Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Glímdi við heilsuleysi eftir að hafa verið misnotuð sem barn: „Þeir greindu mig með ímyndunarveiki“

Glímdi við heilsuleysi eftir að hafa verið misnotuð sem barn: „Þeir greindu mig með ímyndunarveiki“
Mynd / Skjáskot af nlfi.is. Guðrún Bergmann er óneit­an­lega glæsi­leg kona. Segir sínar skoð­anir og rök­styður þær. Sómakona.

,,Kyn­fræðsla í leik­skólum er ekki eðli­leg þróun” ,,Erum búin að vera í Truman-Show” Fékk maga­sár aðeins 10 ára gömul “Mis­notk­unin setti lík­amann í algjört ójafn­vægi” Var í vand­ræðum með lík­amann í mörg ár eftir mis­notkun

Guðrún Bergmann segir margt í gangi í vest­rænum sam­fé­lögum sem fæstir þori að tala um. Eitt af því sé kyn­fræðsla ungra barna.

Sölvi er alltaf flottur og frá­bær spyrj­andi.

Guðrún, sem er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir mik­il­vægt að fólk þori að tjá hug sinn um eld­fim mál­efni, ann­ars geti þró­unin orðið slæm:

,,Eitt af því sem er mik­il­vægt núna er að fólk þori að tjá sig. Það er margt í gangi sem meiri­hluti fólks setur spurn­inga­merki við, en fáir þora að taka slag­inn. Eitt af þvi er til dæmis það sem er að ger­ast í skólum á vest­ur­löndum. Það er meðal ann­ars verið að hefja kyn­fræðslu í leik­skólum víða í hinum vest­ræna heimi, þar sem er verið að fjalla um kyn­lífs­leiki og fleira. Fólk hlýtur að mega setja spurn­inga­merki við þessa þróun án þess að vera kallað hat­urs­fullt.

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur sett af stað sjálf­bærn­is­stefnu í heil­brigð­is­málum, sem á að virkja í skólum þar sem er meðal ann­ars talað um þessa kyn­fræðslu. Þar er líka verið að kenna að það séu ekki strákar og stelpur og kenna um kyn­leið­rétt­ingar og fleira í þeim dúr. Í mínum huga er ekki eðli­legt að halda þessum hlutum að börnum niður í 2-3 ára aldur.

Það verður að vera hægt að taka umræðu um þessi mál. Það er ekki þannig að fólk sem er ekki hrifið af þessarri þróun sé allt saman hat­urs­fullt fólk.”

Guðrún hefur á löngum ferli haldið mik­inn fjölda nám­skeiða og skrifað tutt­ugu bækur, sú nýjasta heitir Leið Hjartans og fjallar um kær­leika og umskipt­ingar sem eru í gangi í heim­inum að sögn Guðrúnar:

,,Það fyrsta sem við þurfum að gera er að læra að elska okkur sjálf. Við höfum flest verið að gefa af hálf­tómum tanki af því að það kenndi okkur eng­inn að elska okkur sjálf. Við verðum að geta það til þess að geta gefið af okkur til ann­arra. Við búum á tímum þar sem hefur aldrei verið mik­il­væg­ara að hlúa vel að okkur. Við þurfum flest mikið á því að halda að kyrra hug­ann reglu­lega, með því að hug­leiða eða ná ró með ein­hverjum hætti. Það hvernig við sofum og borðum skiptir miklu máli. Við erum í raun­inni að fara í gegnum fram­þróun og upp­færslu sem lík­amar í þessu lífi og getum ekki lokað augum og eyrum lengur. Ég veit að margir halda að það sé bara bull að halda slíku fram, en ég er vön því að tala um hluti áður en þeir verða ,,mainstr­eam”. Hlutir eins og sjál­bær sam­fé­lög, yoga, hug­leiðsla, með­virkni og fleira eru hlutir sem ég var að tala um löngu áður en það þótti normal.”

Guðrún glímdi við heilsu­leysi um ára­bil eftir að hafa verið mis­notuð sem barn. Guðrún seg­ist hafa fengið maga­sár aðeins 10 ára gömul og lækn­arnir hafi greint hana með ímynd­un­ar­veiki:

„Ég var alltaf að leita hvað væri að mér og það gekk svo langt að lækn­arnir voru búnir að greina mig með ímynd­un­ar­veiki út af öllum ein­kenn­unum. En ég vissi að það væri ekki mín leið að taka mikið af lyfjum af því að ég hafði horft á það hafa slæm áhrif á fólk í kringum mig. En ein­kennin voru oft mjög þrá­lát, hvort sem það voru sýk­ingar eða vand­ræði í melt­ingu eða verkir. Það var ekki fyrr en eftir langa veg­ferð að ég gerði loks­ins þá teng­ingu að mis­notkun sem ég varð fyrir sem barn hafi spilað inn í. Ég sé núna að það bjó til mik­inn kvíða og setti lík­amann úr jafn­vægi. Ég fékk maga­sár þegar ég var 10 ára, sem þótti með ein­dæmum og eftir það átti ég í miklu basli með melt­ing­una í mörg ár. Ég var í miklu basli með tauga­kerfið í fleiri fleiri ár.“

Guðrún hefur lengi verið óhrædd við að tjá skoð­anir sem ganga gegn meg­in­straumnum og segir það mik­il­vægt að fólk hafi hug­rekki til að segja sinn sann­leika.

,,Allir verða að fá að velja sína leið og eng­inn ætti að reyna að pína fólk til að fara aðra leið en það velur. En það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara að velja í með­vit­und heldur en núna. Það eru óró­legir tímar í gangi í heim­inum þar sem stjórn­völd og önnur öfl eru farin að grípa meira inn í líf fólks. Covid-tíma­bilið sýndi okkur hluti sem ættu að fá okkur til að vera enn gagn­rýnni í hugsun en áður. Fyrir ekki svö löngu voru þeir sem töl­uðu um það sem er að ger­ast í Davos og hjá World Economic Forum kall­aðir sam­sær­is­fólk, en nú er margt af þessu orðið opin­bert og liggur bein­línis fyrir. Það er verið að ljóstra upp hlutum sem hafa verið í felum lengi og nú er ekki lengur hægt að loka bara aug­unum. Við höfum verið stödd í Truman-Show, en núna eru tjöldin að falla og fólk að opna augun fyrir því sem er að ger­ast.”

Þegar Guðrún er spurð um hluti sem margir efast um seg­ist hún ekki eiga annað val en að tjá sinn sann­leika eftir hluti sem hún seg­ist hafa upp­lifað, meðal ann­ars þegar eign­maður hennar lést:

„Við erum and­leg vera í efn­is­legum lík­ama. Það er and­inn sem fer þegar fólk deyr, ekki lík­am­inn. Hann verður eftir. Þetta sá ég þegar mað­ur­inn minn dó. Hann dó heima og hálf­tíma eftir að hann var dáinn sá ég að and­inn var far­inn. Hann leit út eins og Gulli, en var ekki Gulli. Andinn var far­inn úr skrokknum. Andinn var það sem bjó til allt í þessum lík­ama, enda tal­aði hann sjálfur um að hann væri ekki þetta far­ar­tæki sem hann var í, heldur andi. Ég fæ gæsa­húð þegar ég tala um þetta.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Guðrúnu og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi