru þá hreinsuð af grun. Þau ásamt ömmu sinni fara að skoða um heima hvort eitt­hvað þessu líkt sé á heim­il­inu þegar að sonur minn spyr hvort hann megi fá síð­asta bangs­ann af hla­up­p­oka sem Helga hafði verið að borða.“

Hélt að pokinn kæmi úr páskaeggi

Sagðist amman hafa fundið pokk­ann í bíl sínum og haldið hann vera úr páska­eggi en pok­inn leit þannig út, hann var inn­sigl­aður og úr þykku plasti. Hún hafi því í sak­leysi sínu gefið þeirri stuttu pok­ann til að gleðja lasna ömmu­stelpu sína.

„Ekkert er vitað hvaðan pok­inn kom eða hvernig, móðir mín hélt að ein­hver hefði borðað páska­egg í bílnum og skilið hlaup­bangsa­pok­ann eftir. Sonur minn beit haus­inn af bangs­anum og sagði að hann væri vondt eft­ir­bragð af honum og hann væri eitt­hvað skrít­inn. Við þetta féll sá grunur á að þetta væri ekki venju­legur hlaup­bangsi og spít­al­inn sendi lög­regl­una að rann­saka bangs­ann.“

Kom þá í ljós að hlaupa­bangs­arnir inni­héldu kanna­bis og áhrifin af þeim á barnið fjór­föld á við það sem væri hjá full­orðnum. Sú litla var með kanna­bis­eitrun og var haldið á gjör­gæslu í sól­ar­hring og síðan annan á Barna­spít­ala Hrings­ins.

„Sem betur fer voru lífs­mörk hennar alltaf sterk en hún var með mjög hraðan púls og þurfti súr­efni til að halda upp 100% súr­efn­is­mettun þar til um kvöldið.“

Aftur full af orku

Konan sagði í færsl­unni að dóttir hennar muni ekki bera var­an­lega skaða af þessu atviki og það sé ljósi punkt­ur­inn í ferl­inu. Sú fimm ára sér aftur orðin full af orku og gleði.

„Pásk­arnir fóru svo í fjöl­skyldu­sam­veru, njóta þess sem lífið hefur uppá að bjóða og með­taka þetta áfall sem við urðum fyrir. Við höfum fengið áfalla­hjálp, fjöl­skyldu­með­ferð og sál­fræði­hjálp til að jafna okkur á þessu en það verður okkar helsta vinna næstu mán­uði.“

Að sögn Önnu Maríu er, eftir því sem hún best veit, búið að rann­saka alla aðila sem komu nálægt bíl ömm­unnar og hreinsa þá af grun.

„Enginn veit hvaðan pok­inn kom eða hvernig hann komst í bíl­inn og það er það sem við erum varn­ar­laus gagn­vart. Við viljum koma því út til sam­fé­lags­ins að alls­konar efni eru komin í hlaup form og varið börnin og aðra við því að þetta sé í umhverf­inu. Ef þið ætlið að gefa börnum og öðrum sæl­gæti er gott að kaupa það sjálf í búð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi