Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Haraldur geðlæknir segir ástandið ekki gott: „Allt að 10 ára bið eftir geðlækni á Íslandi“

Haraldur geðlæknir segir ástandið ekki gott: „Allt að 10 ára bið eftir geðlækni á Íslandi“
Haraldur Erlends­son geð­læknir.

Haraldur Erlends­son geð­læknir segir gríð­ar­legt upp­lýs­inga­flóð og upp­lýs­inga­áreiti vera eina stærstu heilsuógn sam­tím­ans. Haraldur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir geð­heilsu­vanda þjóð­ar­innar orð­inn að stærsta sam­fé­lags­máli sam­tím­ans:

Viðtöl Sölva vekja ætíð mikla athygli.

,,Mesta ógnin við heilsu nútíma­manns­ins eru of miklar upp­lýs­ingar og of mikið áreiti. Hvort sem það eru sam­fé­lags­miðlar, sjón­varp, útvarp eða annað. Skyn­færin og heilin eru stöðugt að taka við upp­lýs­ingum án þess að hafa næði til að vinna almenni­lega úr þeim. Það er ofur­flóð af upp­lýs­ingum í gangi nán­ast allan sól­ar­hring­inn. Við þurfum öll ró og að vera í stað og stund án þess að vera að mót­taka upp­lýs­ingar.

Svefninn er orð­inn helsta skjólið fyrir heil­ann til að ná ein­hvers konar úrvinnslu. Rann­sóknir sýna að ef fólk nær ekki alvöru draum­svefni og djúpsvefni, þá lærir það illa þær upp­lýs­ingar sem heil­inn hefur fengið inn. En nú er staðan orðin þannig að margir ná ekki einu sinni almenni­legum svefni, meðal ann­ars vegna þess að áreitið á heil­ann er búið að vera of mikið,” segir Haraldur og heldur áfram:

,,Vandamál tengd geð­heilsu eru orðin svo stór og algeng að engin geð­heilsu­þjón­usta mun ráða við að sinna þeim ef svona heldur áfram. Vinnu­fram­lag í þjóð­fé­lag­inu er að með­al­tali skert um 30% vegna geð­rænna vanda­mála og bið eftir geð­lækni er orðin allt að 10 árum ef þú ert ekki með bráða­vanda. Vanda­málin virð­ast bara vera að aukast, þannig að það er aug­ljóst að það þarf að finna ein­hverjar nýjar leiðir til að takast á við þennan far­aldur. En það er aug­ljós­lega eitt­hvað mikið að í því hvernig við lifum lífi okkar miðað við það hve hratt lík­am­legri og geð­rænni heilsu okkar er að hraka.”

Haraldur seg­ist hafa séð það í störfum sínum og sam­tölum við kollega að þörfin eftir geð­heilsu­að­stoð hafi auk­ist gríð­ar­lega eftir Covid. Það tíma­bil hafi aukið á vanda margra sem voru í vanda fyrir:

,,Við geð­læknar hittum oft fólk núna sem er komið vel á þrí­tugs­aldur sem fer nán­ast ekki út úr her­berg­inu sínu og lifir bara eins og það sé 12 ára. Það hefur enga þraut­seigju eða til­gang og hefur aldrei orðið full­orðið. Ef þú gefur fólki aldrei erf­ið­leika eða eitt­hvað sem þýðir að það verður að standa í lapp­irnar endar það illa. Til þess að verða í alvöru full­orðin þurfum við að takast á við verk­efni sem virð­ast vera okkur um megn. Við þetta verður til mann­dóms­vígsla og fólk fer að trúa á sjálft sig. Við erum ekki hönnuð fyrir að fest­ast í þæg­ind­ara­mma þar sem reynir aldrei á okkur. Menn­ingar sveifl­ast á milli mildi og hörku og það er hægt að fara of langt í báðar áttir.

Við sem sam­fé­lag erum komin mjög langt í góð­mennsku, sem er ynd­is­legt, en á sama tíma erum við að taka burt þraut­seigju. Harkan sem var hérna á árum áður er nátt­úru­lega bara ill­mennska ef hún gengur of langt, en að sama skapi er of mikil góð­mennska bara með­virkni. Við erum alltaf að leita að hinum gullna með­al­vegi í þessu, en núna erum við komin ansi langt í að þurrka út þraut­seigju og innri styrk í okkar sam­fé­lagi.”

Haraldur segir að Covid far­ald­ur­inn hafi sýnt okkur mik­il­vægi þess að ekki verði til and­rúms­loft múgsefj­unar, þar sem opin umræða er stoppuð:

,,Ein mesta ógn við lýð­ræð­is­rétt­indi í dag er þegar rík­is­valdið ætlar að ganga of langt í að hafa áhrif á líf þegn­anna. Það er aldrei gott þegar það mynd­ast þannig ástand að það sé bara ein skoðun leyfð og rétt­indi tekin af fólki og engin opin­ská umræða tekin í alvöru. Við þurfum and­stæðar skoð­anir, það er algjör­lega lífs­nauð­syn­legt í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi. Öll ferli í þjóð­fé­lag­inu þurfa sífellda end­ur­skoðun. Á sínum tíma var búin til þrí­skipt­ing valds­ins og svo hafa fjöl­miðlar tekið að sér hlut­verk fjórða valds­ins. En fjöl­miðl­arnir hafa í raun ekki fjár­hags­legt umboð til að standa undir því hlut­verki. Mín skoðun er sú að við þyrftum að ræða um hvernig við getum haft fjórða valdið form­legt í okkar sam­fé­lagi. Þá myndi það sinna því hlut­verki að vera eins konar ,,devil´s advocate” og fara í gegnum öll ferli með gagn­rýnum augum. Er dóms­valdið of hlið­hollt undir fram­kvæmda­valdið? Eru fjöl­miðlar að standa undir hlut­verki sínu og svo fram­vegis. En þetta yrði auð­vitað vanda­samt í fram­kvæmd,” segir Haraldur og heldur áfram:

,,Stóra spurn­ingin í sam­fé­lögum í gegnum tíð­ina er oft sú sama. Hvenær er hinn almenni borg­ari orð­inn þræll? Hvað er eðli­legt að almennur maður hafi mikil rétt­indi og hvað er eðli­legt að hann vinni mikið? Nýju kyn­slóð­irnar sjá þetta svo­lítið í öðru ljósi en við og for­feður okkar og vilja losna úr þræl­dómi þess að vera stans­laust að vinna og geta ekki notið lífs­ins. Margir eru að stíga út úr þessu kapp­hlaupi, sem ég held að sé gott, svo fram­ar­lega sem fólk gerir eitt­hvað upp­byggi­legt.”

Viðtalið við Harald og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á sol­vi­tryggva.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi