Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðalstjórn félagsins:„HK hyggst ekki tjá sig opinberlega um þann harmleik sem fjölmiðlar fjalla um“

Aðalstjórn félagsins:„HK hyggst ekki tjá sig opinberlega um þann harmleik sem fjölmiðlar fjalla um“
Stefán Arnar Gunn­ars­son

„HK hyggst ekki tjá sig opin­ber­lega um þann harm­leik sem fjöl­miðlar fjalla um þessa dag­ana varð­andi and­lát fyrrum þjálf­ara félags­ins, Stefáns Arnars.

Aðal­stjórn félags­ins vottar aðstand­endum dýpstu samúð vegna missis þeirra.

Fyrir hönd aðal­stjórnar HK

Pétur Örn Magn­ús­son,“ segir í yfir­lýs­ingu frá HK sem barst Mannlífi um hádegið í dag. Bróðir Stefáns Arnars Gunn­ars­sonar, Samúel Ívar Árnason, skrif­aði áhrifa­mik­inn pistil á Facebook-síðu sinni um helg­ina. Þar fjallar hann um dag­ana fram að hvarfi bróður síns en Stefán fannst nýlega lát­inn. Samúel var gestur í Bítinu á Bylgj­unni í morgun þar sem fór yfir atburða­rás­ina en sagð­ist hann hafa birt færsl­una til þess að koma í veg fyrir að slíkur harm­leikur end­ur­taki sig, auk þess að upp­ræta sögur sem höfðu farið á flug stuttu eftir hvarfið.

„Okkur fannst tíma­bært að reyna að rétta þá umræðu í átt­ina sem við sjáum þetta. Við höfum reynt að velta öllum steinum, ekki bara ég heldur líka vinir hans. Þetta er svona sam­an­tekt á atburða­rásinni eins og við sjáum hana. Mér finnst mik­il­vægt að setja hana fram, ég reyni að setja hana fram sem atburða­rás sem leiðir til harm­leiks. Ekki til þess að ráð­ast á fólk heldur til þess að mögu­lega læra af þessu. Koma í veg fyrir að eitt­hvað svona ger­ist aftur,“ sagði Samúel. Sam­skipta­vandi hafði verið til staðar milli for­eldra og Stefáns sem þjálf­aði 3.flokk karla í hand­bolta. „Það hafa fleiri þjálf­arar talað við mig, ekki bara eftir pistil­inn heldur líka fyrir hann. Það hafa fleiri þjálf­arar í öðrum íþrótta­greinum og hjá öðrum félögum. Þessi pist­ill snýr ekki að því að HK sé svona eða hinsegin. En atburða­rásin ger­ist þar. Þar eru ein­hverjir sem eru leik­endur í þessu og þess vegna er nafn félags­ins þarna inni,“ sagði hann en hefur hann rætt við aðila hjá HK eftir hvarfið og fóru hann og faðir hans á fund með fram­kvæmda­stjóra félags­ins, full­trúa frá barna- og ung­linga­ráði og full­trúa frá aðal­stjórn.

„Við sögðum að við værum ekki komnir þangað með fyr­ir­fram ákveð­inn sann­leika í huga. Auðvitað trúðum við því innst inni að hann hafi ekki gert þetta. Eða gert eitt­hvað ósæmi­legt. Við þurftum að fá ein­hverja lokun á þetta en þau komu algjör­lega af fjöllum. Sögðust ekki hafa neitt þannig. Það versta sem HK gat sagt mér var að hann bar hitakrem á þá. Ef það er glæpur í starfi þjálf­ara þegar eng­inn sjúkra­þjálf­ari fylgir ekki yngri flokkum þá veit ég ekki hvert við erum komin,“ sagði Samúel í morgun. Þá sagð­ist hann vilja að aðil­inn sem sendi bréfin til ÍSÍ og Kópa­vogs­skóla eiga að stíga fram.

„Mér finnst skömmin vera þar. Ef þú ætlar að kasta fram alvar­legum ásök­unum og sverta mann­orð ein­hvers finnst mér að þú ættir að gera það í eigin per­sónu. Mér finnst að þeir sem standa að baki svona aðför að mann­orði megi skamm­ast sín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi