Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þuríður fór á fimmta Evrópuþings fatlaðs fólks: „Frjáls för er réttur, ekki óeðlileg krafa“

Þuríður fór á fimmta Evrópuþings fatlaðs fólks: „Frjáls för er réttur, ekki óeðlileg krafa“
Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir

Fimmta Evr­ópu­þing fatl­aðs fólks var haldið í vik­unni en 600 full­trúar fatl­aðs fólks frá öllum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins mættu til Brussel. Þar voru rétt­indi fatl­aðra innan Evr­ópu­sam­bands­ins rædd.

Eft­ir­far­andi texta er að finna um fund­inn á vef Öryrkja­banda­lagi Íslands:

600 full­trúar fatl­aðs fólks frá öllum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins mætt­ust í sal Evr­ópu­þings­ins í Brussel í vik­unni á fimmta Evr­ópu­þingi fatl­aðs fólks til að ræða rétt­indi fatl­aðra innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Samþykkt var stefna EDF, Evr­ópu­sam­taka fatl­aðs fólks, um fram­kvæmd Evr­ópu­þing­kosn­ing­anna 2024.

Í hinni sam­þykktu stefnu segir að EDF krefj­ist þess að fá fullt aðgengi að hinu póli­tíska ferli. Brýnt sé að fatlað fólk fái að kjósa í álf­unni, sem er ekki alls staðar veru­leik­inn, fái að bjóða sig fram og að kosn­ingar séu aðgengi­legar öllum.

Þess er einnig kraf­ist að ráð­ist sé í úrbætur á rétt­indum fatl­aðs fólks innan ESB á næsta kjör­tíma­bili Evr­ópu­þings­ins. Til dæmis með sam­ræmdri skrán­ingu, auk­inni rétt­inda­gæslu og stofnun nýrrar evr­ópskrar aðgeng­is­stofn­unnar.

„Fatlað fólk vill vera full­gildir Evr­ópu­sam­bands­borg­arar. Þessi fundur og þátt­taka fólks­ins sem hér er sýnir það vel. Vilji hreyf­ing­ar­innar er skýr. ESB-stofn­anir þurfa að tryggja aðgengi okkar að hinu lýð­ræð­is­lega ferli og að stefnu­mótun sam­bands­ins,“ hefur EDF eftir for­seta sínum, Yannis Var­da­kastanis.

Mannlíf ræddi við Þuríði Hörpu Sig­urð­ar­dóttur, for­mann Öryrkja­banda­lags Íslands sem fór á fund­inn fyrir Íslands hönd.

Hvað er mark­mið fund­ar­ins í ár?

„Markmið þessa þings er að knýja á um ýmis rétt­inda­mál fatl­aðs fólks. Hags­muna­sam­tök hvers evr­ópu­lands fyrir sig áttu fundi með þing­mönnum land­anna og fóru yfir áherslu­at­riði sín í þeim til­gangi að knýja á um að bar­áttu­málin fengju væru tekin fyrir og þau kláruð, færu inn í lög og reglu­gerðir. Hæst ber að nefna Disa­bility card (Evrópska fötl­un­ar­kortið) en í dag eru það átta lönd sem eru að prufu­keyra það í sínum löndum – Helena Dalli jafn­rétt­is­mála­ráð­herra Evrópu til­kynnti að það yrði tekið fyrir í Félags og fjá­hags­nefnd Evr­ópu­þings­ins í sept­em­ber. Þá er það mik­il­vægt rétt­inda­mál að kjör­staðir verði aðgengi­legir öllum í aðild­ar­ríkjum ESB þannig að öll geti nýtt sér kosn­inga­rétt sinn. Fötl­un­ar­kortið skiptir miklu máli varð­andi þjón­ustu og mögu­leik­ann á að ferð­ast landa á milli. Einnig var mikið talað um almennt aðgengi, að menntun, sam­göngum, og svo fram­vegis. Það sé mik­il­vægt að allir séu með, þar sem það að vera með fötlun getur þýtt að það fólk sé mik­il­vægt á vinnu­mark­aði þar sem að það hugsar á annan hátt og er því mögu­lega með lausnir sem öðrum dettur ekki í hug. Það er því mik­il­vægt að við getum öll tekið þátt í sam­fé­lag­inu og koma þarf í veg fyrir fátækt. Það ætti að nýta fjár­magn í þátt­töku allra, því að annað er of kostn­að­ar­samt til lengri tíma litið. Oft var talað um hvernig komið væri fram við fatlað fólk, litið væri á það sem ann­ars flokks borg­ara. Þrátt fyrir alla samn­inga og lög þá er raun­veru­leik­inn sá að fatlað fólk lendir í alls konar vand­ræðum, einnig í Brussel, þar sem virð­ing ætti að vera borin fyrir öllu fólki. Það er eitt­hvað sem er mjög mik­il­vægt, að virð­ing sé borin fyrir öllum óháð fötlun og stöðu. Í raun ætti það ekki að vera þess fatl­aða að aðlaga sig að sam­fé­lag­inu, heldur þvert á móti á sam­fé­lagið að aðlaga sig fólki almennt. Eftir því sem fatlað fólk hefur kost á meiri þátt­töku á atvinnu­mark­aði, þá er minni hætta á að upp komi atvik þar sem það verður fyrir for­dómum og van­virð­ingu.“

Því næst sagði Þuríður frá stefnu­yf­ir­lýs­ingu EDF.

„Stefnu­yf­ir­lýs­ing EDF í tengslum við kosn­ingar til Evr­ópu­þings­ins 2024: Frjáls för er réttur, ekki óeðli­leg krafa. Við förum fram á að örorku­kortið verði að veru­leika. Við viljum opinn atvinnu­markað og rétt­indi far­þega verði virt, sama hvaða sam­göngu­tæki er um að ræða, að séð verði til þess að hætt verði að fram­kvæma ófrjó­sem­is­að­gerðir án vit­undar við­kom­andi. Með þess­ari stefnu­yf­ir­lýs­ingu breyt­ist setn­ingin úr „not­hing about us without us“ í „not­hing without us“. Stefnu­yf­ir­lýs­ingin var sam­þykkt sam­hljóða. Barátta fyrir rétt­indum okkar er bar­átta gegn ójöfn­uði, félags­legri ein­angrun og fátækt. Marc Angel, vara­for­seti Evr­ópu­þings­ins sagði: „Það er mik­il­vægt að setja hluti í lög því að þau eru for­senda þess að hlut­irnir breyt­ist“. Og Helena Dalli, jafn­rétt­is­mála­ráð­herra Evrópu sagði á fund­inum: „Mitt tak­mark er að búa til sann­gjarnt sam­fé­lag, laust við úti­lokun og mis­munun, þar sem allir geta tekið þátt. Þegar ég tala við fatlað fólk þá heyri ég dæmi af úti­lokun, hindr­unum á aðgengi að menntun, vinnu, hús­næði á við­ráð­an­legu verði, félags­legri úti­lokun og fátækt. Þetta verður að breyt­ast. Fatlað fólk á rétt á öllu því sem aðrir eiga rétt á, skv. SRFF. Allir hafa jafnan rétt. Allt þarf að vera aðgengi­legt, skólar, skrif­stofur, sam­göngur, vinnu­mark­aður, o.s.frv. Mik­il­vægt er að öll lönd innan Evrópu lög­festi samn­ing SÞ um rétt­indi fatl­aðs fólks og val­frjálsu bók­un­ina – svo hægt sé að kæra mál“. Markus Schefer, sér­fræð­ingur í nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um SRFF (CRPD) mælti sér­stak­lega með því að val­frjálsa bók­un­inn yrði virkjuð í löndum ESB. Hann sagði enn­fremur: „Það á ekki að vera góð­vild að veita fötl­uðu fólki það sem það á rétt á, það er ein­fald­lega réttur þeirra“.“

En hvernig var and­rúms­loftið á fund­inum?

„Samhugur og jákvæðni, bar­áttu­andi og sterk krafa um að mann­rétt­indi fatl­aðs fólks yrðu virt þannig að fatlað fólk væri metið til jafns við aðra,“ svar­aði Þuríður Harpa.

Og hún hélt áfram:

„Góður fundur sem­sagt sem skilar örugg­lega. Nadia Hadad sagði: „Líf okkar snýst um bar­áttu. Í fyrsta lagi þarftu að berj­ast fyrir að fá að fara í venju­legan skóla, svo þarftu að berj­ast fyrir að fá að fara í mennta­skóla, svo þarftu að berj­ast fyrir að fá aðgengi­legt hús­næði sem þú hefur efni á, svo þarftu að berj­ast fyrir að fá þjón­ustu, svo þarftu að berj­ast fyrir því að þér sé veitt virð­ing, og svo fram­vegis. Er eðli­legt að fatlað fólk þurfi að standa í stans­lausri bar­áttu varð­andi öll atriði í líf­inu? Það á ekki að vera þannig. Við verðum að breyta raun­veru­leik­anum og þurfum aðstoð allra við það“ .“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi