Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hverju hefur hælisleitandi rétt á frá ríkinu? Sjáðu framfærslu umsækjenda um alþjóðlega vernd

Hverju hefur hælisleitandi rétt á frá ríkinu? Sjáðu framfærslu umsækjenda um alþjóðlega vernd
Flótta­fólk á Íslandi. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Hæl­is­leit­andi sem bíður eftir að umsókn hans sé afgreidd fær átta þús­und krónur á viku í fram­færslu frá íslenskum yfir­völdum.

Athuga­semd­ar­kerfi frétta­miðl­anna eru oftar en ekki full af stað­hæf­ingum sem ekki stand­ast skoðun. Slíkt á mjög við þegar fréttir birt­ast af hæl­is­leit­endum og flótta­fólki. Þar hefur oft verið full­yrt að fólk sem hingað kemur, oft á tíðum frá stríðs­hrjáðum löndum eða löndum sem treður á mann­rétt­indum þegna sinna, fái frítt fæði, hús­næði og fram­færslu. Að hæl­is­leit­endur hafi það mun betra en fátækir Íslend­ingar.

Staðreyndirnar

Mannlíf skoð­aði málið og komst að þeirri nið­ur­stöðu að þessar stað­hæf­ingar eru rangar, að mestu leyti.

Vinnu­mála­stofnun svar­aði nokkrum spurn­ingum Mannlífs en sú stofnun aðstoðar ein­stak­linga og fjöl­skyldur sem hingað koma í leit að betra lífi. Meðan ein­stak­lingur bíður eftir að umsókn hans sé afgreidd af yfir­völdum, er hann það sem kall­ast „umsækj­andi um alþjóð­lega vernd“. Lögum sam­kvæmt hefur slíkur umsækj­andi marg­vís­leg rétt­indi og rétt á þjón­ustu frá Vinnu­mála­stofnun meðan á afgreiðslu umsókna þeirra hjá Útlend­inga­stofnun stendur. Slík afgreiðsla getur tekið frá nokkrum mán­uðum og upp í sirka tvö ár í kerf­inu.

Vinnu­mála­stofnun útvegar meðal ann­ars hús­næði og grunn­þjón­ustu fyrir umsækj­endur. Grunn­þjón­ustan felst þar með talin vera fram­færsla, lækn­is­að­stoð, skóla­ganga og almenn­ings­sam­göngur innan sveit­ar­fé­lags.

En hvernig hús­næð­is­kost býðst umsækj­endum um alþjóð­lega vernd?

Svar Vinnu­mála­stofn­unar: Búsetu­úr­ræðin á vegum Vinnu­mála­stofn­unar eru mis­mun­andi eftir því hvort um ein­stak­linga, pör eða fjöl­skyldur er að ræða. Ein­stak­lingar deila í flestum til­fl­ellum her­bergi með öðrum af sama kyni. Fjöl­skyldur eru ann­að­hvort í sér­her­bergjum eða í íbúð.  Búsetu­úr­ræðin eru umsækj­endum um alþjóð­lega vernd þeim að kostn­að­ar­lausu ef þau dvelja í búsetu­úr­ræði á vegum Vinnu­málatofn­unar.

Hversu lengi fá umsækj­end­urnir aðstoð frá rík­inu eftir að þau koma til lands­ins?

Svar Vinnu­mála­stofn­unar: Þau fá aðstoð eins lengi og umsókn þeirra um alþjóð­lega vernd er til afgreiðslu. Fái við­kom­andi jákvæða nið­ur­stöðu eiga þeir rétt á þjón­ustu í allt að átta vikur eftir nið­ur­stöðu en fái við­kom­andi synjun fellur réttur til þjón­ustu niður eftir 30 daga nema til­teknar und­an­þágur eigi við.

En skoðum fram­færsl­urnar betur.

Ein­stak­lingur á rétt á 8.000 krónum á viku í fram­færslu, sem gerir 32.000 krónur á mán­uði.
Hjón eða sam­búð­ar­fólk fær 13.000 krónur á viku eða 52.000 krónur á mán­uði.
Barn fær 5.000 krónu á viku eða 20.000 krónur á mán­uði.

Fjöl­skylda fær aldrei meira en 28.000 krónur á viku, sama hversu stór hún er. Það gerir 112.000 krónur á mán­uði.

Niðurstaða

Fólk sem flýr stríð eða aðrar hörm­ungar í heima­landi sínu og sækir um alþjóð­lega vernd á Íslandi fær vissu­lega að búa í fríu hús­næði en ein­stak­lingar deila þá her­bergjum með öðrum og fjöl­skyldur fá annað hvort sér­her­bergi til að búa í eða íbúð en aðeins á meðan þau bíða eftir afgreiðslu umsóknar sinnar.

Það fær strætókort.

Það fær fram­færslu sem nán­ast ógjörn­ingur er að lifa á, í einu dýrasta landi heims.

Fólkið fær lækn­is­þjón­ustu og börnin fá að ganga í skóla. Varla getur nokkur sett sig upp á móti því, eða hvað?

Sem sagt, hæl­is­leit­endur á Íslandi fá tíma­bund­inn hús­næð­is­kost, frítt í strætó, örlitla fram­færslu svo þeir deyji ekki úr hungri, lækna­þjón­ustu og skóla­göngu fyrir börnin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi