Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

David er ákærður fyrir að drepa eiginkonu sína: „Hún grátbað mig um að hjálpa sér“

David er ákærður fyrir að drepa eiginkonu sína: „Hún grátbað mig um að hjálpa sér“

Breskur maður sem myrti eig­in­konu sína á dval­ar­heim­ili þeirra í Kýpur, segir hana hafa „grát­beðið“ hann um að drepa hana.

David Hunter, fyrrum kola­námu­maður frá Nor­hum­ber­land, hefur verið ákærður fyrir morð að yfir­lögðu ráði en eig­in­kona hans lést af völdum köfn­unar árið 2021. Mirror segir frá þessu.

Meðan á vitn­is­burði hans stóð, tal­aði David um hið „full­komna“ hjóna­band þeirra, sem stóð yfir í 52 ár. Hinn 75 ára maður hefur við­ur­kennt að hafa myrt eig­in­konu sína og halda verj­endur hans því fram að um líkn­ar­dauða hafi verið að ræða, að hennar beiðni en hún þjáð­ist af hvít­blæði á loka­stigi.

Læknir kon­unnar sagði hins vegar fyrir rétti í síð­ustu viku að hún hefði verið með sjald­gæft blóð­krabba­mein, en hafi mögu­lega ekki verið með ban­vænt hvít­blæði.

Í dag sagði David frá því að Janice, eig­in­kona hans, hefði sífellt orðið veik­ari og veik­ari af blóð­krabb­anum og að lífs­gæði hennar hafi ekki verið nein.

„Hún grát­bað mig um að hjálpa sér,“ sagði David með hjálp túlks við rétt­inn. „Fimm eða sex vikum áður en hún dó, var hún að biðja mig að hjálpa sér, hún spurði sífellt meira um það á hverjum degi.“

Beiðni David í des­em­ber um að vera ákærður fyrir mann­dráp af gáleysi var ekki sam­þykkt og hefur hann því verið ákærður fyrir morð. Sak­sókn­arar féllust ekki á að eig­in­kona hans hafi beðið hann um að binda enda á líf sitt án sann­ana.

„Ef við sam­þykkjum þetta, myndu fram­vegis allir menn sem drepa konur segja „Við vorum með sam­komu­lag“,“ sagði rík­is­sak­sókn­ar­inn Andreas Hadjikyrou við blaða­menn.

„Hún var sof­andi í leð­ur­stólnum niðri og síð­ustu viku höfum við sofið saman í þessum stólum,“ sagði David fyrir rétti í dag. „Mér fannst ég svo hjálpar- og von­laus að ég gæti ekk­ert gert fyrir hana. Á hverjum degi bað hún mig um þetta af meiri ákefð. Ég vildi það ekki eftir 57 ára sam­band með henni. Ég vildi það alls ekki. Hún byrj­aði að grát­biðja mig. Ég vildi ekki gera það, ég neit­aði. Hún sagði „Ég get ekki haldið áfram, þetta er ekk­ert líf fyrir mig. Við förum bara á spít­al­ann og höngum heima. Ég get ekki haldið áfram“. Hún fór að vera hyster­ísk, þannig að ég sagði við hana „Já, ég skal hjálpa þér. Ég mundi ekki segja þér hvenær eða hvernig“. Ég ætl­aði ekki að láta verða að því. Ég sagði henni þetta til að róa hana niður.“

Lög­fræð­ingar Davíðs sögðu að hann hafi verið illa átt­aður á þessum tíma og að hann þyrfti að fara í geð­mat. Hins vegar komst dóm­stóll­inn að því að Hunter hafi verið skýr þegar hann framdi verkn­að­inn og vitað hvað væri að ger­ast. Það hafi sann­ast er hann hringdi í bróður sinn eftir á þar sem hann sagð­ist ætla einnig að drepa sjálfan sig.

David sagð­ist hafa vonað síð­ustu níu dag­ana fyrir and­lát hennar, að hún myndi skipta um skoðun. „Ég myndi aldrei drepa eig­in­konu mína,“ sagði hann sak­sókn­ar­anum Andreas Hadjikyrou undir yfir­heyrslu.

Verjandi hans, Ritsa Pekri spurði hann hvernig síð­ustu dagar fram að and­láti konu hans hafi verið en David svar­aði: „Hún grát­bað og grát­bað og grát­bað. Hún var ekk­ert að hugsa um sig. Síðustu tvær til þrjár vikur gat hún ekki hreyft hend­urnar sínar og átti í vand­ræðum með fæt­urnar, hún náði ekki að halda jafn­vægi. Hún borð­aði bara súpur, hún gat ekki haldið neinu niðri. Hún missti mikla þyngd. Hún misst svo mörg kíló að það var ekk­ert hold til að sprauta hana í.“

Veikindi hennar ollu því að Janice þjáð­ist af svo slæmum nið­ur­gangi að síð­asta þrjú og hálfa árið hefði hún þurft að ganga með bleyju, sagði David í rétt­ar­höld­unum.

„Ég hugs­aði um það allan sól­ar­hring­inn hvað ég ætti að gera. Ég var að reyna að fá hana til að skipta um skoðun allan tím­ann. Ég var að segja henni að þetta væri ekki auð­velt.“

Hann lýsti því hvernig hann að lokum hélt lófum sínum yfir vit­und hennar. „Ég man ekki mikið frá þessum loka­degi. Ég fór að laga kaffi og hún byrj­aði að gráta,“ sagði David.

„Ég man að ég hafði lóf­ana yfir munn hennar og nef. Ég veit ekki einu sinni hvernig mér datt það í hug. Ég veit ekki hversu lengi ég hélt hönd­unum mínum þar. Hún reyndi ekki að stöðva mig. Ég sagði í yfir­heyrsl­unni sagði ég að hún hefði veitt mót­stöðu, en hún gerði það ekki. Hún hreyfði höf­uðið en ég held hún hafi ekki einu sinni opnað augun.“

Lögmaður David, Michael Polak frá Justice Abroad sam­tök­unum sagði: „Ég held að hann hafi gert vel [miðað við sönn­un­ar­gögnin]. Hann er ánægður að geta talað um þetta. Hann var eina mann­eskjan sem var á vett­vangi þegar þetta gerð­ist. Enginn veit í raun hvað gerð­ist fyrir utan hann. Þetta er mjög sorg­legt mál. Þau áttu langt og ást­ríkt sam­band. Hann tók einu erf­ið­ustu ákvörðun sem nokkur getur verið beð­inn um af ást­vini.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta