Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dæmdur kynferðisbrotamaður myrti fimm unglinga í Oklahoma: „Okkur grunaði aldrei neitt misjafnt“

Dæmdur kynferðisbrotamaður myrti fimm unglinga í Oklahoma: „Okkur grunaði aldrei neitt misjafnt“

Sjö mann­eskjur eru látnar, þar á meðal fimm ung­lingar, eftir skotárás í dreif­býli fyrir utan smá­bæ­inn Hen­ryetta í Oklahoma, Banda­ríkj­unum. Skot­mað­ur­inn er tal­inn hafa framið sjálfs­víg eftir ódæðið.

Perez Hilton, af öllum mönnum, segir frá mál­inu á síðu sinni. Þar kemur fram að á mánu­dag­inn hafi lög­reglu­menn frá Okmulgee-sýslu verið að leita að tveimur ung­lingum sem til­kynnt hafði verið að væru týndar. Það voru þær Ivy Webster, 14 ára og Brittany Brewer, 16 ára en for­eldrar þeirra til­kynntu hvarf þeirra eftir að stelp­urnar gistu heima hjá vini þeirra yfir helg­ina. Þegar þær skil­uðu sér ekki heim á sunnu­dags­kvöld var haft sam­band við lög­regl­una.

Lög­reglan fór á stað­inn þar sem stúlk­urnar voru taldar hafa verið, á mánu­dags­morgun en við þeim blasti hræði­leg sýn. Utandyra, úr alfara­leið, fann lög­reglan lík sjö mann­eskja, þar á meðal þeirra Webster og Brewar og þriggja ann­arra ung­linga. Voru það Elizabeth Allen, 17 ára, Michael James Mayo, 15 ára og Tiffany Dore Guess, 13 ára. Þá fannst móðir Tiffany, Holly Guess, sem og eig­in­maður hennar og stjúp­faðir Tiffany, Jesse McFadden. Samkvæmt lög­regl­unni er talið að McFadden, sem var dæmdur nauð­gari, tal­inn hafa skotið eig­in­konu sína og ung­ling­ana fimm og síðan framið sjálfs­víg.

Samkvæmt The Okla­homan voru ung­ling­arnir allir nánir vinir sem höfðu notið þess að halda gisti­kvöld í nokkur ár. Móðir Ivy, Ashleigh Webster sagði fjöl­miðum að dóttir hennar hafi verið besta vin­kona Tiffany. Sagðist hún þó ekki hafa vitað mikið um stjúppabba hennar, McFadden en hann var nýr eig­in­maður móður hennar, Holly. „Við könn­uð­ust bara við hann í gegnum vin­áttu barn­anna okkar, við töl­uðum saman um að sækja börnin, skutla og fleira slíkt. En við vorum ekki vinir þess utan en við höfðum hitt hann og Holly margoft.“

Það sem fjöl­skyldur fórn­ar­lambanna vissu ekki var sú stað­reynd að McFadden var dæmdur í fang­elsi fyrir nauðgun árið 2003 en honum hafði verið sleppt árið 2020. Þá átti hann að mæta fyrir dóm­ara á mánu­dag­inn út af kæru vegna barnakláms sem hann hafði í fórum sínum. Hann mætti hins vegar ekki í rétt­inn og var því lög­reglan komin með hand­töku­skipun á hendur honum.

Faðir Ivy, Justin Webster sagði: „Tiffany Guess og dóttir okkar voru bestu vinir en við vissum í raun ekk­ert um þennan náunga. Okkur fannst hann svo­lítið skrít­inn en okkur leið vel með vin­átt­una, sér­stak­lega vit­andi að nokkrir vinir dóttur okkar voru oft með þeim þar að hanga. Þau fóru stundum þangað um helgar.“ Bætti hann við: „Tiffany kom stundum og gisti hjá okkur yfir helgar en okkur grun­aði aldrei neitt mis­jafnt.“

Fjöl­skyldur fórn­ar­lambanna eru afar ósátt að vita nú, að McFadden hafi búið í sam­fé­lagi þeirra án þess að nokkrum hafi verið til­kynnt um hans glæpa­sögu.

Justin ræddi við KFOR-TV sjón­varps­stöð­ina um McFadden og það hvernig fjöl­skylda hans hafi fyrst frétt af for­tíð hans eftir að harm­leik­ur­inn hafði átt sér stað. „Ég er reiður kerf­inu og ég held að allir í þessu landi ættu að vera reiðir út í kerfið. Þetta er maður sem hafði áður setið inni. Hann var kyn­ferð­is­glæpa­maður og honum var sleppt fyrr en dóm­ur­inn hafði kveðið á um. Og ef þú spyrð mig, þá finnst mér að ef þú gerir mis­tök einu sinni, ætt­irðu að sitja inni alla ævi.“

McFadden ját­aði á sig nauðgun árið 2003 og var dæmdur í 28 ára fang­elsi en var sleppt árið 2020, 17 árum síðar. Á meðan hann sat enn inni var hann sak­aður um að senda nekt­ar­myndir til mann­eskju undir lög­aldri í gegnum síma sem hann hafði kom­ist ólög­lega yfir. Var hann að lokum kærður fyrir tvo ákæru­liði sem snéru að því að biðja um kyn­ferð­is­lega hegðun með ólög­ráða ein­stak­lingi með því að nota tækni, og einn ákæru­lið sem snéri um vörslu barnakláms. Á mánu­dag­inn átti hann að mæta fyrir dóm­ara vegna máls­ins en eins og áður hefur komið fram, mætti hann ekki.

Móðir Holly og amma Tiffany, Jan Mayo, sagði í við­tali við Tulsa World að McFadden hafi verið svika­hrappur sem hefði logið að Holly um for­tíð sína. Sagði hún að mað­ur­inn hefði borgað konu til að hringja í Holly og þykj­ast vera konan sem McFadden var dæmdur fyrir að nauðga árið 2003. Hún hafi sagt Holly hinu „raun­veru­legu sögu“ um nauðg­un­ina sem Holly hafi trúað. Segist Jan hafa kom­ist að þessu eftir að „fórn­ar­lambið“ hafi hringt í fjöl­skyld­una eftir að fréttir af harm­leiknum fór í frétt­irnar og sagt þeim að henni hafi verið borgað til að ljúga að Holly. „Dóttir mín myndi aldrei gera neitt til að skaða börn sín. Hún hafði ekk­ert með þetta að gera.“

Hér fyrir neðan má sjá umfjöllun News Nation um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta