Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skýtur fast á Ríkisútvarpið: „Það er fréttaflutningur RÚV sem er að verða hættulegur lýðræðinu“

Skýtur fast á Ríkisútvarpið: „Það er fréttaflutningur RÚV sem er að verða hættulegur lýðræðinu“
Roger Waters

Á dög­unum var sagt frá því í fréttum að lög­reglu­yf­ir­völd í Berlín hefði hafið rann­sókn á Roger Waters úr Pink Floyd vegna þess að hann klædd­ist ein­hverss­konar nas­ista­bún­ingi á tón­leikum þar í borg. Rit­höf­und­ur­inn Helgi Ing­ólfs­son bendir á að Roger Waters hafi gert þetta í ára­tugi og að um sé að ræða ádeilu, sem sam­fé­lög á árum áður áttu auð­veld­ara með að lesa í en sam­fé­lög nútím­ans.

Í færslu á Facebook, sem vakti gríð­ar­lega athygli, fer Helgi yfir málið og segir að sam­fé­lags­legur veru­leiki hafi breyst frá því að Waters stóð á Pots­da­mer Platz í berlín árið 1990, í sama bún­ingi og á dög­unum með nokk­urn­veg­inn sömu tákn­mynda­um­gjörð, án þess að yfir­völd gerðu nokkuð. Segir Helgi að tvennt hafi breyst frá þeim tíma. Annars vegar vaxi bók­stafs­skiln­ingur sífellt og „síminnk­andi skiln­ingur almenn­ings á hvers kyns ádeilur, ádrepur, paródíur og satírur.“ Og ann­ars vegar það að stjórn­völd nýta sér nú þessa fáfræði almenn­ings til að auka völd sín og minnka rétt lista­manna til tján­ingar. Þá skýtur Helgi föstum skotum á Rík­is­út­varpið fyrir að birta gagn­rýn­islitla frétt af rann­sókn­inni á Roger Waters. Lætur hann hlekk á frétt Rúv um málið fylgja færsl­unni og segir að fyr­ir­sögnin ætti frekar að vera:  „RUV er gagn­rýn­is­lít­ill bók­stafs­trú­ar­fjöl­mið­ill sem fram­reiðir fréttir án skiln­ings á þjóð­fé­lags­á­deilu – jafnan að því marki að sé stjórn­völdum þókn­an­legt, sem og ríkj­andi rétt­trún­að­ar­hugsun.“

Færsluna má lesa hér í heild sinni:

„Sumarið 1990, um hálfu ári eftir fall Berlín­ar­múrs­ins, stóð Roger Waters úr Pink Floyd fyrir stór­tón­leikum með flutn­ingi á „The Wall“ á Pots­da­mer Platz í Berlín, en þarna hafði áður verið einskis­manns­land nærri hinum fallna Berlín­ar­múr. Um 350 þús­und manns eru taldir hafa hlýtt á tón­leik­ana og hund­ruð lista­manna komu fram. Öll tákn­mynda­um­gjörð tón­leik­anna var í meg­in­dráttum sú hin sama og í dag. Þá voru einnig í gildi sömu lög í (Vestur-) Þýska­landi og gilda enn, um að ekki mætti birta ytri tákná­sýnd nas­isma , en ekki sáu (vestur-) þýsk stjórn­völd ástæðu til að fjarg­viðr­ast yfir tón­leik­unum, enda skildu þau mæta­vel satíruna og paródískt og póli­tískt gildi verks­ins.

Hvað hefur breyst síðan þá? Ekkert hjá Roger Waters í sjálfu sér varð­andi verkið – sem er lik­lega sterkara en nokkru sinni fyrr í tákn­rænum skiln­ingi. En tvennt hefur breyst í sam­fé­lags­legum veru­leika. Annars vegar sívax­andi bók­stafs­skiln­ingur og síminnk­andi skiln­ingur almenn­ings á hvers kyns ádeilur, ádrepur, paródíur og satírur – með öðrum orðum miklu lélegra menn­ing­ar­læsi. Hitt er svo að stjórn­völd í ríkjum sæta lagi og nota umrædda fáfræði og skiln­ings­leysi til að þrengja að tján­ing­ar­frelsi, tak­marka mögu­leika lista­manna á að tjá sig, auka völd sín á kostnað þess­arar fáfræði o.s.frv. Og nú er Waters ekki lengur þókn­an­legur stjórn­völdum.Sjálfum leið­ist mér heldur tón­list Roger Waters og ég er engan veg­inn sam­mála öllum bar­áttu­málum hans. En hann er sýni­lega óhræddur við að storka almenn­ings­á­lit­inu og stjórn­völdum með list­sköpun sinni. Hann hefur barist gegn kúgun og múr­væð­ingu Ísra­els­manna gagn­vart Palest­ínu­aröbum og hann hefur barist ötul­lega gegn ólög­mætri fang­elsun Julians Assange – hann er hápóli­tískur, hávær og mjög sýni­legur, ólíkt hinum fyrri liðs­mönnum sínum í Pink Floyd. Vegna skoð­ana sinna hefur RW sýni­lega orðið óvin­sæll meðal fjöl­miðla­manna, og þá helst þeirra sem þríf­ast á sensa­sjónal-sjúrna­l­isma. Eins og Rowling, eins og Assange, er RW útskúf­aður af ein­hverri blaða­manna­hjörð sem eltir rétt­hugs­un­ar­öldur á sam­fé­lags­miðlum. RW er helst gagn­rýndur fyrir afstöðu sína til stríðs­ins í Úkraínu (þar sem ég er honum ósam­mála), en hann hefur þó vissu­lega kallað inn­rás Rússa „ólög­lega“ þótt hann hafi líka sagt að „ögrað hafi verið til hennar“.En fyr­ir­sögnin hér ætti ekki að snú­ast um Waters og rétt hans sem lista­manns til að tjá sig um þjóð­fé­lags­leg mál­efni. Fyr­ir­sögnin hér ætti að vera: „RUV er gagn­rýn­is­lít­ill bók­stafs­trú­ar­fjöl­mið­ill sem fram­reiðir fréttir án skiln­ings á þjóð­fé­lags­á­deilu – jafnan að því marki að sé stjórn­völdum þókn­an­legt, sem og ríkj­andi rétt­trún­að­ar­hugsun.“ Það er frétta­flutn­ingur RUV og áþekkra fjöl­miðla, sem er að verða hættu­legur lýð­ræð­inu, ekki prí­vat­skoð­anir eða tákna­notkun RW. Svipað og með Julian Assange á nú að fara að rann­saka Waters fyrir glæp­sam­legt athæfi og RUV leggst á árarnar. Svæsin notkun stjórn­valda á hættu­lega hrekklausum fjöl­miðlum, sem eru jafn­vel upp á þessi sömu stjórn­völd komnir, á sér sýni­lega lítil tak­mörk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi