Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðjón Heiðar er samsæringur Íslands: ,,Alheimsríkisstjórn er markmiðið“

Guðjón Heiðar er samsæringur Íslands: ,,Alheimsríkisstjórn er markmiðið“
Guðjón Heiðar Val­garðs­son Mynd: YouTube-skjáskot

Guðjón Heiðar Val­garðs­son hefur oft verið kall­aður sam­sær­ingur Íslands. Guðjón, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir und­an­farin ár hafa sýnt að margt sem áður var kallað sam­sær­is­kenn­ing hafi síðar reynst rétt. Hann fór á tíma­bili alla leið í að liggja yfir sam­sær­is­kenn­ingum, en hefur hægt aðeins á sér á und­an­förnum árum:

,,Ég sagði upp vinn­unni minni á tíma­bili til þess að stúd­era alla þessa hluti.

Þá var ég með heima­síð­una gagn­auga.is og var meira og minna dag­inn inn og út að velta mér upp úr öllum þessum hlutum. Það tók á köflum á sál­ar­lífið og ég kúp­l­aði mig aðeins út úr þessu í kjöl­farið, en það togar alltaf í mig að skoða aðrar upp­lýs­ingar en þær sem er verið að bera á borð í flestum fjöl­miðlum. Maður fær oft spurn­ing­una hvort allt sé sam­særi hjá mér og margir gefa sér að maður sé kol­rugl­aður, en núna eru eyru flestra orðin opn­ari en áður, enda eru mjög und­ar­legir hlutir í gangi í heim­inum. Nú eru fleiri og fleiri byrj­aðir að átta sig á því að það er ekki alltaf allt eins og sýn­ist við fyrstu sýn.”

Guðjón er á því að í grunn­inn sé stóra planið hjá ákveðnum hópum að mið­stýra heim­inum meira en nú er. Margt af því sem hafi verið í gangi und­an­farin ár miði að alheims­rík­is­stjórn:

,,Aðal­mark­miðið virð­ist vera að búa til alheims­rík­is­stjórn. Að auka mið­stýr­ingu opin­bers valds í heim­inum og á end­anum verði ein rík­is­stjórn yfir öllum heim­inum. Aðferðin er sú að búa til áróður sem í sjálfu sér snýst ekk­ert um þessa alheims­rík­is­stjórn, en í stóru mynd­inni auð­veldar það á end­anum að rök­styðja til­vist slíkrar stjórnar. Flest þessi mál sem eru sett á dag­skrá eru þess eðlis að ef þú ert ekki sam­mála meg­in­straums­sjón­ar­mið­inu ertu klikk­aður, ras­isti, kven­hat­ari, á móti jörð­inni eða annað í þeim dúr. Ef þú leyfir þér að vera ósam­mála er hægt að mála þig upp sem vondan ein­stak­ling og þess vegna er þægi­leg­ast að vera bara sam­mála meiri­hlut­anum. Fólk sem hefur áhuga á að skoða þessa hluti getur bara kannað það sem er að ger­ast í Davos og hjá World Economic Forum. Það sem þetta fólk segir sjálft opin­ber­lega er í raun skugga­legt og það er ekki einu sinni verið að fela það lengur.”

Guðjón segir áhuga­vert hvernig það hafi tek­ist að búa til meiri og meiri aðskilnað á milli venju­legs fólks, þannig að það sé í átökum sín á milli, í stað þess að beina spjótum sínum að þeim sem stýra:

,,Mikið af þessum hug­mynda­hreyf­ingum enda á því að búa til aðgrein­ingu milli fólks sem ætti að taka höndum saman til að berj­ast gegn þeim sem eiga allt. Það tekst alltaf að búa til umræður sem pól­arisera venju­legu fólki í hópa, þannig að það fer öll orkan í við og hinir varð­andi húð­lit, kyn eða kyn­hneigð, í stað þess að athyglin sé sett á efstu stétt­ina sem stýrir öllu og tekur allt til sín. Það skiptir engu máli hvort þú drekkur pepsí eða kók, á end­anum rennur þetta allt í sömu vasana. Svo dynur á okkur áróður um kolefn­is­jöfnun og sam­fé­lags­lega ábyrgð og fleira og fleira á meðan engin athygli er sett á það sem raun­veru­lega skiptir máli. Ég held að það séu alltaf fleiri og fleiri að sjá í gegnum þetta.”

Guðjón segir að ímynd þeirra sem leyfi sér að véfengja meg­in­straums­upp­lýs­ingar hafi breyst mikið í gegnum tíð­ina. Þeir sem áður voru álitnir vinstri sinnar, séu núna álitnir öfga hægra fólk:

,,Þegar ég var að byrja var ég skil­greindur sem hass­reykj­andi vinstris­inni, en núna á ég að vera öfga hægris­inni. Ég er hvor­ugt og hef í raun verið sam­kvæmur sjálfum mér allan þennan tíma. En það er áhuga­vert hvernig þeir sem einu sinni voru á móti meg­in­straumnum voru titl­aðir vinstri sinnar, en núna eru þeir allt í einu hægri sinnar. Við erum núna á tímum þar sem ,,Woke” öflin hafa haft völdin í umræð­unni í tals­verðan tíma og vinstra fólkið hefur tengst því. Það veldur því síðan að allir sem véfengja það eru allt í einu orðnir að öfga hægra fólki.

Þáttinn með Guðjóni og alla aðra þætti Sölva má nálg­ast inni á www:sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi