Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Laun forseta Alþingis hækka um rúmar 140 þúsund á mánuði: „Finn óneitanlega fyrir ákveðinni biturð“

Laun forseta Alþingis hækka um rúmar 140 þúsund á mánuði: „Finn óneitanlega fyrir ákveðinni biturð“
Birgir Ármanns­son.

Fyrrum for­maður BHM, Friðrik Jónsson, ritar grein er ber yfir­skrift­ina Vopnin kvödd.

Byrjar.

„Fyrir tveimur árum tók ég við emb­ætti for­manns BHM og tal­aði fjálg­lega um mark­mið næstu 20 mán­aða. Það var ekki allt sem náð­ist en margt. Hafin var veg­ferð innri end­ur­bóta og stefnu­mörk­unar, en hvernig til tókst læt öðrum eftir að meta. BHM náði þeim merka árangri að vera nokkuð sam­stíga inn í kjara­samn­inga síð­asta vetrar.“

Friðrik Jónsson.

Friðrik nefnir að „kynnt voru sam­eig­in­leg mark­mið fyrir kjara­við­ræður – Jafn­rétt­is­samn­ing­ur­inn sem var gæfu­skref sem hafði áhrif langt út fyrir raðir BHM. Pró­sentu­hækk­anir spil­uðu stærra hlut­verk í kjara­samn­ingum á almennum mark­aði en áður fyrir til­stilli BHM að veru­legu leyti. Við þorðum ein­fald­lega loks að segja upp­hátt, hátt og snjallt, að nóg væri komið af krónu­töluklandri.

Ramma­sam­komu­lag sem BHM leiddi mynd­aði svo grunn nýrra kjara­samn­inga og hafin var veg­ferð um jöfnun launa á milli mark­aða eftir sjö ára vinnu. Flestum samn­ingum aðild­ar­fé­laga við opin­bera launa­greið­endur var jafn­framt lokið á til­settum tíma.

Af þessum árangri er ég stoltur, en er jafn­framt hugsi yfir þeim áskor­unum sem bíða.“

Segir að „fram undan eru lang­tíma­samn­ingar á almennum- og opin­berum vinnu­mark­aði en sagan hefur kennt okkur að opin­beri mark­að­ur­inn er oft meiri áskorun en hinn almenni. Ástæðan er marg­þætt en má að miklu leyti rekja til þess virð­ing­ar­leysis sem opin­beru stétt­ar­fé­lög­unum er sýnt í samn­ingum. Afstaða helstu við­semj­enda er oft eins og að stétt­ar­fé­lögin á opin­bera vinnu­mark­aðnum hafi varla sjálf­stæðan samn­ings­rétt. Tönnlast er á nið­ur­stöðu svo­kall­aðra stefnu­mót­andi kjara­samn­inga á almennum mark­aði og stétt­ar­fé­lögum gert að aðlaga svo­kallað merki mark­aðar að launa­töflum þó jafnan sé erfitt að átta sig á hvert hið meinta merki er í raun og veru.“

Frið­rik­færir í tal að „í þessum kjara­samn­ingum var það meðal ann­ars sam­eig­in­legur skiln­ingur heild­ar­sam­taka og opin­berra launa­greið­enda að kostn­að­ar­mat samn­inga á opin­bera mark­aðnum yrði svipað og á almennum mark­aði. Mestur tími fór í að aðlaga launa­töflur að sömu reglum og mörk­uðu samn­inga á almennum mark­aði. Þetta gengur ekki til fram­tíðar enda lýtur launa­setn­ing öðrum lög­málum á opin­bera mark­aðnum en á hinum almenna. Skýrasta dæmið um þetta var svo­kallað hámark krónu­tölu­hækk­ana sem miðað var við 66 þús­und krónur. Þetta er dyggða­skreyt­ing sem er skað­leg fyrir opin­bera mark­að­inn en skað­laus á hinum almenna þar sem frjáls launa­setn­ing ríkir. Hámarkið gerir að verkum að hámenntað fólk á opin­bera mark­aðnum fær allt niður í 5% launa­hækkun í 10% verð­bólgu! Allir nema æðstu emb­ætt­is­menn.“

Hann segir einnig að „sam­kvæmt for­sæt­is­ráð­herra stefnir í um 6,3% launa­hækkun hjá þeim þann 1. júlí næst­kom­andi. Þar sem það verður án hámarks mun launa­hækkun ráð­herra og ráðu­neyt­is­stjóra verða vel á annað hund­rað þús­und. Sem dæmi má nefna mun Forseti Alþingis hækka um rúmar 140 þús­und á mán­uði. Það er óneit­an­lega kald­hæðni örlag­anna að þetta verði nið­ur­staðan. Ég uni æðstu emb­ætt­is­mönnum þess­arar hækk­unar, en finn óneit­an­lega fyrir ákveð­inni bit­urð yfir því að hafa þrá­stagl­ast á því við samn­inga­nefnd rík­is­ins frá því fyrir jól að þetta hámark væri órök­rétt og ósann­gjarnt, ekki síst í ljósi þess að ekk­ert slíkt hámark myndi gilda um æðstu og hæst laun­uð­ustu starfs­menn hins opin­bera, en hafa ekki haft árangur sem erf­iði.

En gott og vel.

Aug­ljós­lega þarf aldrei að ræða þetta hámark aftur og línan er skýr fyrir samn­inga næsta vetrar: hreinar pró­sentu­hækk­anir án krónu­tölu­há­marks. Hámarkið var enda lítið annað en dekur við það for­ystu­fólk stétt­ar­fé­laga á almennum mark­aði sem sjá ofsjónum yfir því að menntun á opin­bera mark­aðnum sé metin til launa.“

Honum þykir það „óneit­an­lega“ vera  „sér­kenni­legt að hið opin­bera sé að taka undir með þannig pópul­ískum áherslum. Verka­lýðs­hreyf­ingin taki virk­ari þátt í hag­rænni umræðu Verka­lýðs­hreyf­ingin þarf að taka virk­ari þátt í hag­rænni umræðu en verið hefur. Halda áfram að tala um orsakir verð­bólgu á breiðum grunni t.d. hagn­að­ar­drifnu verð­bólg­una. Hreyf­ingin þarf líka að vera óhrædd við að eiga opin­skátt sam­tal um þá hag­rænu þætti sem marka svig­rúm til launa­hækk­ana og gagn­rýna eins­leitar skýr­ingar atvinnu­lífs­ins. Það verður þá að telj­ast stór­merki­legt að íslenskar laun­þega­hreyf­ingar gefi stöðu lands­ins í alþjóða­sam­fé­lag­inu og frek­ari opnun fyrir alþjóða­við­skiptum ekki meiri og betri gaum.“

Friðrik segir einnig að hann vilji ekki gleyma:

„Gleymum því ekki að stóra lífs­gæða­stökkið á Íslandi hófst þegar við gengum inn í EES fyrir fyrir um 30 árum síðan. Svigrúm til frek­ari umbóta er til staðar og stórir hags­munir undir. Gjald­mið­ill­inn og geng­is­stöð­ug­leik­inn; vaxta­stefna og fjár­magns­kostn­aður. Betri kjör og lægra verð í banka­starf­semi, trygg­inga­starf­semi, heild- og smá­sölu. Meiri ábati en nokkur kjara­samn­ingur gæti fært launa­fólki! Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur hér brugð­ist hlut­verki sínu. Verka­lýðs­hreyf­ingin þarf að horfast í augu við eigin vanda Hreyf­ingin þarf að vera óhrædd við að taka sam­talið við stjórn­völd um fram­tíð hennar.

Stað­reyndin er sú að áhugi almenn­ings á stétt­ar­fé­lögum fer þverr­andi og lýð­ræð­is­legt umboð stétt­ar­fé­laga er sótt til minni­hluta félags­fólks. Hreyf­ingin hefur yfir sér yfir­bragð átaka og og deila má um raun­veru­legt umboð for­ystu­fólks til að halda á lofti kröfum, sem sumar orka tví­mælis. Margir hafa þá rétt­mætar áhyggjur af sjóða­söfnun utan verk­falls­sjóða og sér­stak­lega á þeim sviðum sem með réttu ættu ein­fald­lega að vera hluti af almanna­trygg­ingum. Það má ekki verða svo að stétt­ar­fé­lögin telji skyldu­að­ild sjálf­gefna til fram­tíðar og að þarfir kerf­is­ins verði í fyr­ir­rúmi, umfram þarfir félags­fólks­ins. Opinberi mark­að­ur­inn þarf líka að horfast í augu við það að sam­talið verður tekið starfs- og lagaum­hverfi opin­berra starfs­manna með eða á þeirra aðkomu. Það er hinn kaldi veru­leiki.“

Að end­ingu segir Friðrik að það sé „fleira sem sam­einar verka­lýðs­hreyf­ing­una en sundrar.

Framtíð háskóla­mennt­aðra á Íslandi er mér hug­leikin á þessum tíma­mótum. Stað­reyndin er sú að þús­undir háskóla­mennt­aðra eiga aðild að stétt­ar­fé­lögum sem eru utan BHM. Mörg þessi stétt­ar­fé­lög tala nær aldrei um hags­muni háskóla­mennt­aðra og milli­stétt­ar­innar. Sum vinna bein­línis gegn hags­munum þeirra.

Það skiptir máli í fram­tíð­inni að verka­lýðs­hreyf­ingin finni leiðir til að koma í veg fyrir röð kjara­samn­inga sem draga munu enn frekar úr hvata til náms og hvata fyrir sér­fræð­inga að gera Ísland að sinni heima­höfn. Röð kjara­samn­inga þar sem krónu­tölu­hækk­anir og hámark eru hafðar í önd­vegi mun rýra kaup­mátt og draga úr hvata til mennt­unar. Gleymum ekki að við búum í umhverfi þar pró­sent­urnar ráða för í útgjöldum, skatt­kerfi, verð­bólgu og verð­lags­mæl­ingum.

Mestu máli skiptir þó að verka­lýðs­hreyf­ingin finni leiðir til að slíðra sverðin og hafa hags­muni félags­fólks í önd­vegi. Við sem saman leiddum heild­ar­sam­tök á opin­berum vinnu­mark­aði í vetur höfum sýnt að sam­starf og sam­starf stétt­ar­fé­laga og heild­ar­sam­taka getur bæði gengið vel og verið gríð­ar­lega dýr­mætt. Það er sann­ar­lega fleira sem sam­einar verka­lýðs­hreyf­ing­una en sundrar. Óska ég öllum þeim sem valist hafa til for­ystu á þeim vett­vangi góðs gengis í verk­efn­unum fram undan. Sér­stak­lega nýjum for­manni BHM, Kolbrúnu Hall­dórs­dóttur, sem ég hef nú afhent minn atgeir í bar­átt­unni fyrir betri kjörum fyrir umbjóð­endur BHM.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi