Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hröð þróun kannabisefna: Hvað kosta gúmmíbangsar, súkkulaði og brjóstsykur í íslenskum undirheimum?

Hröð þróun kannabisefna: Hvað kosta gúmmíbangsar, súkkulaði og brjóstsykur í íslenskum undirheimum?

Hröð þróun er í heimi kanna­bis­efna hér á landi. Á nokkrum árum hefur mark­að­ur­inn stækkað til muna, úr því að bjóða ein­ungis upp á hass, gras og rafrettu­vökva í gúmmí­bangsa. súkkulaði, olíu, brjóst­sykur, þykkni og svo lengi mætti áfram telja. Und­ir­heim­arnir hafa ekki sloppið við áhrif verð­bólg­unnar en eitt gramm af grasi hefur hækkað úr 3000 krónum í 4000 krónur.

Kannabis hefur alla tíð verið umdeilt vímu­efni. Það er talið eina sinnar teg­undar sem ekki er hægt að nota í lífs­hættu­legum skömmtum. Margar og alvar­legar auka­verk­anir geta fylgt kanna­bis­neyslu og þá sér­stak­lega þegar það er notað lengi og í miklu magni. Árið 2018 lést banda­rískur ung­lingur úr ofþornun en hann glímdi við sjúk­dóm­inn cannabinoid hyper­em­esis syndrome sem á það til að þró­ast hjá þeim sem nota efnið til lengri tíma. Rann­sóknir sýna að kanna­bis hefur slæm áhrif á and­lega heilsu. Nýlega var byrjað að þróa vörur sem inni­héldu efnið HHC. Efna­fræð­ing­ur­inn Roger Adams var fyrstur manna til þess að búa til HHC með því að blanda saman THC og súr­efni. Það hefur þó ekki þótt ástæða til þess að nota efnið til vímu­á­hrifa enda er það væg­ara en THC. Það hefur þó auk­ist mikið í vin­sældum síð­ustu ár og er það oft notað í háum skömmtum til þess að fram­kvæma lengri vímu en þá sem verður af áhrifum THC.

Kannabisfíkn

Árið 2015 voru um fjórar millj­ónir banda­ríkja­manna sem féllu undir grein­ing­ar­við­mið kanna­bis­fíknar. Þær rann­sóknir sem hafa verið gerðar á teng­ingum kanna­bis­neyslu og ávana eða fíkni­sjúk­dóma sýna að 9% þeirra sem nota efnið yfir ævina verði háðir því. Líkurnar hækka upp í 17% þegar efnið er notað áður en ein­stak­ling­ur­inn nær 18 ára aldri. Kanna­bis­fíkn er skil­greind sem van­geta til þess að hætta notkun kanna­bis þrátt fyrir auð­sjá­an­leg nei­kvæð áhrif þess. Mikil kanna­bis­neysla veldur frá­hvarfsein­kennum líkt og svita­köstum, höf­uð­verk, lyst­ar­leysi, svefn­leysi, pirr­ing, skap­breyt­ingum, svima, ógleði og eirð­ar­leysi. Ofneysla kanna­biss veldur því að heil­inn minn­nkar fram­leiðslu tauga­boð­efns­ins endocannabinoid sem hefur meðal ann­ars áhrif á gróf- og fín­hreyf­ingar, skamm­tíma­minni, mat­ar­lyst, frjó­semi og lík­am­lega verki.

 Kannabis á Íslandi

Kanna­bis­efni hafa verið ólög­leg hér á landi frá árinu 1969. Það hindrar þó ekki notkun þess og hefur lög­regla aldrei lagt hald á meira magn kanna­bis­efna en árið 2022 þegar það náði 160 kílóum. Fyrir þremur árum mátti nán­ast ein­ungis finna hér á landi gras sem er heiti yfir þurrkuð lauf kanna­bis­plönt­unnar. Hass er fram­leitt úr efni plönt­unnar sem oft er kallað kvoði, það er brúnn og lím­kenndur vökvi sem finna má í mörgum trjá­gróðri. Hass var alls­ráð­andi áður en grasið tók yfir en síð­ustu ár hefur það að mestu verið ræktað á Íslandi, frekar en flutt inn að utan. Reglu­lega stöðvar lög­reglan slíkar verk­smiðjur og þá mynd­ast oft skortur á grasi, það sem oft er kallað „þurrkur“ á meðal not­enda. Seinna kom á markað rafrettu­vökvi sem inni­heldur efnið THC. Í dag má finna kanna­bis í ýmsum formum, gúmmí­böngsum, súkkulaði, brjóst­sykri, olíu, sýrópi ásamt öllum þeirra und­an­förum. Blaða­maður Mannlífs gerði verð­könnun á hinum ýmsu kanna­bis­vörum sem sjá má á töflu hér fyrir neðan.

Neikvæð áhrif kannabisnotkunar

Rann­sóknir sýna að kanna­bis getur haft nei­kvæð áhrif á heil­ann til langs tíma og jafn­vel var­an­lega. Mest er hættan þó þegar börn undir 18 ára aldri nota efnið. Ekki hafa verið gerðar nægar rann­sóknir á ófrískum konum sem nota efnið en tals­vert hefur færst í auk­ana að mæður noti kanna­bis, þá sér­stak­lega í þeim löndum og ríkjum sem efnið hefur verið lög­leitt. Rann­sóknir sem gerðar hafa verið á dýrum sýna auknar líkur á því að börn þeirra mæðra sem noti kanna­bis á með­göngu séu lík­legri til að eiga í náms­erf­ið­leikum. Rann­sókn­irnar hafa þó ekki verið nógu nákvæmar til þess að hægt sé að full­yrða um þessar kenn­ingar. Til þess þyrftu rann­sóknir að taka til­lit til ann­ara vímu­gjafa, umhverfi barns­ins og erfða.

Kannabisnotkun og geðsjúkdómar

Fjöl­margar rann­sóknir sýna að kanna­bis­neysla auki líkur á geð­sjúk­dómum eins og geð­klofa, þung­lyndi, kvíða­röskun og fíkni­sjúk­dómi. Nýlega var þó gerð ítar­leg rann­sókn á áhrifum efn­is­ins á geð­sjúk­dóma en þar voru teknar til greina ýmis­legt annað sem getur orðið til þess að ein­stak­lingur þrói með sér geð­sjúk­dóm, eins og umhverf­is­á­hrif, gen og lífstíl. Sú rann­sókn sýndi að kanna­bis­notkun ein og sér valdi ekki geð­sjúk­dómum en neyslan eykur líkur á fíkni­sjúk­dómi, alka­hól­isma og mis­notkun ann­ara fíkni­efna. Talið er ljóst að til þess að kanna­bis geti valdið geð­rofi þurfi neyt­and­inn að bera genið AKT 1(C/C)  sem gerir hann við­kvæman fyrir geð­rofs­sjúk­dómum. Háir skammtar af efn­inu getur þó valdið geð­rofi en hættan á því líður hjá um leið og efnið fer úr lík­am­anum.

Canna­bin­oid hyper­em­esis syndrome (CHS)

Cannabinoid hyper­em­esis heil­kennið er við­ur­kenndur sjúk­dómur sem er bein orsök af langvar­andi notkun kanna­bis­efna. Ein­kennin eru þrá­lát ógleði og upp­köst en lag­ast um leið og sjúk­ling­ur­inn hættir notkun kanna­biss. Það getur tekið nokkrar vikur og jafn­vel mán­uði áður en ein­kennin hverfa og allar líkur eru á því að sjúk­dóm­ur­inn taki sig upp að nýju ef sjúk­ling­ur­inn fer aftur að nota kanna­bis. Heil­kennið getur verið lífs­hættu­legt en algengt er að því fylgi vökva- og nær­ing­ar­skortur. Eina lækn­ingin á sjúk­dómnum er að hætta alfarið allri neyslu kanna­bis­efna. Tíðni sjúk­dóms­ins hefur hækkað til muna í gegnum árin og er það bein­tengt auknum styrk­leika kanna­bis­efna. Nýlegar rann­sóknir gefa til kynna að 33% þeirra sem segj­ast nota kanna­bis tutt­ugu sinnum í mán­uði eða oftar glími við sjúk­dóm­inn.

Mannlíf mun áfram kanna hver áhrif þró­unar kanna­bis­efna kunni að hafa á íslenska not­endur, lög­gæslu og inn­flutn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi