Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kleini í einlægu viðtali: „Þegar ég drakk breyttist ég í manneskju sem ég er ekki stoltur af“

Kleini í einlægu viðtali: „Þegar ég drakk breyttist ég í manneskju sem ég er ekki stoltur af“
Kleini er breyttur maður. Mynd: Aðsend

Kleini er búinn í áfeng­is­með­ferð og til­bú­inn í næstu skref sem breyttur maður.

Kristján Einar Sig­ur­björns­son eða Kleini eins og hann kallar sig, hefur nú lokið áfeng­is­með­ferð sinni í Krýsuvík en mikið hefur gengið á í lífi hans síð­ast­liðið ár. Fyrst vakti hann athygli sem unnusti Svölu Björg­vins og á sama tíma varð Instagram-reikn­ingur hans vin­sælli og vin­sælli. Samband þeirra end­aði svo er Kleini mátti dúsa í fang­elsi á Malaga á Spáni í átta mán­uði fyrir lík­ams­árásir en hann kom til lands­ins í nóv­em­ber í fyrra. Mannlíf spjall­aði við Kleina og ræddi við hann um með­ferð­ina og næstu skref í lífi hans.

„Já það er rétt núna er með­ferð­inni inni á stofnun lokið, en núna tekur raun­veru­lega vinnan við. Þarna inni var mér sagt og kennt hvað sjúk­dóm­ur­inn er,hvernig hann virkar og hvernig hann er með­höndl­aður, mér voru rétt verk­færi sem núna er á minni ábyrgð að nota eins og mér var kennt,“ svarar Kleini aðspurður hvort með­ferð­inni sé lokið. Hann seg­ist hafa lært margt á Krýsuvík.

„Það sem ég lærði þarna inni var margt. Ég hélt alltaf að ég væri veik­burða því þegar ég drakk þá gat ég ekki stoppað, skildi aldrei af hverju og ég leit a það sem aum­ingja­skap að geta ekki haft stjórn á hvenær ég myndi leggja glasið frá mér, datt ekki í hug að ég væri með sjúk­dóm en svo er víst, ég er alka­hólisti með sjúk­dóm sem tók það frá mér að hafa rök­hugsun og styrk til þess að stoppa drykkj­una þegar hinn venju­legi maður hefði stoppað. Þegar ég drakk breytt­ist ég í mann­eskju sem ég er ekki stoltur af, og núna er minn tími til þess að bæta upp fyrir það og taka ábyrgð.“

Kleini segir að það þýði ekki lengur að horfa alltaf í bak­sýn­is­speg­il­inn, það valdi bara nýjum árekstrum.

„Ég lifði mikið í for­tíð­inni og drakk út á það, en þarna inni lærði ég það að þú getur ekki keyrt bíl áfram með því að horfa í bak­sýn­is­speg­il­inn, ef keyrt er bíl ein­ungis horf­andi í bak­sýn­is­speg­il­inn þá lendir þú bara í nýjum árekstrum, til þess að geta þró­ast og bæta þinn mann hvern dag, verður þú að geta horft í gegnum framm­rúðu bíls­ins. Þú getur lært af for­tíð­inni en ekki lifað í henni. Og það er það sem eg er að gera núna. Ég var sjálfselskur, ég um mig frá mér til mín.“

Kleini seg­ist hafa breytt við­horfi sínu í með­ferð­inni. Nú sé draum­ur­inn að hjálpa öðrum karl­mönnum í sömu stöðu og hann var í.

„Þarna inni breytt­ist mitt við­horf, núna er minn til­gangur að hjálpa þeim karl­mönnum sem hafa upp­lifað svip­aða hluti og eru að ganga í gegnum erf­ið­leika. Vera eyru sem hlusta og vera maður til þess að gefa ráð og rétta út hjálp­ar­hönd fyrir þá veiku ein­stak­linga sem enn eru úti að berj­ast, ég get ekki bjargað öllum en fyrir hvern ein­asta sem ég næ að hjálpa þó ekki sé nema örlítið, það lít ég á sem stór­sigur.“

En hvað tekur þá við nú þegar með­ferð­inni er lokið?

„Það sem tekur við núna er dag­leg vinna að móta þann mann sem ég vil vera, vera til staðar fyrir mitt fólk og gefa frá mér til þeirra manna sem þurfa á því að halda. Ég vil byrja á að bæta upp þann skaða og sorg sem ég hef ollið fjöl­skyldu og vinum í kringum mig. Ég hef mikið til að bæta upp fyrir og það mun taka sinn tíma ég veit það og er til­bú­inn að gera vinn­una. En að sjálf­sögðu eru lika mikið af stórum plönum sem eru í vinnslu sem ég get því miður ekki upp­ljóstrað alveg strax. En það mun vera gert opin­bert eftir ekki of langan tíma,“ sagði Kleini dul­ar­fullur.

Eins og áður segir er Kleini vin­sæll á Instagram. Mannlíf spurði hann hvort áreitið sé ekki mikið vegna þess og hvernig hann höndli það.

„Ég er búin að vera díla við mikið áreiti frá almenn­ing í mörg ár, svo það er ekk­ert nýtt fyrir mér, en hug­ar­farið mitt er breytt svo ég tek öllu þessu áreiti með auð­mýkt og kær­leik. Fæ nán­ast ein­ungis fal­leg skila­boð sem ég kann að meta og varð­veiti. Og í þau fáu til­felli sem leið­in­leg skila­boð eiga sér stað þá hugsa ég að ef þetta lætur aðil­anum liða betur þá er það gott, því ég tek þetta ekki inn á mig og ef þetta er eitt­hvað sem hann eða hún þurfti að koma frá sér af ein­hverjum ástæðum, þá dæmi ég það ekki og sýni enga gremju gegn aðil­anum, ég sýni skiln­ing og átta mig á að þessum aðila líður ekki vel. Ég þekki það hvernig það er að vera á þeim stað, að vera reiður út af öllu og engu og ef mann­eskjan vill að ég sé sá box­púði, þá er ég með breitt bak og get tekið það án þess að það skaði mig.“

En hvernig líður Kleina?

„Mér líður… mér líður vel að vera að hjálpa öðrum, mér líður vel að hafa fjöl­skyld­una mina og vini, mér líður vel með fólkið í kringum mig, ég er ánægður með sjálfan mig að vera breyt­ast. Og það sem mér líður ekki vel yfir eru ekki hlutir sem ég hef áhyggjur af, ég trúi því að með því að gefa af sér og lifa í kær­leg þá bless­ast allt á end­anum. Guð sér allt.“

Mannlíf spurði Kleina hvort hann hefði ein­hver loka­orð og það stóð ekki á svari.

„Það sem ég vil segja að lokum er: Strákar, sem eru  enn úti að berj­ast. Rífið ykkur upp og farið að vinna vinn­una, það er eng­inn að fara gera það fyrir ykkur og ef þið hafið engan að tala við, þá getið þið talað við mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi