Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna minnist kynleiðréttingarinnar: „Ég fylltist einhverri sársaukablandinni sælutilfinningu“

Anna minnist kynleiðréttingarinnar: „Ég fylltist einhverri sársaukablandinni sælutilfinningu“

Anna Krist­jáns­dóttir rifjar upp hinn örlaga­ríka dag fyrir 28 árum er hún fór í kyn­leið­rétt­ingu á Kar­ól­inska-sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi.

Í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu Önnu, rifjar hún upp minn­ingar sínar frá því að hún fór í kyn­leið­rétt­ingu, en hún var önnur íslenska konan sem gekkst undir slíka leið­rétt­ingu. Í færsl­unni telur Anna upp nokkrar fyr­ir­myndir sínar sem einnig fóru í kyn­leið­rétt­ingu. Færsluna má lesa hér að neðan.

„Dagur 1350 – Minn­ingar.

Mig langar til að ræða minn­ingar. Ég vil þó taka fram að þegar þessi pist­ill birt­ist klukkan níu að morgni á ég engar minn­ingar frá þeirri stundu fyrir 28 árum síðan sem betur fer. Á þeirri stundu var ég nefni­lega á skurð­ar­borð­inu á Kar­ól­inska sjúkra­hús­inu í Solna (Stokk­hólmi) og var í aðgerð til leið­rétt­ingar á kyni. Þegar ég vakn­aði loks­ins á upp­vakn­ing­unni ein­hverjum klukku­stundum síðar, byrj­aði ég á að athuga hvernig staðan væri á milli fóta mér. Þar reynd­ist allt vera eins og það átti að vera, ferm­ing­ar­bróð­ir­inn far­inn og ég fyllt­ist ein­hverri sárs­auka­bland­inni sælu­til­finn­ingu. Það er nefni­lega dálítið sárt lík­am­lega að fara í gegnum slíka aðgerð.Það sem ég gekk í gegnum þessa dag­ana var samt hátíð miðað við svip­aðar aðgerðir á árum áður. Þannig lýsti April Ashley (1935-2021) sárs­auka­fullum dög­unum sem fylgdu eftir aðgerð hennar árið 1960 sem nán­ast óbæri­legum og svip­aða sögu sagði Caroline Cossey (f 1954). Aftur á móti tal­aði Ian Morris (1926-2020) ekk­ert um sárs­auk­ann í sjálfsævi­sögu sinni Conundrum, þegar hún fór í gegnum sam­konar aðgerð árið 1974, um svipað leyti og Caroline Cossey svo nokkrar fyr­ir­myndir mínar séu nefndar, þó að ótal­inni upp­á­halds fyr­ir­mynd­inni minni Lili Elbe (1882-1931), en hún reyndi að ná full­komnun í sínu ferli sem kost­aði hana lífið í sept­em­ber 1931.Ég hafði fengið mænu­deyf­ingu sem gerði það að verkum að sárs­auk­inn var nán­ast eng­inn og ég þakka almætt­inu fyrir þá náð sem fylgir mænu­deyf­ingu á slíkum stundum. Vissu­lega fylgdu ýmsar auka­verk­anir, en þær voru smá­at­riði í sam­an­burði við lýs­ingar ann­arra transkvenna ára­tugum á undan mér á líðan sinni fyrstu dag­ana eftir aðgerð­ina.Síðan þá eru liðin 28 ár.Ég hafði aldrei ætlað mér að aug­lýsa aðgerð­ar­ferli mitt út á við, en ein­hvern­veg­inn atvik­að­ist það svo að ég varð þekkt í Svíþjóð sem for­maður sænska trans­fé­lags­ins Benjamin sem var á þeim tíma helsti málsvari trans­sexual fólks í Svíþjóð og síðan á Íslandi haustið 1994 með frægu við­tali í Nýju lífi.Þegar ég hug­leiði málin eft­irá, 28 árum síðar, horf­ist ég í augu við þá ein­földu stað­reynd að ég hefði aldrei getað dulist lengi í íslensku sam­fé­lagi með þögn­ina að vopni. Það þurfti ein­hver að koma í dags­ljósið með til­finn­ingar sínar, en úr því að sú fyrsta íslenska sem fór í gegnum aðgerð­ar­ferli til leið­rétt­ingar á kyni vildi ekki koma fram opin­ber­lega þótt hún hafi aldrei neitað því, þá þurfti ein­hver sem kom á eftir að tjá sig. Það lenti bara óvart á mér að koma út opin­ber­lega.Frá því 24. apríl 1995 á ég tvo afmæl­is­daga, fæð­ing­ar­dag­inn 30. des­em­ber 1951 og dag­inn sem ég hóf nýtt líf fyrir alvöru, 24. apríl 1995.Ég held uppá þá báða afmæl­is­dag­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi