Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagur svarar Sjálfstæðisflokknum: „Já, það er verkefni að glíma við fjármálin“

Dagur svarar Sjálfstæðisflokknum: „Já, það er verkefni að glíma við fjármálin“
Dagur B. Egg­erts­son og Hildur Björns­dóttir,

„Mér finnst býsna holur hljómur í gagn­rýni Sjá­fl­stæði­flokks­ins á fjár­mál borg­ar­innar. Staða dags­ins í fjár­málum sveit­ar­fé­laga ein­kenn­ist af áhrifum verð­bólgu og van­fjár­mögn­unar rík­is­ins á mála­flokki fatl­aðs fólks. Í þeirri umræðu sem fram fer um hana má þó ekki gleyma því grettistaki sem lyft hefur verið í fjár­málum borg­ar­innar – og margra ann­arra sveit­ar­fé­laga – allt frá hruni.“ Svo hljóðar byrjun Facebook-færslu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra sem hann birti í dag.

Í færsl­unni svarar Dagur fyrir gagn­rýni borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem hafa að und­an­förnu ekki farið í graf­götur með gagn­rýni sína á fjár­hags­stöðu Reykja­vík­ur­borgar. Segir borg­ar­stjór­inn meðal ann­ars að þó að staðan sé slæm, hafi meiri­hlut­inn áður sýnt fram á að hann ráði við að glíma við slæma stöðu. Með færsl­unni birtir hann súlu­rit sem sýnir hreinar skuldir sam­stæðu borg­ar­innar sem hlut­fall af tekjum. Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Það er óhætt að full­yrða að aðgerðir á skulda­hlið (Orku­veitan), rekstr­ar­hlið og tekju­hlið borg­ar­innar og fyr­ir­tækja hennar hafi verið eitt meg­in­verk­efni mitt og margra ann­arra stjórn­enda borg­ar­innar und­an­farin rúman ára­tug – og hið sama á sann­ar­lega við um margt sveit­ar­stjórn­ar­fólk um land allt. Og þótt engin ástæða sé til að gera lítið úr við­fangs­efnum dags­ins í Reykja­vík, hjá rík­is­sjóði eða öðrum sveit­ar­fé­lögum – þá tala töl­urnar sínu máli.

Já, það er verk­efni að glíma við fjár­málin – en við höfum sýnt það margoft áður að það gerum við með góðum árangri. Í sam­vinnu við okkar góða starfs­fólk og sam­tali við borg­ar­búa. Enga fjöður á þó að draga yfir það að sveit­ar­fé­lögin eiga nú mikið undir því að vera mætt af sann­girni og rétt­sýni í mála­flokki fatl­aðs fólks – og að verð­bólg­unni verði náð niður.

Reykja­vik­ur­borg sam­þykkti í haust aðgerð­ar­á­ætlun fjár­málum til að ná niður covid-hall­anum í mark­vissum skrefum, án þess að ganga of nærri þjón­ust­unni eða draga um of úr fjár­fest­ing­unni, þannig að við getum haldið áfram að byggja upp gott borg­ar­sam­fé­lag og unnið að spenn­andi borg­ar­þróun á traustum grunni. Þannig er skyn­sam­legt að bregð­ast við, af ábyrgð, festu en um leið með skýra fram­tíð­ar­sýn fyrir borg­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi