Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rík hjón dæmd í fangelsi fyrir mannsal: „Þið tókuð öll þátt í viðbjóðslegu braski“

Rík hjón dæmd í fangelsi fyrir mannsal: „Þið tókuð öll þátt í viðbjóðslegu braski“
Ekweremadu hjónin

Auðug hjón sem hugð­ust flytja ungan mann til Bret­lands svo þau gætu tekið úr honum nýra handa nýrna­veikri dóttur þeirra, hafa verið dæmd í fang­elsi.

Samkvæmt Mirror fékk Ike Ekweremadu níu ára fang­els­is­dóm og átta mán­uði að auki en þetta er í fyrsta skipti sem ein­hver er dæmdur fyrir líf­færa­brask í Bret­landi. Eig­in­kona hans, Beatrice, fékk fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm og lækn­ir­inn Dr. Obinna Obeta fékk 10 ára dóm. Dóttir þeirra, Sonia, var sýknuð af ákærunni.

„Viðbjóðslegt brask“

Yfir­dóm­ari rétt­ar­ins sagði við rétt­ar­höldin, sem var sjón­varpað: „Mannsal yfir landa­mæri í þeim til­gangi að braska með líf­færi, er ein teg­und þræla­halds. „Það með­höndlar mann­eskjur og lík­ams­hluta þeirra sem vörur sem hægt er að kaupa og selja. Þetta er brask sem nýtir sér fátækt, eymd og örvænt­ingu. Þið tókuð öll þátt í við­bjóðs­legu braski.“

Varðandi þann skaða sem fórn­ar­lambið hefði orðið fyrir ef hjón­unum hefði tek­ist ætl­un­ar­verk sitt, sagði dóm­ar­inn: „Hann hefði þurft að eyða rest­inni af ævinni með aðeins eitt nýra og án til­skil­ins fjár­magns fyrir nauð­syn­lega eft­ir­með­ferð.“ Bætti hann við að áhættan hafi ekki verið útskýrð fyrir mann­inum og að hann hafi ekki sam­þykkt þetta „í hvaða merk­ingu sem er“.

Vel skipulagt

Áður en dóm­ur­inn féll, kom fram að Ike, sem er sex­tugur þing­maður í Nígeríu, og eig­in­kona hans, Beatrice, 56 ára, væru sökuð um að leggja á ráðin um að flytja ungan mann frá Nígeríu til Bret­lands til að fá hjá honum nýra. Þá var milli­göngu­maður þeirra Dr. Obinna Obeta, fimm­tugur, einnig kærður en þau höfðu búið til ítar­lega sögu til að reyna að kom­ast upp með þetta en meðal ann­ars not­uðu þau tengsl sín til að redda mann­inum dval­ar­leyfi.

Fórn­ar­lambið er 21 árs gam­all götu­sölu­maður frá Lagos en hann átti að fá tæpar 14 millj­ónir króna fyrir nýrna­að­gerð í Royal Free spít­al­anum í London. Þegar á hólm­inn var komið reynd­ist hann ekki hent­ugur nýrna­gjafi og hófu hjónin því að leyta að nýrna­gjafa í Tyrk­landi.

Það er lög­legt að gefa frá sér nýra en það er ólög­legt að borga ein­hverjum fyrir það. Aðspurð af hverju þau hafi ekki beðið ein­hvern úr fjöl­skyld­unni að gefa dóttur þeirra nýra, svör­uðu hjónin: „Við vildum að áhættan sem fylgdi þessu myndi lenda á ein­hverjum sem við þekktum ekki.“

Mætti grátandi á lögreglustöð

Rannsókn hófst á mál­inu eftir að hinn ungi maður fór til lög­regl­unnar eftir að hafa sofið á göt­unni í nokkra daga. Er hann kom á lög­reglu­stöð­ina var hann grát­andi og í upp­námi.

Fórn­ar­lambið, sem ekki er nafn­greindur af laga­legum ástæðum, sagði fyrir rétti að hann hefði ein­ungis frétt hvað stæði til þegar honum var ekið á spít­al­ann í Norður-London. Í yfir­lýs­ingu frá honum sem lesin var upp í rétt­inum sagði hann: „Ég hefði aldrei sam­þykkt þetta. Líkami minn er ekki til sölu.“ Þá tal­aði hann um að hann ótt­að­ist eigið öryggi sem og öryggi fjöl­skyldu sinnar í Nígeríu sem hefðu fengið heim­sókn og hún beðin um að hætta við ákæruna. „Ég get ekki hugsað mér að fara heim til Nígeríu. Þetta fólk er gríð­ar­lega valda­mikið og ég hef áhyggjur af fjöl­skyldu minni. Jafnvel þótt ég búi eins og er í Bret­landi, veit ég að ég þarf að fara var­lega. Ég hef engan að hér, enga fjöl­skyldu, enga vini. Ég þarf að byrja líf mitt upp á nýtt. Ég hef áhyggjur af fjöl­skyldu minni í Nígeríu en mér var sagt að pabbi hafi fengið heim­sókn og honum sagt að stöðva ákæruna.“

Sagði hann lög­regl­unni að hann vildi ekki krefj­ast bóta frá „slæmu fólki“ því að því fylgdi „álög og slæm lukka“.

„Ætlun mín nú er að vinna og mennta mig og spila knatt­spyrnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta