Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnar Wium fékk andlega vakningu eftir áralanga neyslu: „Ég var 50 kíló í fötum!“

Gunnar Wium fékk andlega vakningu eftir áralanga neyslu: „Ég var 50 kíló í fötum!“

Gunnar Wium smíða­kenn­ari og hlað­varps­stjórn­andi seg­ist hafa fengið and­lega vakn­ingu þegar hann átti síst von á því, eftir ára­langa neyslu.

Gunnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar lýsir í þætt­inum atviki sem varð til þess að allt breytt­ist í lífi hans þegar hann var gjör­sam­lega búinn á lík­ama og sál:

Sölvi er alltaf flottur og frá­bær spyrj­andi.

,,Það sem ger­ist fyrir mig þremur vikum eftir að ég stöðv­aði neysl­una mína árið 2016 er eitt­hvað sem ég get eig­in­lega ekki útskýrt almenni­lega. Ég sit í miklum frá­hvörfum af öllum þessum efnum og var í raun algjört flak bæði lík­am­lega og hug­ar­fars­lega. Stoð­kerfið var í hakki og ég var með sprungin sár um lík­amann og fleira. Mér var sagt að ég yrði að fara að stunda kyrjun og hug­leiðslu. Ég byrj­aði á því og fyrir mér var mantran fyrst og fremst and­ar­drátt­ur­inn.

Ég var búinn að stunda þetta í nokkrar vikur þegar ég sit þarna í mik­illi þján­ingu og byrja að dofna í útlimunum. Svo fer ég að upp­lifa alla skynjun öðru­vísi og allt verður þungt í lík­am­anum og það er eins og allt sé lamað. Svo fór ég að upp­lifa fjar­lægð­ina mína við fólkið í rým­inu sem óend­an­lega, en að sama skapi var ég algjör­lega eitt með þeim öllum. Svo koma yfir mig öldur af ljósri orku sem skella á mér og eru í takt við and­ann, sem endar með því að ég er sprengdur upp og dreg­inn upp á silki­þræði og ég hvarf í alsælu­á­stand. Svo klár­ast við­burð­ur­inn og ég kem rólega til baka úr þessu og næ hægt og rólega mætti í lík­amann aftur.

En þarna varð ein­hver óút­skýr­an­leg heilun og ég gekk út sem algjör­lega nýr maður og leið eins og ég væri heill. Út frá þessu byrj­aði ég að fyr­ir­gefa sjálfum mér og lífið var bara gjör­breytt.”

Gunnar fór alla leið á botn­inn í neyslu áður en hann náði að snúa lífi sínu við. Í dag er hann edrú og hefur snúið lífi sínu gjör­sam­lega við:

,,Ég not­aði áfengi til að deyfa mig í mörg ár og það end­aði með því að ég þurfti alltaf að borga með miklum vöxtum eftir hvert ein­asta fylleri. Á end­anum kallar það á að þú farir í ný efni og það end­aði með því að kókaín kom inn í líf mitt. Kókaínið hirti mig svo gjör­sam­lega, þó að í raun sé það mjög vont efni í alla staði og áhrifin ekki einu sinni góð. Þetta var yfir­leitt mest spenn­andi þegar ég var að bíða eftir dílernum og kannski fyrstu mín­út­urnar eftir að ég tók inn efnið.

En þetta efni end­aði á að rúa mig gjör­sam­lega inn að beini. Ég man þegar ég var að byrja fyrstu alvöru edrú­mennsk­una mína árið 2005, þá vigtaði ég mig og ég var 50 kíló í fötum! Það er lýsandi fyrir það hversu sterkt þetta efni kóka­ínið er og hvert það getur tekið þig. Tótal egógeð­veiki þar sem þú missir sjónar á öllu og hættir að borða og sofa svo mán­uðum skiptir.” Segir Gunnar og heldur áfram:

,,Ég mis­not­aði líka THC í mörg ár, sem jók svo enn á þung­lyndið, sem keyrði mig inn í mína fyrstu grein­ingu sem Bipolar. Það end­aði svo með því að ég fór á SSRI lyf í nokkur ár, sem ég upp­lifði sem einskis nýtt rusl og gerði ekk­ert gott fyrir mig. Það var ekki fyrr en 2016 að ég hætti alfarið og náði að snúa öllu við.”

Gunnar segir að fíknir fólks í dag séu ekki ein­skorð­aðar við áfengi eða eit­ur­lyf. Stór hluti fólks sé í fíkni­mynstrum þegar kemur að mat, sam­fé­lags­miðlum, síma­notkun og alls kyns sam­an­burði:

,,Ég er að díla við það að þurfa stans­laust að taka sam­tal við stelpuna mína út af rang­hug­mynd­unum sem hún fær í gegnum TikTok. Maður þarf að vera gríð­ar­lega vak­andi á þessum tímum og ég sé bara hvaða áhrif þetta hefur á dóttur mína ef það er ekki stöðugt verið að leið­rétta. Svo erum við full­orðna fólkið líka komin með alls konar rang­hug­myndir um það hvernig hlut­irnir eiga að vera. Báðir aðilar eiga að vera í fullri vinnu, þó að það séu fjögur börn, heim­ilið á að vera frá­bært, svo er farið til Tene og allir með allt það nýjasta og svo eru það tantra-festi­völ og ser­emón­íur með hug­víkk­andi efni um helgar og svo fram­vegis. Á meðan eru börnin okkar bara í pössun að sörfa um inter­netið.

Ég veit að ég er kannski smá dóm­harður þegar ég segi þetta, en við verðum að vakna og hlúa að börn­unum okkar.”

Viðtalið við Gunnar og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi