Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hver hefur vitað til þess að venjulegur maður yrði þjóðskáld?“

„Hver hefur vitað til þess að venjulegur maður yrði þjóðskáld?“
Gyrðir Elíasson og Ísak Harð­ar­son. Samsett mynd.

Rit­höf­und­ur­inn Gyrðir Elíasson rit­aði minn­ing­ar­grein um ljóð­skáldið Ísak Harð­ar­son, sem er nýlát­inn.

Það er ekki á hverjum degi sem Gyrðir mundar penna sinn í annað en skáld­sögur sínar; smá­sögur; prósa og örsögur; þýð­ingar og ljóð.

Gyrðir er jafn­besti rit­höf­undur er Ísland hefur af sér alið; afköstin ótrú­leg; gæðin mikil – og hann á nóg eftir.

Gyrðir kemur ekki oft fram opin­ber­lega, og eins og áður sagði, skrifar ekki margar greinar og fæst sjaldan í við­töl; enda segir mað­ur­inn svo mikið í bókum sínum að engu er í raun við að bæta.

En Gyrðir stakk niður penna sínum er hann minn­ist Ísaks Harð­ar­sonar.

Hér eru þau orð; þær setn­ingar; þær minn­ingar og sú (stundum erf­iða) vin­átta er var á milli þess­ara tveggja miklu and­ans manna:

ÍSAK HARÐARSON

„Það eru orðin fjöru­tíu ár síðan ég kynnt­ist Ísaki Harð­ar­syni, það var sem­sagt árið 1983. Ég hafði reyndar haft veður af honum árið áður, þegar verð­launa­ljóða­bók hans, Þriggja orða nafn, barst mér í hendur og ég las af miklum áhuga, eða áfergju væri nær að segja. Mér fannst með ólík­indum hvað þessi maður, sem var aðeins fimm árum eldri en ég, hafði mikil tök á ljóð­form­inu þegar í sinni fyrstu bók, og hvernig hann náði utan um ýmsa þá hluti sem erfitt er að koma í orð, ekki síst á okkar dögum, þegar óend­an­leik­inn þreng­ist um ell­efu hug­tök á sól­ar­hring einsog segir í einu af síð­ari ljóðum hans.

Eftir að við höfðum hist þró­að­ist vin­átta okkar hratt, og þau voru mörg kvöldin þegar ég gekk eftir gamla hita­veitu­stokknum sem liggur ofan við Bústaða­veg­inn, áleiðis til Ísaks og Ólafar á Byggð­ar­end­anum. Sjálfur átti ég þá heima í Neðsta­leiti, sem á þessum tíma, vet­ur­inn 1983-4 var rétt að rísa sem hverfi hrárra nýbygg­inga.

Þau eru minn­is­stæð þessi kvöld á Byggð­ar­end­anum, og við tókum upp á ýmsu. Þó hvor­ugur okkar Ísaks væri mús­í­k­ant, ekki einusinni neitt í námunda við það (að minnsta kosti ekki und­ir­rit­aður), gátum við setið heilu kvöldin saman við gamla píanóið sem þau áttu, og samið fjór­hent allskyns vit­leysu af fingrum fram, lík­lega í anda Keith Jarretts, sem Ísak hélt mikið upp á og spil­aði oft fyrir mig.

En þarna sátum við sem­sagt við píanóið, að semja.

Á eftir var Genesis oft sett á fón­inn, upp­á­halds­hljóm­sveit Ísaks, og í ljósi þess sem síðar varð hafði nafn sveit­ar­innar nán­ast for­spár­gildi fyrir ævi hans. Ég er afskap­lega þakk­látur fyrir að þessi tón­list sem við börðum saman (ekki óvið­eig­andi orða­lag um með­ferð okkar á nótna­borð­inu) skuli ekki hafa verið tekin upp, en það breytir ekki því að við skemmtum okkur kon­ung­lega.

Önnur kvöld tókum við upp á því að yrkja saman í línu­strik­aða stíla­bók, órímuð ljóð þar sem annar byrj­aði og hinn kláraði, til skiptis. Það er sömu­leiðis mjög þakk­ar­vert að þessi ljóð skuli hafa týnst, og ég ætla rétt að vona að þau finn­ist ekki uppi á ryk­þrungnu háa­lofti ein­hvern­tíma. Slíkt er hins­vegar aldrei jafn öruggt og með mis­mun­andi kór­rétta tóna sem flögra út í loftið og koma aldrei aftur ef ekk­ert upp­töku­tæki grípur þá.

Þennan vetur vorum við svo hvor í sínu lagi að vinna að ljóða­bók­ar­hand­ritum, sem komu síðan út vorið eftir, sam­tímis og hjá sama for­lagi, meira að segja með sam­ræmdu útliti. Bók Ísaks var hið fræga Ræflatesta­menti, sem hefur rétti­lega hlotið sér­stakan sess í bók­mennta­sög­unni.

Vinátta okkar hélt áfram að blómstra, og einnig síðar, þegar þau hjónin fluttu á Klepps­veg­inn. Þar orti Ísak við lít­inn glugga á fjórðu hæð, og þar var hann nógu hátt uppi til að kom­ast um síðir í sam­band við skap­ara sinn. Eftir að hann hitti Guð strjál­uð­ust aðeins sam­fundir okkar, það var einsog hann væri meira sjálfum sér nógur um félags­skap eftir trú­ar­reynslu sína.

Ég hafði fullan skiln­ing á þess­ari upp­lifun hans út af fyrir sig, en hafði þó sjálfur ekki orðið fyrir neinu slíku, og það tak­mark­aði ögn sam­skipti okkar á þessum tíma. Það komu tíma­bil þar sem við hitt­umst fremur strjált, þótt báðir fylgd­ust grannt hvor með öðrum úr fjar­lægð.

Ísak var ekki auð­veld­asti vinur í heimi, það skal strax tekið fram, og sjálf­sagt var ég það ekki heldur, og vissu­lega gat hvesst hressi­lega á milli okkar. Við jöfn­uðum þó ávallt slíkt á end­anum, þótt nokkur tími gæti liðið. Eftir nokk­urt skeið þar sem við höfðum hist fremur lítið tókum við aftur upp þráð­inn, þá var Ísak orð­inn einn, og búinn að kaupa sér rauðan sendi­bíl, sem hann fór á um landið og svaf í og orti. Hann ók honum jafn­vel um borð í Norrænu og ferð­að­ist um Færeyjar, sér til mik­illar ánægju.

Við Óskar Árni Ósk­ars­son og hann tókum upp á því að fara hálfs­mán­að­ar­lega í kvöld­ferðir á þessum sterk­rauða sendi­bíl (sem var hvergi nærri nýr, fremur en aðrir bílar sem Ísak hafði eign­ast, mér hefði þótt eitt­hvað ósam­rým­an­legt við að sjá Ísak á splunku­nýjum bíl, hann hafði mun meiri áhuga á hverjum splunku­nýjum degi lífs­ins en vél­tækni) og skoða nágrenni Reykja­víkur, hvort sem var að vetri eða sumri.

Það voru eft­ir­minni­leg kvöld, sér­stak­lega man ég eitt þeirra, þar sem við stóðum þrír undir brag­andi norð­ur­ljósa­himni við Hval­eyr­ar­vatn. Þá fann maður að Ísak var í sínu elem­enti með Guð sinn log­andi yfir sér og allar stjörn­u­rnar, sem voru honum ávallt hug­leiknar þar sem hann hafði frá unga aldri stundað stjörnu­speki, og vann raunar um tíma fyrir sér með því að gera stjörnu­kort fyrir fólk. Að sumu leyti minnti hann dálítið á sögu­per­són­una í Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu eftir Olgu Tokarczuk, þar sem sú sem segir frá er altekin af stjörnu­speki og dýrum. Og talandi um Dýra­hring­inn; Ísak átti lengi ein­hvern þann sér­kenni­leg­asta kött sem ég hef fyr­ir­hitt, og kisan stóð fylli­lega uppi í hár­inu á eig­anda sínum sem alger­lega ein­stök líf­vera, með karakter sem seint gleym­ist.

Hver hefur vitað til þess að venju­legur maður yrði þjóð­skáld? spurði Jakobína Sig­urð­ar­dóttir forðum, og þessi orð mætti heim­færa á Ísak. Því með sínum hætti var hann raun­veru­legt þjóð­skáld, eitt fárra sem við höfum eign­ast á síð­ari tímum og standa undir því nafni án þess að kikna vit­und­ar­ögn. Fyrir mína parta er hann ein­hvers­konar hlið­stæða við Matthías Jochumsson eða Hallgrím Pét­urs­son á okkar tíð.

Menn geta verið sam­mála eða ósam­mála um þessa full­yrð­ingu eftir atvikum – svona blasir þetta við mér.

En Ísak var ekki bara ljóð­skáld, hann var líka frá­bær prósa­höf­undur.

Fyrra smá­sagna­safn hans Snæ­fells­jök­ull í garð­inum er stór­merki­leg bók, sem lumar á ger­semum. Hitinn á vax­mynda­safn­inu er sömu­leiðis afburða verk. Kannski er þó ljóða­bókin Stokks­eyri meist­ara­verk hans, þótt fleiri bækur mætti nefna til, þar á meðal Rennur upp um nótt. Listinn gæti þó orðið nokkuð langur, því af mörgu er að taka.

Eitt þeirra nútíma­skálda sem Ísak hefur minnt mig á, er Hannes Sig­fús­son, það voru ein­hver sér­stæð og hálf­dulin lík­indi með þeim, þótt þeir væru ólíkir menn að ýmsu leyti. Báðir voru þeir síðan stór­snjallir þýð­endur, og auðg­uðu íslenska þýð­ing­ar­flóru mjög með fram­lagi sínu. En hvað sem því líður að líkja Ísaki saman við önnur skáld, er nær­tæk­ast að segja að hann hafi verið hann sjálfur, í raun engum líkur, hann kom einsog víga­hnöttur inn í íslenskar bók­menntir, og log­aði þar skært og lengi.

Á síð­ustu árum komu þurrkakaflar í sam­skiptum okkar einsog stundum áður, en síð­ustu miss­erin höfðum við aftur farið að umgang­ast hvor annan og vera í stöð­ugu sam­bandi sím- og póst­leiðis, og ég er þakk­látur fyrir það.

Það var aldrei logn­molla í kringum Ísak, hann hafði sterkar skoð­anir á hlut­unum, og vissi vel hvers hann var megn­ugur. En ég hafði á til­finn­ing­unni síð­ari árin að honum þætti sem full­mikið hefði hljóðnað um nafn sitt. Þó átti hann sér alltaf sterkan les­enda­hóp sem fylgdi honum gegnum þykkt og þunnt og sá snilli­gáfu hans.

Þótt þýð­ingar hans væru merkar, var ég alltaf að vona að hann gæti lagt þær til hliðar um stund og ein­beitt sér að frum­sömdum verkum, og raunar tal­aði hann um það við mig ein­hvern­tíma í vetur að hann hygð­ist gera einmitt það. Eitthvað mun hann hafa átt í hand­rað­anum af ljóðum þegar hann lést, og væri for­vitni­legt að sjá þann afrakstur á bók ef hand­ritið hefur verið svo langt komið. Hann sagði mér reyndar fátt eitt um það, og tal­aði að jafn­aði lítið um verk sín. Og hann var ekki gef­inn fyrir að fara í fjöl­miðla (hann kall­aði þá mjöl­fiðlur) og básúna út mik­il­vægi sitt.

Ég vil að lokum þakka Ísaki fyrir þá ein­stöku vin­áttu sem hann gaf mér þegar best lét á milli okkar. Hann var marg­brot­inn maður og stór í sniðum, og hann var líka stór­skáld, eitt okkar stærstu skálda á hvaða tíma sem miðað er við.

En líf hans var flókið og oft á tíðum langt frá því að vera auð­velt, stundum fannst manni að hann gerði sér erf­ið­ara fyrir en nauð­syn­legt var, en hann fór alltaf sínar eigin leiðir, hvað sem á gekk.

Ein­hvern­tíma sagði Halldór Laxness: Stór­skáld er maður sem hefur ratað í miklar raunir, og þessi orð nóbels­skálds­ins má vel heim­færa upp á Ísak Harð­ar­son.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi