Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrjú ár án fíkniefna: „Andlegur sársaukinn var óbærilegur.“

Þrjú ár án fíkniefna: „Andlegur sársaukinn var óbærilegur.“
Vogur -Vogur / SÁÁ

Þann 5. febr­úar 2020 gekk ég inn á afeitr­un­ar­stöð­ina Vog í annað sinn, örmagna á lík­ama og sál.

Nokkrum mán­uðum áður hafði fík­ill­inn náð yfir­hönd­inni eftir stuttan tíma edrú.

Upplifun mín var sú að ég hefði virki­lega reynt að ná árangri í þessa sjö mán­uði sem ég náði að lifa án hug­breyt­andi efna, ég var viss um að ég þyrfti ekki nema eina til­raun. Þetta gæti nú ekki verið svo flókið, ekki nota fíkni­efni, ekki drekka og ekki vera fáviti.

Þegar ég lít til baka sé ég týnda unga konu, hrædda við að horfast í augu við raun­veru­leik­ann, enda getur hann verður kaldur og ljótur.

Ég hafði óbilandi trú á sjálfri mér þegar ég reyndi fyrst að losa mig úr klóm fíkn­ar­innar, of mikla trú.

Þegar í ljós kom að ég hafði enga stjórn á þessum eig­in­gjarna sjúk­dómi var það líkt og fata af ísköldu vatni í and­litið, raunin var sú að ég vissi ekk­ert. Ég missti alla von og trú á að líf mitt yrði nokkuð annað en slags­mál við fíkn og inn­lagnir á með­ferð­ar­stofn­anir. Vonlaus, örmagna og van­sæl, var þetta virki­lega allt það sem mér var ætlað að vera? 23 ára gömul og líf mitt búið, eða svo hélt ég.

Ég grét við­stöðu­laust fyrstu dag­ana á Vogi, and­legur sárs­auk­inn var óbæri­legur. Næstu skref voru mér hulin ráð­gáta, mér fannst ég vera búin að reyna þetta eins vel og hægt er, en ég fékk aldrei þessa gleði, þetta frelsi og þennan létti sem aðrir óvirkir fíklar töl­uðu um.

Ég réð við lítið annað en það eitt að gráta, svo það var það sem ég gerði. Alveg var ég viss um að ég væri í hræði­legri ást­ar­sorg, bæði vegna efn­is­ins sem ég þurfti enn og aftur að kveðja og manns­ins sem yfir­gaf mig nokkrum dögum áður.

Seinna sá ég þetta allt skýrar, ég var í sorg, óbæri­legri sorg, en það var engin ást þarna. Þetta sner­ist um mig sjálfa, þarna var 23 ára móðir sem end­aði inni á afeitr­un­ar­stöð í annað sinn, án þess að átta sig nokkuð á því hvað hefði farið úrskeiðis.

Mér þykir vænt um þessa ungu stelpu, en ég er þakk­lát fyrir það að hún sé ekki hér í dag.

Greinina má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi