Átján ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 24. maí á grundvelli almannahagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á þrítugsaldri í Hafnarfirði í síðustu viku.
Þá hefur tveimur öðrum piltum, sem báðir eru yngri en 18 ára, verið enn fremur gert að sæta vistun á vegum barnaverndaryfirvalda í tengslum við málið, sömuleiðis til 24. maí. Piltarnir tveir hafa báðir kært úrskurðinn til Landsréttar.
Piltarnir þrír hafa allir sætt gæsluvarðhaldi frá því að málið fyrir utan Fjarðarkaup kom upp.





















Athugasemdir