Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar klámstjarnan Ron Jeremy mætti á klakann: „Hvað hefur þú átt kynmök við margar konur?“

Þegar klámstjarnan Ron Jeremy mætti á klakann: „Hvað hefur þú átt kynmök við margar konur?“

Margt hefur breyst á Íslandi frá árinu 2002, sem betur fer myndu margir segja. Það ár var frum­sýnd hér á landi heim­ild­ar­myndin Porn Star: The Legend of Ron Jeremy og af því til­efni kom Jeremy í heim­sókn til lands­ins og eyddi hér heilli helgi. Kom hann fram á uppi­standi Jóns Gnarr og Péturs Jóhanns sem og á tón­leikum XXX Rottweiler á Gauknum.

Dag­blaðið Vísir tók við hann „tíma­móta“ við­tal þar sem hann var spurður spjör­unum út, ef svo má að orði kom­ast. Fékk hann gáfu­manna­spurn­ingar á borð við „Hversu stórt er typpið?“ og „Eru ljótar konur betri í rúm­inu en þær fal­legu?“ og Ron Jeremy svar­aði öllu heið­ar­lega.

Ron Jeremy, sem lík­ist helst sveittum Mario í Mario Bros leikj­unum, átti um ára­bil far­sælan feril í klám­brans­anum en nú er þeim kafla aldeilis lokið en hann var ákærður í ágúst 2021 fyrir alls 30 kyn­ferð­is­brota­mál gegn 21 konu, frá 15 ára og upp í 54 ára. Í febr­úar á þessu ári var Jeremy vistaður á geð­heil­brigð­is­stofnun rík­is­ins í Kali­forníu eftir að hafa verið fund­inn óhæfur til að sitja við rétt­ar­höldin vegna and­legra veik­inda. Hefur hann dvalið á geð­sjúkra­húsi í Kali­forníu síðan.

Hér fyrir neðan má lesa hið furðu­lega við­tal frá 2002.

Ron svarar spurn­ingum þjóð­ar­innar

Eins og flestir ættu að vita er klám­kóng­ur­inn Ron Jeremy kom­inn til lands­ins. Við báðum fyrir nokkru les­endur okkar að senda inn spurn­ingar fyrir Ron og hér eru svörin við þeim spurn­ingum sem við sendum til hans. Hann verður hér fram á sunnu­dag og hefur nóg fyrir stafni. í kvöld verður hann í Háskóla­bíói, fyrst kl. 20 þar sem haldin verður auka­sýn­ing á mynd­inni hann og eftir á geta áhuga­samir spurt hann „spjör­unum úr“. Á mið­nætti verður svo uppi­stand með honum, Jóni Gnarr og Pétrí í Ding Dong. Að síð­ustu má svo nefna að hann mun koma fram með XXX Rottweiler annað kvöld á Gauknum.

1. Kynntist þú hinum goð­sagna­kennda og fyrrum stór­stjömu í klám­inu, John Holmes? Ef svo er, hvað get­urðu sagt okkur um hann sem per­sónu? Ég hef heyrt að hann hafi verið ásak­aður um morð og líka að kvik­myndin „Boogie nights“ væri í raun og veru um hann. Er það satt? Ron: „Hvoru­tveggja er satt. Ég var ráð­gjafi við gerð mynd­ar­innar (ég er á kredit­list­anum). John var alltaf góður við mig en hann lagði það í vana sinn að ljúga. Enginn vissi fyrir víst hvort hann væri giftur, ætti böm, hvaðan hann kæmi og svo fram­vegis. Hann ýkti statt og stöðugt. Hann var á kafi í hörðu dópi en það sá ég reyndar aldrei sjálfur. Hann var sam­sekur um fjöldamorð en hann lokk­aði fólk á ákveðna staði þar sem það var barið til dauða. Hann var vanur að kalla mig „litla typpi“… Ég var líka vanur að grín­ast við hann og sagði: „Ég hef náð botn­inum, en hvar ert þú? Þú ert ekki að stunda kyn­líf, heldur krabba­meins­skoðun í legi.“

2. Hvað hefur þú átt kyn­mök við margar konur?

Ron: „Á milli 4 og 5 þús­und konur sem er minna en hjá flestum rokk­stjörnum.“

3. Eftir því sem árin líða, áttu aldrei í erf­ið­leikum með „get­una“?

Ron: „Ég get ennþá gert það en það verður örlítið erf­ið­ara. Þetta myndi ég aldrei við­ur­kenna í Banda­ríkj­unum.“

4. Hver er þín upp­á­halds stell­ing?

Ron: „Trú­boða­stell­ingin. Svo ég geti séð fal­lega and­litið hennar.“

5. Hver er þín upp­á­haldstil­vitnun í klám­myndir?

Ron: „(Með sjón­auka fyrir aftan stelpu) „Ég næ að sjá Uranus á björtu kvöldi“ (On a clear night, I can see Uranus).“

6. Við hvernig tón­list líkar þér best? hljóð­gervilsklám­mynda­tón­list, kannski?

Ron: „Nei, ekki séns. Ég er hrif­inn af klass­ískri tón­list (sér­stak­lega barokk-tíma­bil­inu) og hvers kyns rokki og rappi. Meira að segja Frank Sinatra.“

7. Sagan segir að þú sért bæði mjög nískur og mjög ríkur. Er það rétt?

Ron: „Nokkuð rétt.“

8. Þú varst þess heið­urs aðnjót­andi að vera númer 151 þegar Annabel Chong setti heims­met í hóþreið. Hvernig til­finn­ing var það að eiga kyn­mök með konu undir þeim kring­um­stæðum?

Ron: „Ég er hrif­inn af því að þú skulir kalla það „heiður“. Það var vissu­lega öðru­vísi. Hún fór reyndar í sturtu og tók smá­hlé áður en kom að mér. Ég fékk meira að segja að eyða smá tíma með 4 fluff-stelpum (stelpur sem hita karl­inn upp áður en að tökum kemur) áður en ég byrj­aði með henni sem var frá­bært. Smá auka­upp­lýs­ingar: Allir áhuga­menn sem tóku þátt í þessu þurftu að nota smokk – fag­menni­mir ekki.“

9. Hversu stór er hann? Ron: „5 senti­metra frá gólf­inu! (Hið rétta er 25 cm)“ (A4 blað er 29,5 cm á lengd).

10. Ef typpið á þér væri minna myndi lífið vera öðru­vísi í dag og ef svo væri, væri það verra?

Ron: „Já, verra.“

11. Hvað finnst fjöl­skyldu þinni um þinn starfs­feril?

Ron: „Hún sættir sig við það.“

12. Hefur þú ein­hvern tím­ann verið ást­fang­inn?

Ron: „Já, en það er erfitt þegar maður er í brans­anum.“

13. Heldurðu að þú munir ein­hvern tím­ann gifta þig eða eign­ast börn?

Ron: „Já, margir eign­ast börn á sex­tugs­aldri. Tony Randall eign­að­ist sín böm þegar hann var á átt­ræð­is­aldri.“

14. Myndir þú leyfa böm­unum þínum að fara í klám­brans­ann?

Ron: „Þegar þau eru orðin 18 ára gömul geta þau gert það sem þau vilja, en ég myndi frekar reyna að fá þau til að fara í háskóla.“

15. Hvernig fannst þér að vinna við gerð „Boogie Nights“? Hvernig var Paul Thomas Anderson? Kynntist þú ein­hverjum leik­ar­anna?

Ron: „Þetta var frá­bær reynsla, RT. Anderson er mjög hæfur leik­stjóri og fínn gaur. Upp­á­halds­leik­arar mínir í mynd­inni voru þeir William H. Macy og Mark Wahlberg, báðir frá­bærir strákar.“

16. Hvar sérðu sjálfan þig í fram­tíð­inni, hvar liggur þinn metn­aður?

Ron: „Að halda áfram að vinna í hefð­bund­inni kvik­mynda­gerð.“

17. Þekkirðu sjálfur eitt­hvað af frægu Hollywood-fólki, til dæmis leik­ara? Hefur þú átt kyn­mök með ein­hverja þeirra?

Ron: „Ég vil ekki ræða með hverjum ég hef stundað kyn­líf en ef þú vilt sjá með hvaða fræga fólki ég hef „hangið“, farðu bara á heima­síð­una mína, ronjer­emy.com.“

18. Par sem þú hefur stundað kyn­líf með gíf­ur­legum fjölda kvenna ætt­irðu að hafa ýmsar stað­reyndir á hreinu. Ég vil vita hvort fal­legar stelpur em betri í rúm­inu en þær Ijótu. Ástæðan fyrir því að ég spyr er sú að ég hef heyrt að digrar dömur séu betri í rúm­inu þar sem í hvert skipti sem þær stunda kyn­líf sé það eirts og þeirra síð­asta.

Ron: „Ég held að það sé algjör­lega hár­rétt og það á líka við um karl­menn. Fallega fólkið er bara ekki að reyna af fremsta megni. Kannski er það þess vegna sem ég hef reynt að vera svona góður…“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi