Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján í Greifunum ævareiður RÚV fyrir sögufölsun: „Var mig bara að dreyma þetta 80’s tímabil“

Kristján í Greifunum ævareiður RÚV fyrir sögufölsun: „Var mig bara að dreyma þetta 80’s tímabil“
Kristján Viðar Har­alds­son

„Þetta er eins og gera heim­ild­ar­mynd um íslenskt bakk­elsi og sleppa því að fjalla um kleinur, flat­kökur og ást­ar­punga,“ segir Kristján Viðar Har­alds­son, einn með­lima og stofn­andi hljóm­sveit­ar­innar Greif­anna, um heim­ild­ar­þátt Rík­is­út­varps­ins, Popp- og rokksaga Íslands, sem fjallar um íslenska dæg­ur­tón­list frá níunda ára­tugnum þar sem Greif­arnir eru ekki taldir með.

Kristján Viðar rekur það í reiðipistli á Facebook að á þessu ára­bili, 1986-1992, sem var til umfjöll­unar í þætt­inum hafi Greif­arnir farið með him­in­skautum í vin­sældum og iðu­lega borið höfuð og herðar yfir aðrar hljóm­sveitir eins og vin­sælda­listar frá þeim tíma sýni glöggt.„Er ég í ein­hverju egó trippi eða er þetta bara eðli­legt? Gerðist þetta aldrei? Var mig bara að dreyma þetta 80’s tíma­bil sem ég tel mig hafa upp­lifað?“ spyr hann í pistli sínum sem ber yfir­skrift­ina Slaufun í boði RÚV.

Öll lögin okkar af plöt­unni Blátt blóð fóru á topp 20

„Á þessum árum sem þátt­ur­inn um helg­ina fjall­aði um, sér­stak­lega árin 1986 til árs­ins 1989 vorum við alls staðar. Án vafa ein allra vin­sælasta hljóm­sveit lands­ins. Það er mjög auð­velt að sjá ef þeir sem gerðu þætt­inu hefðu haft metnað til þess að fara í ein­hverja heim­ilda­vinnu. Við spil­uðum stans­laust frá því við byrj­uðum um mitt ár 1986 til 1988-89 fyrir fullu húsi. ALLTAF,“ skrifar Kristján.

Greif­arnir fóru með him­in­skautum í vin­sældum.

Hann rekur í pistli sínum að lögin af plötu Greif­anna, Blátt blóð, hafi öll náð inn á lista Rásar 2 yfir 20 vin­sæl­ustu lögin.„Eins vorum við fasta­gestir á þeim vin­sæld­ar­listum sem voru í boði. Öll lögin okkar af plöt­unni Blátt blóð fóru á topp 20 á vin­sæld­ar­lista rásar 2 haustið 1986. Það hefur aldrei verið leikið eftir eftir því sem ég best veit. Bara þetta ætti að vera nóg til þess að fjalla um okkur og okkar fram­lag þegar gerðir eru heim­ild­ar­þættir um popp- og rokk­sögu Íslands. Auk þess var greini­legt að koma okkar inn í íslenska tón­list­ar­sögu hafði mikil áhrif. Það sést best á sig­ur­veg­urum Mús­íktil­rauna árin á eftir. Í kjöl­farið komu nefni­lega aðrar hljóm­sveitir sem voru að spila svip­aða tón­list,“ skrifar Kristján Viðar.

Pistill Krist­jáns í heild sinni:

Slaufun í boði RÚV

Ég er ekki vanur að tjá mig mikið á Facebook en finn mig nú knú­inn til að leggja orð í belg. Ég verð að vera sam­mála Bjössa gít­ar­leik­ara vini mínum í Greif­unum þegar hann spyr á sama miðli eftir að hafa horft á þátt­inn um árin 1986 til 1992 í Popp- og rokk­sögu Íslands á RÚV um helg­ina. Er ég í ein­hverju egó trippi eða er þetta bara eðli­legt? Gerðist þetta aldrei? Var mig bara að dreyma þetta 80’s tíma­bil sem ég tel mig hafa upp­lifað?Fyrst vil ég segja. Jú Bjössi þetta gerð­ist. Ég var þarna líka. Ég hef sjálfur stundum velt þessu sama fyrir mér þegar ég hef lesið umfjöllun sjálf­skip­aðra sér­fræð­inga með sjálf­skip­aðar dokt­ors­gráður sem hafa fjallað um þetta tíma­bil. Ég hef meira að segja leitað mér upp­lýs­inga hjá raun­veru­legum sér­fræð­ingum um tón­list þessa tíma­bils og talað við ýmsa sam­ferða­menn sem eru enn á lífi og hafa engu gleymt. Ég hef sem sagt stað­fest­ingu á því að allt það sem við upp­lifðum og tókum okkur fyrir hendur á þessum tíma, það gerð­ist í raun. Og það sem er kannski und­ar­leg­ast af öllu er að í öllum þeim umfjöll­unum sem ákveðnir aðilar hafa fjallað um okkur. Hvort sem það voru þátt­ar­gerð­ar­menn á Rás 2 eða ein­hverjir sem þótt­ust vera skrifa sögu íslenskrar popptón­listar hefur aldrei, ég end­ur­tek ALDREI, verið talað við okkur um hvernig þetta var fyrr en núna. Ég fór í tveggja klukku­tíma við­tal í tengslum við þessa þátta­gerð. Mig grunar að ég sjá­ist ein­hvern­tím­ann í nokkrar sek­úndur í ein­hverjum öðrum þætti en ekk­ert er fjallað um okkur í þessum þætti sem þó fjall­aði um þau ár sem við komum storm­andi inn í íslenska tón­list­ar­senu.Á þessum árum sem þátt­ur­inn um helg­ina fjall­aði um, sér­stak­lega árin 1986 til árs­ins 1989 vorum við alls staðar. Án vafa ein allra vin­sælasta hljóm­sveit lands­ins. Það er mjög auð­velt að sjá ef þeir sem gerðu þætt­inu hefðu haft metnað til þess að fara í ein­hverja heim­ilda­vinnu. Við spil­uðum stans­laust frá því við byrj­uðum um mitt ár 1986 til 1988-89 fyrir fullu húsi. ALLTAF. Svona um það bil 350-400 tón­leikar/böll bæði í Reykja­vík og um allt land. Eins vorum við fasta­gestir á þeim vin­sæld­ar­listum sem voru í boði. Öll lögin okkar af plöt­unni Blátt blóð fóru á topp 20 á vin­sæld­ar­lista rásar 2 haustið 1986. Það hefur aldrei verið leikið eftir eftir því sem ég best veit. Bara þetta ætti að vera nóg til þess að fjalla um okkur og okkar fram­lag þegar gerðir eru heim­ild­ar­þættir um popp- og rokk­sögu Íslands. Auk þess var greini­legt að koma okkar inn í íslenska tón­list­ar­sögu hafði mikil áhrif. Það sést best á sig­ur­veg­urum Mús­íktil­rauna árin á eftir. Í kjöl­farið komu nefni­lega aðrar hljóm­sveitir sem voru að spila svip­aða tón­list. Við höfðum meira að segja svo mikil áhrif að talað var um að hljóm­sveitir spil­uðu Greifa­popp. Eins og ágætur maður sem er sér­fróður um íslenska dæg­ur­tón­list orð­aði þetta: „Að minni hyggju voru Greif­arnir svona und­an­fari popp­bylgj­unnar sem kom með Sálinni og Nýdönsk. Sem sagt, það er hægt að gera alvöru gleði- og stuð­tón­list og það þarf ekk­ert að afsaka það. Á undan Greif­unum voru svona pönk/rokk­þyngsli en svo er öllu snúið á haus með gleðipopp­inu (sem harm­oner­aði ágæt­lega við svip­aða late 80s þróun í U.K. og U.S.A.). Það komu svona post-Greifa­bönd eins og Stuð­kompaníið, Sterti­menni, Fjör­kallar og Herra­menn en ég las alltaf Greifana sem Bítla þess­arar senu.“Þetta er eins og gera heim­ild­ar­mynd um íslenskt bakk­elsi og sleppa því að fjalla um kleinur, flat­kökur og ást­ar­punga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi