Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áslaug Arna: „Virkilega ánægjulegt að sjá þetta unga fólk að læra þessa mikilvægu iðn“

Áslaug Arna: „Virkilega ánægjulegt að sjá þetta unga fólk að læra þessa mikilvægu iðn“
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir kynnti sér Kvik­mynda­skóla Íslands og var hæst ánægð með starfið sem þar fer fram.

Ráðherra háskóla-, iðn­að­ar­mála og nýsköp­unar, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, kom í heim­sókn í Kvik­mynda­skóla Íslands í gær, mánu­dag­inn 15.maí, til að kynna sér starf­sem­ina. En það eru liðin þrjú og hálft ár síðan Kvik­mynda­skóli Íslands sótti form­lega um að fær­ast upp á háskóla­stig og þar með úr ráðu­neyti mennta- og barna­mála og yfir í ráðu­neyti háskóla­mála sem Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir stýrir nú. Síðasta haust fór fram alþjóð­leg úttekt á Kvik­mynda­skól­anum sem lauk með ánægju­legri nið­ur­stöðu. Nefndin sem tók skól­ann út í haust var skipuð Dr. Stephen Jackson, Bret­landi, Dr. Christinu Roznyai, Ung­verja­landi og Ralph A. Wolff frá Banda­ríkj­unum en öll eru þau sér­fræð­ingar í gæða­kerfum háskóla. Nið­ur­staða úttekt­ar­innar var að nefndin stað­festi að nám og kennsla sé á háskóla­stigi. Nefndin taldi hins­vegar ekki að skól­inn væri til­bú­inn í að bera nafnið háskóli fyrr en að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum sem hún útli­staði og Kvik­mynda­skól­inn hefur notað síð­ustu mán­uði í vinnu til að upp­fylla.

Ráðherra kíkti inní tíma hjá Þor­steini Bachmann leik­ara þar sem hann kenndi leik­list­ar­nemum hvernig á að gera leik­araprufur fyrir hlut­verk með því að taka sjálf upp mynd­bandið af sér í hlut­verk­inu án þess að hafa mót­leik­ara. En þetta er orðið venjan í leik­araprufum í dag, þar sem leik­arar geta tekið þátt í slíkum prufum fyrir stór Hollywood verk­efni hvar sem þau eru stödd á hnett­inum, á Kópa­skeri eða í Khisinau.

Síðan hitti ráð­herra hand­rits­höf­unda og leik­stjóra sem eru að klára loka­verk­efni sitt enda útskrift fyrir þessa önn Kvik­mynda­skól­ans á næsta leiti.

Loks var farið í kvik­mynda­sal skól­ans þar sem sýnd voru mynd­bönd og mál­efni skól­ans rædd við ráð­herra. En svo þurfti ráð­herra að fara enda skyldur hans margar þar sem leið­toga­fundur Evr­ópu­ráðs­ins hefst í dag.

Áslaug Arna sagði að heim­sóknin hefði verið ánægju­leg og henni væri ljóst hvað skól­inn væri íslenskum kvik­mynda­iðn­aði mik­il­vægur. „Fræðandi og áhuga­verð heim­sókn,“ sagði ráð­herr­ann. „Virki­lega ánægju­legt að sjá þetta unga fólk að læra þessa mik­il­vægu iðn.“

Kvik­mynda­skóli Íslands hefur frá árinu 2004 útskrifað um 600 nem­endur úr skól­anum. Samkvæmt rann­sóknum sem skól­inn hefur látið gera hafa yfir 90% útskrif­aðra nem­enda unnið í ein­hvern tíma við kvik­mynda­gerð að námi loknu og um 40% þeirra hafa gert það allan tím­ann frá útskrift. Kvik­mynda­skóli Íslands er, ásamt Kvik­mynda­mið­stöð­inni, orð­inn ein af tveimur mik­il­væg­ustu stoðum kvik­mynda­iðn­aðar á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi