Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Kostnaður af krónunni er að meðaltali 3 milljónir á ári fyrir fjögurra manna fjölskyldu“

„Kostnaður af krónunni er að meðaltali 3 milljónir á ári fyrir fjögurra manna fjölskyldu“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar skrifar grein sem ber yfir­skrift­ina Tilboð fátæka manns­ins.

Þar segir meðal ann­ars að „nýlega steig fram veit­inga­maður hér í borg og varði hækk­anir á vin­sælu til­boði á smurðri beyglu með þeim orðum að það kosti að halda dyr­unum opnum. Hann árétt­aði að launa­kostn­aður hefði hækkað um 32 pró­sent, MS hefði hækkað sínar vörur um 47 pró­sent að með­al­tali og að rjóma­ostur, sem er meg­in­inni­halds­efnið í til­boðs­beygl­unum, hefði einn og sér hækkað um 78 pró­sent síðan í árdaga til­boðs­ins.

Um svipað leyti skrif­uðu bæði fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í land­bún­aði og verk­efna­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar svar­grein við hug­leið­ingum sem ég birti um pásk­ana og sner­ust um verð­hækk­andi áhrif vernd­ar­tolla á mat­væla­verð fyrir venju­legar fjöl­skyldur hér á landi.“

Bætir þessu við:

„Í grein fram­kvæmda­stjóra Fyr­ir­tækja í land­bún­aði eru síð­ustu 12 mán­uðir sér­valdir til að skoða sam­an­burð á mat­væla­verði hér og í Evrópu og bent á að mat­ar­verð hér sé svipað og á Norð­ur­lönd­unum. Sé lengra tíma­bil hins vegar skoðað er myndin allt önnur. Frá því að núgild­andi und­an­þágu­á­kvæði búvöru­laga frá sam­keppn­is­lögum tók gildi 2004 hafa mjólk og ostur hækkað um 40 pró­sentum umfram almennt verð­lag sam­an­borið við 22 pró­sent í ESB.“

Hún segir að „und­an­þágu­á­kvæðið hefur þannig haft þau áhrif að mat­ar­k­arfan verður dýr­ari. Verð mjólk­ur­af­urða hefur á tíma­bil­inu hækkað langt umfram almennt verð­lag og langt umfram flestar aðrar mat­vörur. Græn­metið hefur nokkuð óheft fallið undir sam­keppni og drykkj­ar­vöru­fram­leiðsla, sem ætti að eiga margt sam­eig­in­legt með mjólk­inni, hafa hins vegar lækkað sam­an­borið við almennt verð­lag á sama tíma. Á meðan hefur mjólk­ur­búum fækkað veru­lega, þau hafa stækkað og sjálf­virkni þeirra stór­auk­ist. Afurð­ar­stöðvum hefur að sama skapi fækkað og mikið verið fjár­fest í bættri fram­leiðslu­tækni.“

Þor­gerður Katrín nefnir að „allt eru þetta mik­il­væg fram­fara­skref fyrir mat­væla­fram­leiðslu og bændur. En þessi fram­leiðni­aukn­ing og hag­ræð­ing hefur hins vegar ekki skilað sér að ein­hverju ráði til neyt­enda. Einokun og fákeppni bitnar á okkur öllum. Líka bændum sem fá ekki það súr­efni sem heil­brigð sam­keppni hefur í för með sér. Í stað­inn sitja þeir fastir í íhalds­ömu kerfi sem er yfir­fullt af milli­liðum sem bæta litlu við verð­mæta­sköp­un­ina. Ólíkt því sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja í land­bún­aði og verk­efn­is­stýra Mjólk­ur­sam­söl­unnar vilja halda er bar­átta Við­reisnar fyrir bættum hag neyt­enda ekki síður bar­átta fyrir bættum hag bænda. Því án neyt­enda, aðgengis að mörk­uðum og stöðugs efna­hags­um­hverfis eru bændur frekar dæmdir til að verða til­brigði við fátæka mann­inn.“

Hún ljær máls á því að „báðir hags­muna­að­il­arnir, fram­kvæmd­ar­stjór­inn og verk­efna­stjóri MS gera tolla að umtals­efni í svar­greinum sínum. Það er rétt að þróun síð­ast­lið­inna ára hefur verið í þá átt að fella niður tolla á ýmsum unnum mat­vælum og að toll­kvótar fyrir land­bún­að­ar­vörur frá Evr­ópu­sam­band­inu hafi auk­ist nokkuð. Við í Viðreisn fögnum slíkum breyt­ingum sem alla jafna ættu að færa íslenskum neyt­endum búbót ef ekki væri fyrir flókið heima­til­búið reglu­verk. Það er einnig rétt að hafa í huga að breyt­ingar á tollaum­hverf­inu virka auð­vitað í báðar áttir.

Íslenskir útflytj­endur fá um leið miklu betri aðgang að Evr­ópu­mark­aðnum. Það á kannski ekki að vera vanda­mál íslenskra neyt­enda ef þeir kunna ekki að nýta sér þann aðgang. Eins er það rétt að tollar eru ekki sér­ís­lensk upp­finn­ing en íslenska krónan er það hins vegar. Beinn og óbeinn kostn­aður af krón­unni er að með­al­tali 3 millj­ónir á ári fyrir fjög­urra manna fjöl­skyldu.“

Segir einnig að þegar kostn­að­ur­inn „er síðan lagður ofan á vernd­ar­tolla og fákeppni versnar staða þess­arar sömu fjöl­skyldu enn frekar. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja í land­bún­aði bendir að auki á að fram­leiðslu­kostn­aður land­bún­aða­vara sé hærri hér en ann­ars staðar og nefnir þar laun, flutn­ings­kostnað og svo hið aug­ljósa að vaxta­kostn­aður sé mun hærri hér á landi. Svar sam­tak­anna sjálfra við þessu er að afurða­stöðvar fái að sam­ein­ast og ýta þannig enn frekar undir fákeppni. Það mun ekki laga vaxta­kostn­að­inn og það mun ekki bæta hag neyt­enda, líkt og reynslan sýnir. Eina rök­rétta nið­ur­staðan sem bæði bændur og Viðreisn ættu að geta sam­ein­ast um er að berj­ast fyrir aðgengi að stærri mark­aði fyrir okkar frá­bæru vörur og stuðn­ings­kerf­unum sem ESB tryggir bændum og rækt­endum á norð­lægum slóðum. Svo ekki sé minnst á stöðugan gjald­miðil sem gagn­ast bændum og sam­fé­lag­inu öllu.“

Bætir þessu við að end­ingu:

„En aftur að til­boði fátæka manns­ins. Venju­legt fólk sem fer út í bak­arí að kaupa sér beyglu verður að geta treyst því að veit­inga­menn, eins og sá sem býður upp á til­boð fátæka manns­ins, geti boðið besta mögu­lega verð. Til þess að svo verði þarf veit­inga­mað­ur­inn að hafa val um að kaupa rjóma­ost og aðrar hvers­dags­vörur af fleirum en einum. Nokkuð sem kallað er heil­brigð sam­keppni í dag­legu tali. Hér á Íslandi búum við hins vegar við þann veru­leika að rjóma­ostur ein­ok­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins MS getur hækkað um 78 pró­sent, en vegna rík­is­styrktrar fákeppni höfum við ein­göngu val um að borða rjóma­ost­inn frá MS, enn dýr­ari rjóma­ost frá útlöndum sem stjórn­völd leggja sér­staka vernd­ar­tolla á – eða bara alls engan rjóma­ost.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi