Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Teitur kann mörg sparnaðartrix – „Við erum á leiðinni til andskotans og öllum er sama“

Teitur kann mörg sparnaðartrix – „Við erum á leiðinni til andskotans og öllum er sama“
Teitur Atlason. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vik­unnar að þessu sinni er Teitur Atlason. Hann er Reyk­vík­ingur, fæddur árið  1969, býr í 101 og er giftur Bryndísi Bjarna­dóttur. Teitur og Bryndís eiga sex börn þar af búa fjögur hjá þeim. Teitur vinnur hjá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun og er vara­for­maður Rós­ar­innar sem er félag innan Sam­fylk­ing­ar­innar.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Alltaf.  Margar versl­anir leggja sig fram við að blekkja við­skipta­vinin sína (sem er í raun­inni meira en lítið und­ar­legt). Það er gert með alls­konar trixum sem mörg hver eru mjög lúmsk. Vörur sem eru á sér bakka út á miðju gólfi með flennistórum verð­miða sem áréttar hvað varan kosti (og sé ódýr) er venju­lega aðeins dýr­ari en önnur sams­konar vara í sömu búð. Þetta er trix til að losna við lager sem hefur safn­ast upp. Svo er mjög oft mis­ræmi milli hillu­verðs og verðs á kassa.  Vara sem er í hillu á að kosta 499 krónur, kostar meira þegar varan er skönnuð á kass­anum en versl­unin tekur sjens­inn að fólk nenni ekki að gera athuga­semdir enda munar kannski bara nokkrum tík­öllum.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Við erum með stórt heim­ili og höfum lært alls­konar trix til þess að spara.  Það er svo öfug­snúið að þvi meira sem maður sparar i inn­kaupum, þeim mun betri mat fær maður fyrir vikið.  Sparn­aður felur í sér að sjá fram í tím­ann og skipu­leggja inn­kaupin vel. Það er mjög lit­ill sparn­aður í því að kaupa alltaf í mat­inn sama dag og hann er eld­aður.  Þá fer allt úr bönd­unum.  Það er t.d gott sparn­að­ar­ráð að kaupa bara það sem vantar, jan­vel þótt það sé bara ein krukka af ein­hverju kryddi. Fólk freist­ast til þess að kaupa meira en það þarf.  Það er gott sparn­að­ar­ráð ákveða að kaupa ekk­ert annað en það sem þarf.  Það er áskorun get ég sagt ykkur.  Svo erum við með mat­seðil vik­unnar á „To-Do“ lista sem er yfir­leitt gerður á sunnu­dögum. Það er snið­ugt.  Við höfum keypt „grams“ beint af sjó­mönnum. Þar fær maður topp fisk á góðu verði.  Við erum bísna öflug í mat­ar­sparn­aði og hendum eig­in­lega aldrei mat.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég end­ur­nýti alls­konar og er virkur á sparn­aðar og end­ur­nýt­ing­ar­síð­unum á Facebook.  Ég vil benda á tvö ráð sem eru sniðug í þessu sam­hengi.  Ég nota plast­pok­ana sem eru inní Cherioos pökk­unum aftur og aftur. Þetta eru full­komnir pokar sem má nota i allt.  Frábærir í fryst­inn og alls­konar máln­ing­ar­stúss. Svo tek ég rest­arnar af lamp­haga-sal­at­inu (sem eru með mold­arkubbi neðst í pok­anum) og gróð­ur­set kubb­inn aftur þegar ég er búin að nota sal­atið.  Það tekur  nokkrar vikur að fá nýtt en miklu betra salat.  Maður þarf að vísu helst að eiga garð, en það er vel  hægt að setja kubb­inn í blóma­pott.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég hef alls­konar í huga.  Ég vil til dæmis helst ekki kaupa vörur af nátt­úr­u­níð­ingum og þeim fyr­ir­tækjum sem koma illa fram við verka­fólk.  Euros­hopper vör­urnar eru því miður stundum í körf­unni minni því þær eru bara svo ódýrar.  Mér blöskar plast­notkun í mjólk­ur­brans­anum en það er ein­fald­lega ekki hægt að snúa við­skiptum sínum neitt annað því öll fyr­ir­tæin eru með plast á heil­anum.  Þetta er furðu­legt metn­aðr­leysi hjá þessum flottu fyr­ir­tækum.  Ég kaupi helst not­aðar vörur og ég á erfitt að umbera neyslu-sturlun­ina sem ein­kennir sam­tím­ann okkar og lygarnar sem stóru fyr­ir­ækin eru sífellt að dúndra á okkur með aug­lýs­ingum sem eiga ekk­ert skilt við neitt sem kall­ast venju­legt líf.  IKEA er til dæmis dæmi um fyr­ir­tæki sem gerir hrein­lega út á að vera umhverf­is­vænt og hvað­eina en vör­urnar þeirra eru þegar öllu er á botnin hvolft, einnota.  Þær eru svo ódýrar að fólk hendir gömlum IKEA mublum, vegna þess að það „er komin ný lína“ – sem allir verða nátt­úru­lega að fá sér.  Áður fyrr átti fólk hús­gögn ára­tugum saman. Núna er þeim hent eftir nokk­urra ára notkun.   Við þessu bara til eitt orð og það er „svei­attan“

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á?

Það verður að við­ur­kenn­ast að það er mjólk.  Það er keypt gríð­ar­legt magn af mjólk á heim­il­inu enda eru fjórir ung­lingar á heim­il­inu og ég er sjálfur mjókur­þamb­ari. Þetta er skammar­legt því mjólk er afar óholl sam­kvæmt mörgum rann­sóknum (til dæmis nýlegri sænskri rann­sókn). Svo er það ógeð­feld hugsun í mínum huga að drekka mjólk úr ann­ari dýra­teg­und en maður er af sjálfur.  Þetta er ein­hvers­konar súper-öfugugga­háttur sem erfitt er að festa reiður á.  Þess utan er mjókur­brans­inn frekar vafa­samur frá sið­ferð­is­legu sjón­ar­horni og gríð­ar­lega skað­legur frá vist­fræði­legu sjón­ar­horni.  Fólk ætti almennt ekki að leggja sér mjólk til munns  nema út í kaffi eða þvíum­líkt.  Mjólk er óþverri.

Skiptir umhverf­is­vernd þig máli?

Mjög miklu.  Þetta er það eina sem skiptir máli þegar öllu er á botnin hvolft.  Við íslend­ingar erum senni­lega mestu umhverf­is­sóðar ver­ald­ar­innar og við erum alla­vega mestu umhverf­is­sóðar Norð­ur­landa. Allt þetta ger­ist sam­hliða ein­hverri sjálf-dáleiðslu-mön­tru um að Íslend­ingar séu svo mikil „nátt­úru­börn“ og tengls okkar við nátt­úrna séu bæði sterk og heilög. Ekkert ef meira fjarri sanni.  Umhverf­is­dólgar njóta laga­legrar verndar frá vald­höfum og hafa meir að segja bein áhrif á gerð reglu­gerða sem snúa að þeirra eigin umhverf­is­sóða­skap.  Allt þetta er gert með vel­vild og sam­þykki stjórn­valda.  Einu aðgerð­irnar sem við neyt­endur sjáum er eitt­hvað rugl um að banna sogrör í kókó­mjólku­fernur en plast drasl frá stór­iðn­aði er aldrei bannað og þótt það sem miljón sinnum umfangs­meira en eitt­hver aum­ingja­leg rör.  Allt plast­draslið frá sjáv­ar­út­veg­inum er und­an­skilið frá öllum meng­un­ar­kröfum.  Þetta eru mörg hund­ruð þús­und tonn á hverju ári.  Við erum á leið­inni til and­skot­ans og öllum er sama.

Mest sama eru samt vald­haf­andi stjór­mála­menn. Þeim er skít­sama um umhverf­is­vernd enda gera þau ekki neitt sem skiptir máli. Stjórn­mála­menn sem gera ekk­ert þegar ógnir blasa við, er alveg sama um nátt­úru­vernd nema ef það tryggir þeim ein­hver atkvæði í kosn­ingum. Þetta er sorg­legt en þetta er staðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi