Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Verbúðarmorðið á Flateyri: „Litlir þræðir liggja að þessum harmleik“

Verbúðarmorðið á Flateyri: „Litlir þræðir liggja að þessum harmleik“
Regn­bog­inn-verð­búð þar sem voða­verkið var framið. Mynd: Úlfar Ágústsson, mbl.

Mánudag einn í sept­em­ber 1978 hitti piltur stúlku á Flateyri. Með henni var vin­kona hennar og fóru þau í her­bergi pilts­ins í Regn­bog­anum, verð­búð í þorp­inu og sátu þar að sum­bli. Vinkonan fór til Ísa­fjarðar er leið á kvöldið en pilt­ur­inn og stúlkan urðu eftir. Morg­un­inn eftir mætti pilt­ur­inn ekki til vinnu en hélt þess í stað til hrepps­stjór­ans. Játaði hann fyrir honum. Hann hafði kyrkt stúlk­una með band­spotta.

Stúlkan sem lést 5. sept­em­ber 1978 var hin 19 ára Sig­ur­björg, frá Reykja­vík en pilt­ur­inn var hinn tví­tugi Reyk­vík­ingur, Þórarinn en þau þekkt­ust úr borg­inni.

Dag­blaðið lýsti atvik­inu, 6. sept­em­ber, 1978:

Tvítugur piltur úr Reykja­vík svipti nítján ára gamla vin­konu sína lífi i ver­búð­ar­bygg­ingu á Flateyri í gær­morgun. Stúlkan, sem einnig er úr Reykja­vík. hafði komið ásamt pilt­inum frá Ísafirði kvöldið áður og voru þau saman í her­bergi pilts­ins um nótt­ina. Samkvæmt beiðni var pilt­ur­inn vak­inn til vinnu um kl. 7 í gær­morgun. Hann kom þó ekki til vinnu sinnar í frysti­hús­inu. Á tíunda tím­anum kom pilt­ur­inn til Guð­mundar Jóns­sonar hrepp­stjóra á Flateyri og skýrði frá hvað gerzt hefði. Enginn varð var hávaða eða ólæti frá her­bergi pilts­ins hvorki á mánu­dags­kvöld, þriðju­dags­nótt eða í gær­morgun. Ekkert benti til að átök hefðu átt sér stað í her­berg­inu. Allt bendir til að stúlkan hafi verið kyrkt með band­spotta sem í her­berg­inu var.

Litlir þræðir liggja að þessum harm­leik. Pilt­ur­inn fékk vinnu í frysti­húsi Hjálms á Flateyri á föstu­dag­inn var, vann þar á laug­ar­dag og sunnu­dag en fór síðan til Ísa­fjarðar. Þar hitti hann hina látnu stúlku, sem hann þekkti fyrir. Var hún ásamt fleira fólki í hálf­gerðu reiði­leysi á Ísafirði. Hafði hún unnið í fiski á Hnífsdal en taldi sig vera brott­ræka þaðan. Kom hún og fleira fólk á lög­reglu­stöð­ina á Ísafirði og fékk þar m.a. geymt dót sitt. Síðan kom pilt­ur­inn ásamt hinni látnu og vin­konu hennar til Flat­eyrar og héldu til her­bergis pilts­ins i ver­búð­inni Regn­bog­anum. Munu þau, að sögn, eitt­hvað hafa verið við skál á mánu­dags­kvöldið en þó án alls hávaða eða láta. Vin­stúlka hinnar látnu hélt aftur til Ísa­fjarðar á mánu­dags­kvöld. Síðan veit eng­inn neitt fyrr en pilt­ur­inn gefur sig fram við hrepp­stjór­ann og skýrir frá gerðum sinum. Fólk sem leið átti um ganga ver­búð­ar­innar bæði á þriðju­dags­nótt og í gær­morgun varð einskis vart og grun­aði engan hver harm­leikur þarna hafði átt sér stað. Rann­sókn­ar­lög­reglu­menn rík­is­ins voru sendir vestur í gær og eru enn við rann­sóknir. Úr þeim her­búðum var engar upp­lýs­ingar að fá í morgun.“

Þann 7. sept­em­ber var Þórarinn úrskurð­aður í 90 daga gæslu­varð­hald. Einnig fór fram geð­mat.

Dag­blaðið segir frá dóm­inum yfir Þórarni þann 6. júlí, 1979:

„Þórarinn var í gær dæmdur í sjö ára fang­elsi fyrir að hafa orðið valdur að dauða fyrr­ver­andi unn­ustu sinnar þann 5. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Atburð­ur­inn átti sér stað í ver­búð­inni Regn­bog­anum á Flateyri. Dómur þessi var kveð­inn upp í und­ir­rétti. Hann gengur sjálf­krafa til Hæsta­réttar, svo sem aðrir dómar sem kveða á um lengra en fimm ára fang­elsi. Saka­dóm­ar­arnir Ármann Krist­ins­son, Jón A. Ólafsson og Sverrir Ein­ars­son kváðu upp dóm­inn. Auk sjö ára fang­els­is­ins var Þórarni gert að greiða allan sak­ar­kostnað, sak­sókn­ara­laun til rík­is­sjóðs að upp­hæð krónur 300 þús­und og 500 þús­und krónur til Arn­mundar Bachmanns hér­aðsóms­lög­manns, sem skip­aður var réttargæzlumaður og verj­andi Þórarins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi