Bára Halldórsdóttir birti efnislega upprifjun á Klaustursmálinu. Færslan Báru birtist á samfélagsmiðlinum Twitter í kjölfar hlaðvarpsviðtals við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þar sem hann svarar þáttastjórnanda og segist vita hver hafi staðið að baki „Hlerunarmálinu“ en ætli ekki að gefa það upp. Þar með hefur Klaustursmálinu verið fundið nýtt nafn þar sem hlerunin er höfuð á hávegum. Í samtali þáttastjórnanda og Sigmundar Davíð er því haldið fram að upptakan hafi verið þaulskipulögð og gerð til að koma höggi á hann.
Bára segir í Twitterfærslu sinni líka vita hver hafi skipulagt hana en hún hefur áður tjáð hvernig henni hafi blöskrað orðræða þeirra og ákveðið að taka um samtalið. Bára birtir því næst lista 10 atriða til upprifjunar, jafnt og að hrekja dylgjur Sigmundar Davíðs og bendir á að engin/n hafi neytt alþingismennina til samtalsins og bendir á að orðræðan sé aðalatriðið.
Upprifjun Báru:
1. Hroki valdastéttarinnar. „Þótt við nánast öskrum dónaskap og spillingaspjalli yfir fjölfarin bar, ætti það ekki að hafa neinar afleiðingar fyrir okkur sem stjórnmálamenn“
2. Kvenfyrirlitning. „Þessi gella var bara kosin af því að hún var nógu sæt, hin er skrokkur sem passar utan um typpið á mér, svo ekki sé minnst á þessa sem er sko meetoo áhætta“
3. Forréttindablinda. „Viljum sko enga öryrkja í sveitastjórn eða á þing. Ekkert sem það pakk hefur upp á dekk að gera“
4. Fornaldar-brandarar. „Hommar, hahaha!“
5. Fötlunarfordómar. „Freyja Eyja“
6. Spilling. „Ég reddaði þessum og fæ sko mitt fyrir“ (sjá Karl Gauti í stöðu lögreglustjóra Vestmannaeyja)
7. Karlaklíkan. „Vertu nú ekki að skemma skemmtunina“ Anna Kolbrún skaut einu sinni inn í eitthvað til að draga úr gallsanum, en var skotin niður af karli við borðið.
8. Samfélagsstaðan. Ef ég og aðrir hefðum ekki upplifað umræðuefnin á eigin skinni áður, hefði þetta ekki verið upptökuvert. Ég þekkti orðræðuna sjálfkrafa.
9. Sigmundur Davíð og hin. Enginn neyddi neinn til að segja neitt þarna inni. Þau völdu umræðuefnið og staðinn.
10. Sigmundur Davíð, Karl Gauti, Anna Kolbrún, Bergþór, Gunnar Bragi og Ólafur. Þau völdu umræðuefnið og staðsetninguna. Ekkert breytir því, ÞAÐ er aðalatriðið, ekki ég eða einhverjar samsæriskenningar. Efni samtalsins á alltaf að vera aðalfréttin.
Hér að neðan má sjá færslu Báru Halldórsdóttur í heild.































Athugasemdir