Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myrti nágranna sinn með slökkvitæki: „Það er hálfur bærinn á eftir honum“

Myrti nágranna sinn með slökkvitæki: „Það er hálfur bærinn á eftir honum“

Þórarinn Gíslason hringdi í neyð­ar­lín­una og til­kynnti að hann hafi komið að  nágranna sínum, Borgþóri Gúst­afs­syni með­vit­und­ar­lausum og blóð­ugum. Þórarinn sagði lög­reglu að hann hafi ekki haft nokkuð að gera með áverka Borgþórs en að hann gruni nágranna­konu þeirra. Þetta var þann 7. októ­ber árið 2007 og var Þórarinn sam­dæg­urs dæmdur í gæslu­varð­hald, grun­aður um morðið á nágranna sínum.

Borgþór Gúst­afs­son fannst með­vit­und­ar­laus í hús­næði sínu við Hring­braut 121. Hann lá alblóð­ugur í rúmi sínu og við hlið hans var slökkvi­tæki. Þórarinn, sem kom að honum í rúm­inu var nágranni Borgþórs. Að sögn Þórarins höfðu þeir setið saman við drykkju um nótt­ina og fram á morgun. Klukkan 13.30 hringdi Þórarinn í neyð­ar­línu en sagð­ist ekki hafa ollið nágranna sínum neinum skaða. Fljótt fór lög­reglu að gruna Þórarinn og var hann hand­tek­inn sam­dæg­urs.

„Þórar­inn var yfir­heyrður af lögreglu dag­inn eftir voða­verkið. Hann sagð­ist alsak­laus af verkn­að­inum og kvaðst hafa setið við drykkju með Borgþóri frá því á laug­ar­deg­inum. Um hádeg­is­bil á sunnu­deg­inum hafi Borgþór svo gengið til náða. Sjálf- ur hafi Þórar­inn farið til síns heima og haldið áfram að drekka. Fjörutíu mínútum seinna hafi hann svo kom- ið aftur heim til Borgþórs. Þá hafi hann legið blóðugur í rúminu. Við hlið hans hafi verið slökkvi­tæki sem hann hafi ýtt frá. Þórar­inn seg­ist hafa fengið á sig blóðbletti við það að taka um höfuð Borgþórs til þess að opna öndun­ar­veg­inn og full­yrðir að blóðblettir heima hjá honum hafi komið til þegar hann fór þangað í fylgd lögreglu.“ (DV, 16.októ­ber 2007)

Var í hættu á að missa húsnæðið

Allar íbúðir húss­ins voru í eigu Félags­bú­staða Reykja­vík­ur­borgar og voru flestir íbú­anna óreglu­fólk. Borgþór átti í hættu á að missa hús­næðið en hann var sagður hafa gert íbúð­ina að hálf­gerðu fíkni­efna­greni.

„Eftir ítrek­aðar kvart­anir ná­ granna kröfðust Félagsbústaðir þess að Borgþór yrði bor­inn út. Málið fór fyrir dómstóla og kvað héraðsdómari upp úr að Borgþór skyldi áfram vera í íbúðinni vegna þess að hann hefði aðeins fengið eina form­lega viðvörun. Samkvæmt leigu­samn­ingi þurfti hins vegar tvær.“ (DV, 9.októ­ber 2007)

„Það er hálfur bær­inn á eftir honum og fólk kemur til hans bæði dag og nótt. Ef hann er ekki heima fer það bara inn um svala­dyrnar. Nú er hann dáinn, bless­aður,“ sagði Georg Viðar Björns­son í sam­tali við DV en hann var hús­vörður Hring­brautar 121.

Borgþór átti við fíkni og geð­vanda að stríða. Saka­fer­ill náði frá árinu 1983 til dauða­dags og var hann dæmdur þrjá­tíu sinnum fyrir brot á hegn­ing­ar­lögum. Flestir dómanna voru fyrir þjófnað en hann var einu sinni dæmdur fyrir lík­ams­árás.

Blóðferlar rannsakaðir

Vandvirk rann­sókn var gerð á vett­vangi morðs­ins við Hring­braut 121. Skoðun blóð­ferla leyddi í ljós að þeir hafi orðið við mikið högg en Þórarinn sagði félaga sinn hafa hóstað upp blóði.

„Við aðal­með­ferð máls­ins kom fram að blóðug föt hefðu fund­ist inni hjá hinum ákærða en hann skýrði það á þá leið að hann hlyti að hafa þurrkað sér í þau eftir að hafa fundið nágranna sinn alblóð­ugan. Þá fund­ust áverkar á höndum hins ákærða sem benda til aðildar hans að mál­inu.“ (Vísir, 22.maí 2008)

Þórarinn hélt áfram fram sak­leysi sínu, þrátt fyrir yfir­gnæf­andi sönn­un­ar­gögn sem ekki voru honum í hag. Eft­ir­lits­mynda­vélar sem voru í sam­eign hús­næð­is­ins sýndu menn­ina ríf­ast stuttu fyrir and­lát Borgþórs. Þeir hafi yfir­gefið hús­næðið en snúið til baka um átta mín­útum síðar. Þá hafi þeir baðað út höndum og þótti aug­ljóst að ósætti væri á milli mann­ana. Borgþór var klæddur úlpu sem fannst síðan alblóðug í íbúð hans.

„Þegar lögregla spurði Þórarin um ferðir hans inn og út úr húsinu, skömmu fyrir atburð­inn, kvaðst hann ekki muna til þess að hafa farið út. Þórar­inn var alldrukk­inn þegar hann var hand­tek­inn.“ (DV 16.októ­ber 2007)

Dæmdur sakhæfur

Þórarinn var dæmdur sak­hæfur en man lítið frá degi morðs­ins vegna mik­illar drykkju. Aldrei kom í ljós um hvað menn­irnir höfðu rif­ist en Þórarinn var dæmdur sekur og sagður ekki eiga sér neinar máls­bætur. Þórarinn var vopn­aður slökkvi­tæki þegar hann barði Borgþór þrisvar sinnum í höf­uðið með þeim afleið­ingum að hann lét lífið. Þórarinn fékk 16 ára fang­els­is­dóm, að und­an­skildum þeim tíma sem hann hafði setið í gæslu­varð­haldi. Þórarni gert að greiða systk­inum Borgþórs hálfa milljón króna í skaða­bætur og yfir milljón króna í máls­kostnað.

„Lögmaður Þórarins sagði eftir að dóm­ur­inn var kveð­inn upp að tekin yrði ákvörðun síðar um það hvort mál­inu yrði áfrýjað. Til þess hefur Þórarinn fjórar vikur Ólafía Gúst­afs­dóttir, systir Borgþórs, sagði við blaða­mann Vísis að hún teldi dóm­inn ásætt­an­legan en „það á eng­inn að þurfa að deyja á þennan hátt, hvorki hann né aðrir.“(Vísir, 22. maí 2008)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi