Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Getur verið afl sem enginn ræður við

Getur verið afl sem enginn ræður við
Mikael Tamar Elíasson

Mikael Tamar Elíasson er vél­stjóri á línu­báti. Þótt hafið bláa hafið hug­ann dragi þá leyn­ast þar hættur og lenti Mikael Tamar í kröppum dansi þegar brot skall á bát sem hann var á.

Hann ólst upp fyrir vestan. Fór svo suður til að vinna í fiski í Grinda­vík og fór svo á sjó­inn 18 ára gam­all. Hann fór á neta­bát­inn Maron GK sem var einmitt gerður var út frá Grinda­vík. Síðan fór hann á Tjalda­nes GK hjá sömu útgerð en hann vann hjá útgerð­inni í eitt og hálft ár.

Mágur hans spurði hann síðan hvort hann væri til­búnn til að prófa að fara á línu­bát. Hann réð sig svo um borð í Gísla Súrsson og segir að eftir það hafi ekki verið aftur snúið.

„Það ævin­týri er nán­ast búið að vera óslitið. Ég hætti svo hjá þeirri útgerð og fór síðan að róa fyrir útgerð í Sand­gerði og fór svo til Noregs þar sem ég var í eitt og hálft ár að prófa ævin­týra­mennsk­una þar. Ég kom aftur heim 2011 og fór þá aftur á Gísla Súrsson. Ég hafði byrjað þar sem háseti en útgerðin lét smíða stærri báta og þá var mér treyst til þess að taka vél­stjóra­rétt­indi og verða vél­stjóri um borð. Þannig að maður hefur fengið tæki­færi til þess að vinna sig upp stig­ann; fengið traust til þess sem maður er gríð­ar­lega þakk­látur fyrir.“

Vésteinn GK var smíð­aður 2018 og hefur Mikael Tamar verið vél­stjóri þar síðan þá.

Hvað vill hann segja um sjó­manns­lífið?

„Mér finnst rosa­lega gott að sigla bara frá landi. Þegar maður er kom­inn út á sjó í fjög­urra manna sam­fé­lagi þá er þetta bara ég og strák­arnir og ég er búinn að þekkja tvo þeirra í mörg ár. Þetta erum bara við vin­irnir að hitt­ast og vinna okkar vinnu. Það skiptir svo miklu máli að sam­fé­lagið sé gott en þegar við komum í land þá förum við stundum saman til útlanda í frí ásamt mökum. Það kemur ýmis­legt upp á í fjög­urra manna sam­fé­lagi og það skiptir máli að geta verið til staðar fyrir hvern annan. Það þarf að ræða suma hluti og það þarf að finna lausnir.“

Snapchat og Instagram

Lífið um borð í litlum línu­báti er oft krefj­andi og nefnir Mikael Tamar í því sam­bandi óreglu­legan svefn og miklar vökur sem reyna oft á.

„Ég þekki lítið annað en þennan veiði­skap þar sem ég hef verið nán­ast allan minn sjó­manns­feril á þessum minni línu­bátum sem eru kannski ekk­ert svo rosa­lega litlir lengur; með tæp­lega 20.000 króka.

Það er margt sem heillar mig við þennan veiði­skap; þetta litla fjög­urra manna sam­fé­lag þar sem við­fangs­efnin eru mis­mun­andi. Sam­heldni áhafnar skiptir gríð­ar­lega miklu máli og gerir starfið mun auð­veld­ara. Að geta hlegið og haft gaman í vinn­unni þó þreyta sé komin í skrokk­inn er mik­il­vægt og eigum við strák­arnir á Vésteini GK mjög auð­velt með það því grínið og létt­leik­inn er aldrei langt undan. Ég tel mig vera gríð­ar­lega hepp­inn að vera hluti af þess­ari áhöfn með Tedda, Tobba og Ragga. Oft og tíðum leyfum við ver­öld­inni að fylgj­ast með á Snapchat eða Instagram og vekur það ævin­lega mikla lukku og hlátur þegar við setjum inn á þessa miðla upp­á­tæki okkar og hvernig lífið gengur fyrir sig á 30 tonna línu­báti.“

Gríðarlegt magn af fiski

Hann lýsir vinn­unni í þessu litla sam­fé­lagi.

„Vinnan um borð er þannig að á drætt­inum eru stöðv­arnar fjórar; rúlla, blóðgun, upp­stokk­ari og króka­rétt­ingar. Þegar allir eru þaul­vanir þá sér upp­stokk­ara­mað­ur­inn um króka­rétt­ing­arnar líka en ef það þarf auka­hendur í gang­inn í stuttan tíma þá stekkur blóðg­un­ar­mað­ur­inn til. Þannig náum við að búa til auka­svefn og er því yfir­leitt alltaf einn í koju.“

Mikael Tamar segir að þeir séu allir komnir með „plús 15 ár undir beltið á línu“. „Því er þetta kær­komið fyr­ir­komu­lag þegar úthöldin eru löng og dag­arnir langir og þá aðal­lega á sumrin þegar veðrið er með besta móti og hægt að sækja sjó­inn allt úthaldið sem í gegnum tíð­ina hefur verið 15-20 dagar.“

Yfir ver­tíð­ar­mán­uð­ina sækja þeir sjó­inn aðal­lega frá Grinda­vík en sigla svo austur um eða eftir miðjan maí og eru þá yfir­leitt á Stöðv­ar­firði eða Nes­kaup­stað.

„Þessi ver­tíð sem nú er afstaðin hefur verið mjög frá­brugðin síð­ustu ver­tíðum og róðra­lag með minnsta móti hjá okkur sökum kvóta­skerð­ingar sem út frá augum sjó­manns­ins er grát­legt því þessa daga sem við höfum farið á sjó­inn höfum við komið að landi með öll kör full af fiski, afla upp undir 25 tonn.

Það var gríð­ar­legt magn af fiski á mið­unum og heyrði maður þá sögu allt frá Aust­fjarð­ar­miðum og vestur í Breiða­fjörð að flesta vant­aði bara kvóta til þess að sækja fisk­inn. Það er von allra að kvóta­aukn­ing verði áþreif­an­leg þegar nýtt kvótaár gengur í garð 1. sept­em­ber.“

Munaði litlu

Þótt sjór­inn lokki og laði þá getur hann sýnt á sér sínar verstu hliðar og tekið líf. Mikael Tamar hefur lent í hættu á sjó.

„Það eru mörg ár síðan. Það var einmitt á gamla Gísla Súrssyni en þá fengum við brot á okkur. Ég var að fara að kippa rúlll­unni inn fyrir þegar við fengum brot á bát­inn. Það var hand­fang á rúll­unni sem ég hélt dauða­haldi í þegar við fengum brotið á okkur en bát­ur­inn lagð­ist á hlið­ina.“ Mikael Tamar lenti í köldum sjónum og hélt fast í hand­fangið. „Þegar bát­ur­inn rétti sig af aftur þá svona hálf­part­inn skol­að­ist ég inn fyrir aftur. Ég var renn­andi blautur og í sjóstakki og var þess vegna orð­inn ansi þungur. Ef ég hefði misst takið á rúll­unni þá værir þú ekki að taka við­tal við mig. Það var kol­vit­laust veður.

Ég fór svo inn í brú og sat þar renn­andi blautur eftir að hafa klætt mig úr blautum föt­unum og sat við hlið­ina á skip­stjórn­ar­stólnum. Skip­stjór­inn sagði að við gætum ekk­ert farið að beita okkur í þessu og tók stímið í land. Þá fengum við annað brot á okkur sem í raun­inni sprengdi glugg­ann.“

Mikael Tamar segir að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem hann var veru­lega hræddur á sjó. „Þarna upp­lifði ég í fyrsta skipti alvöru sjó­hræðslu. Sjórinn er eitt­hvað afl sem maður ræður engan veg­inn við. Þetta er bara óbeiðslað afl. Ég reyndi að halda kúl­inu eins og ég gat þó allt væri nötr­andi inni í mér. Maður reyndi að bera sig vel þó maður hafi verið nötr­andi á bein­unum.“

Jú, hafið gefið og hafið tekur.

„Ég hef alltaf borið virð­ingu fyrir haf­inu. Maður kannski horfir á sjó­inn sem er sléttur og fagur og bát­ur­inn hreyf­ist ekki og svo nokkrum dögum seinna er þetta orðið að ein­hverju afli sem eng­inn ræður við. Skjótt skip­ast veður í lofti. Við getum verið í renni­blíðu en svo nokkrum klukku­stundum síðar í slag við hafið í hauga­brælu.“

Greinin birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi