Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Körfuboltadómarinn Ísak Ernir sendi unglingsstúlku óviðeigandi skilaboð: „Þetta voru bikiní myndir“

Körfuboltadómarinn Ísak Ernir sendi unglingsstúlku óviðeigandi skilaboð: „Þetta voru bikiní myndir“
Mynd / Skjáskot af Stund­inni (nú Heim­ildin).

Körfu­bolta­dóm­ar­inn Ísak Ernir Krist­ins­son hefur ekki dæmt frá ára­mótum þrátt fyrir að hafa um ára­bil dæmt mjög mikið í efstu deild karla og kvenna hér á landi – auk þess sem hann er alþjóð­legur FIBA-dóm­ari.

Ísak Ernir segir á Facebook-síðu sinni í færslu frá 25. febr­úar síð­ast­liðnum frá því hvers vegna hann hafi ekki dæmt síðan í fyrra:

Mynd / Skjáskot af Karfan.is.

„Nú hef ég ekki dæmt frá ára­mótum. Ástæð­urnar eru ýmsar. Ein af þeim er það skeyt­inga­leysi sem for­ysta KKÍ hefur sýnt okkur dóm­ur­unum.“

Í færslu hans er vísað til greinar er birt­ist á Vísi deg­inum áður sem ber yfir­skrift­ina:

„Enginn dóm­ari hefur komið til mín og sagst vera að hætta því hann fái ekki nógu vel greitt“

Mannlífi hafa borist ábend­ingar um að Ísak Ernir hafi sent ung­lings­stúlku óvið­eig­andi skila­boð á sínum tíma.

Blaða­maður Mannlífs ræddi við stúlk­una, sem vill ekki koma fram undir nafni, en skila­boð Ísaks Ernis til hennar sendi hann er hún var ein­ungis 17 ára gömul.

„Hann sendi á mig þegar ég var 17 ára. Reply á story sem ég var að pósta á instagram, þetta voru bik­iní myndir. Fannst þetta óvið­eig­andi.

Þá fannst mér hann á tíma­bili vera að dæma óþarfa mikið á mig miðað við aðra; veit ekki hvort hann hafi verið eitt­hvað bitur eða hvað. En kannski var hann bara að dæma eins og honum fannst. Hann hefur ekki sent neitt nýlega.“

Samkvæmt því sem segir á vefnum barn.is (Umboðs­maður barna) kemur fram að „ein­stak­lingar verða lög­ráða við 18 ára aldur og eru þá sjálf­ráða og fjár­ráða.“

Einnig:

„Börn eru þeir ein­stak­lingar sem ekki hafa náð 18 ára aldri. Börn eru ólög­ráða og njóta for­sjár for­eldra sinna.“

Ísak Ernir verður þrí­tugur í sumar; hann er kvæntur Margréti Bjarna­dóttur og eiga þau saman eitt barn.

Margrét er dóttir Bjarna Bene­dikts­sonar for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fjármála- og efna­hags­ráð­herra.

Í grein á Stund­inni (nú Heim­ildin) sem ber yfir­skrift­ina:

Ungur Sjálf­stæðis­maður gerður að stjórnar­for­manni opin­bers fyrir­tækis

má lesa eft­ir­far­andi:

„Nýr stjórn­ar­for­maður Kadeco er hinn 24 ára gamli Ísak Ernir Krist­ins­son en hann var skip­aður í stjórn­ina í síð­ustu viku. Ísak, sem hefur verið virkur í flokks­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 16 ára aldri, var skip­aður í stjórn­ina af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Hann tekur við for­mennsku stjórnar af Georgi Brynjar­syni hag­fræð­ingi. Sjálfur er Ísak flug­þjónn hjá Wow air ásamt því sem hann stundar nám við við­skipta­fræði í HR.

Laun stjórn­ar­for­manns eru 270 þús­und krónur á mán­uði. Þá hefur Ísak gegnt stöðu for­manns Heimis, félags ungra Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­nesbæ, setið í stjórn Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna ásamt því að hafa gegnt for­mennsku í Sjálf­stæð­is­fé­lagi Kefla­víkur. Þar að auki var hann vara­bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ á síð­asta kjör­tíma­bili.

Félagið Kadeco er þró­un­ar­fé­lag sem fer með þær fast­eignir sem áður voru í umsjá Banda­ríkja­hers. Samkvæmt sér­stökum þjón­ustu­samn­ingi sér félagið um þróun og útleigu þess lands sem áður til­heyrði hernum.“

Ísak Ernir, sem þótti á sínum tíma efni­leg­asti körfu­bolta­dóm­ari lands­ins, er nú hættur að dæma.

Mannlíf hefur fengið ábend­ingar um óvið­eig­andi sam­skipti hans við aðra leik­menn – og eru þær ábend­ingar til skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi