Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lækninum Erlu Gerði finnst vandræðalega gaman í Góða hirðinum – „Sjaldan til skór í mínu númeri“

Lækninum Erlu Gerði finnst vandræðalega gaman í Góða hirðinum – „Sjaldan til skór í mínu númeri“
Erla Gerður Sveins­dóttir. Mynd Aðalgeir Gestur Vign­is­son.

Neytandi vik­unnar, Erla Gerður Sveins­dóttir, starfar sem sér­fræði­læknir við offitu­með­ferð og einnig sem yfir­læknir hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í Kven­heilsu og Heilsu­brú. Hún er upp­alin í sveit fyrir norðan. Býr í Garðabæ í dag ásamt eig­in­manni, þau eiga tvo drengi á háskóla­aldri sem búa heima og kunna enn að meta mömmu­mat. Til við­bótar er 13 ára gam­all hundur sem er enn dug­legur við að draga hana út í göngu­ferðir. Erla Gerður er með stóran garð og elskar að rækta græn­meti og reita arfa sem er líka hennar hug­leiðsla og slökun. Þau eiga hús í heima­hög­unum fyrir norðan með systur hennar og hennar fjöl­skyldu. Hún fer þangað til að hlaða batt­er­íin þegar tæki­færi gefst og þrífst vel úti í nátt­úr­unni. Vinnan er nú reyndar aðal­á­huga­mál hennar þannig að flestar vöku­stundir fara í vinnu eða und­ir­bún­ing fyrir hana.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu ?

Stundum en mætti vera dug­legri við það. Reyni meira að vanda mig við að kaupa bara það sem þarf. Versla á útsölum eða til­boðum þegar ég mögu­lega get.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég elda flest kvöld heima og með því að skipu­leggja mál­tíð­irnar er hægt að nýta mat mjög vel og bæði hindra mat­ar­sóun og spara í inn­kaupum og tíma. Ég er lík­lega dálítið gam­al­dags búkona. Hráefni er oft notað í fleiri en eina mál­tíð en ég reyni að passa að hafa það fjöl­breytt. Elda til dæmis heila kjúklinga sem er fyrstu mál­tíðin í röð­inni og svo eru afgangar af kjúkling í ýmsum útgáfum, til dæmis með mex­i­könsku eða ind­versku ívafi. Ég nota fryst­inn mjög mikið og set ýmis­konar afganga þangað inn og nýti í súpur og mis­mun­andi rétti. Frysti til dæmis alls­konar græn­meti ef það er orðið þreytt, papriku, grænkál, krydd­jurtir, tómata, afskurð af blóm­káli, brokkoli og þess háttar. Græn­metið er svo soðið vel og töfra­sprot­inn not­aður til að mauka í góðan og hollan grunn fyrir súpur og pott­rétti fyrir hvers­dags­mat­inn, bara krydda vel, fullt af hvít­lauk og tómötum og allir eru sáttir. Í þetta fara svo allskyns kjöt­af­gangar og þess­háttar sem er til í ísskápnum eða hefur safn­ast upp í fyrstinum. Ef vantar upp á prótein­inni­haldið í þessum blöndum má alltaf bjarga sér með alls­konar linsum og baunum. Ég frysti alltaf rest af ostum og það er hægt að gera geggj­aða rétti úr þeim. Held að ég sé orðin nokkuð góð í svona afgangamat­reiðslu. Frysti meira að segja afgang af páska­eggjum til að nota í súkkulaðisósur og súkkulaði­kökur sum­ars­ins.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég reyni auð­vitað að flokka það rusl sem fer af heim­il­inu og koma því til end­ur­nýt­ingar ef hægt. Ég er líka alveg dug­lega að mála og spreyja hús­búnað til að breyta til og nota gam­alt, ekki síst ger­semar sem finn­ast í Góða hirð­inum. Systir mín er ann­ars meist­ari í þessum málum hringrás­ar­hag­kerf­is­ins og ég fæ oft hug­ljómun frá henni. Við systur fáum stundum að heyra frá eig­in­mönnum að við geymum helst til of mikið af dóti, það er nefni­lega aldrei að vita hvenær þetta breyt­ist í ger­semi en lík­lega væri skyn­sam­legra að koma hlutum oftar áfram til nota ann­ar­staðar.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég leyfi mér að kaupa fersk hrá­efni í mat og lítið unnar vörur og sem mest úr nærum­hverfi. Þar spara ég ekki við mig en reyni að fara vel með. Varðandi fatnað þá verða oft­ast vand­aðar tíma­lausar flíkur fyrir val­inu en kaupi núorðið sjaldan skyndi­tísku­vörur. Ég var einu sinni dug­leg að sauma og breyta fötum en er eig­in­lega hætt að nenna því. Þegar ég gef gjafir, reyni ég að gefa eitt­hvað sem hægt er að nota eða upp­lifa. Reyni að lág­marka líkur á að gjafir lendi ónot­aðar í geymslu hjá við­kom­andi. Tæki­fær­is­gjafir geta verið eitt­hvað til að borða svo sem krydd, krydd­jurtir, olíur, vín­flaska, ávaxtakarfa eða eitt­hvað þess­háttar. Leikhús, dek­ur­stund eða ein­fald­lega pen­inga­gjöf við viss tæki­færi.

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á?

Skóm og bókum. Sem betur fer nota ég númer 35 í skóm þannig að það eru sjaldan til skór í mínu núm­eri. Annars held ég að ég væri í verri málum.
Að fara inn í bóka­búð, sér­stak­lega fræði­bóka­búð getur verið mjög erfitt. Svo margt sem ég bara verð að lesa og svo stend ég uppi með fleiri bækur en ég kemst yfir að lesa, er alltaf að bíða eftir rólega tím­anum. Er samt að færa mig meira yfir í raf – og hljóð­bækur til að vera skyn­söm. Svo finnst mér vand­ræða­lega gaman að fara í Góða hirð­inn og nytja­mark­aði til að finna ger­semar. Þar leyfi ég mér að kaupa eitt­hvað þó það sé ekki bráð­nauð­syn­legt.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já miklu máli. Fjar­lægðin frá nátt­úr­inni sem ein­kennir sam­tím­ann er mikið áhyggju­efni. Vís­inda­heim­ur­inn er sífellt að koma fram með betri þekk­ingu á því hvernig þetta nátt­úru­leysi ( e. Nature Deficit Disorder) er trufl­andi fyrir heils­una okkar og dag­lega líðan. Við verðum að bera virð­ingu fyrir nátt­úr­inni og umhverf­inu. Við getum gert svo miklu betur á mörgum sviðum. Eitt þeirra er að vera meira sjálf­bær í mat­væla­fram­leiðslu og draga úr inn­flutn­ingi.
Með jarð­hit­anum okkar höfum við svo mörg tæki­færi. Ég veit samt upp á mig skömm­ina í ýmsum málum hvað varðar umhverfið. Til dæmis ferð­ast ég frekar mikið bæði inn­an­lands og utan, oft vinnu­tengdar ferðir en friða sam­visk­una með því að gróð­ur­setja mikið af trjám fyrir norðan með föður mínum. Ég er líka með nagla­dekk á vet­urna, hef of oft lent í erf­iðum aðstæðum á ferð um landið til að þora að hætta því.

Annað sem þú vilt taka fram?

Vaxandi áhugi á end­ur­nýt­ingu og að draga úr mat­ar­sóun finnst mér frá­bær og hef mikla trú á kom­andi kyn­slóðum. Ein hug­mynd sem mig langar að sjá ein­hvern gera að veru­leika er að búa til stað þar sem hægt er að koma og kaupa afganga af allskyns smíða- og fönd­ur­vörum og jafn­vel aðstöðu til að búa til eitt­hvað nytam­legt og skemmti­legt úr því. Býð fram heil­mik­inn lager af nöglum, skrúfum, verk­færum, máln­ing­araf­göngum, gler­krukkum, myndarömmum, fatn­aði, efnis- og garn­af­göngum úr mínum bíl­skúr til nota í verk­efnið. Held að margir fleiri bíl­skúar og geymslur lumi á verð­mætum sem hægt væri að vinna úr og nýta á skemmti­legan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi